Síða 1 af 2

Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 20:09
af appel
Var búinn að skrifa heljarinnar póst til að útskýra þarfir og kröfur... blah... TLDR.

Hvað er best? Hvað á maður að fá sér? Soundbar? Hví? 5.1 heimabíó? Hví?

Vil engar snúrur, ekkert fargan, bara nett system, en öflugt og góð hljómgæði. Budget c.a. 60-70 þús. Skoða betri kerfi ef þau eru framtíðareign.

Mun helst tengja tölvuna við þetta.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 20:27
af SolidFeather
Myndirðu þá nota það með tölvunni á skrifborði eða tölvunni frammí stofu tengda við sjónvarp?

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 20:47
af appel
SolidFeather skrifaði:Myndirðu þá nota það með tölvunni á skrifborði eða tölvunni frammí stofu tengda við sjónvarp?

Tölvan er ekki í stofunni. Myndi vera með sér tölvuhátalara fyrir tölvunotkun en þegar ég vil horfa á kvikmyndir eða sjónvarpsþætti, eða bara hlusta á tónlist í stofunni, þá vil ég vera með gott hljóð þar.

Svo er spurning með þessa græju: http://www.samsungsetrid.is/vorur/379/
Það er þráðlaust dlna í þessu (sem ég er skeptískur á reyndar). Ég er með atx ethernet tengdan turn, þannig að þarf að komast að því hvernig svona græja getur spilað af honum þráðlaust. Ef en þetta virkar þá eru helstu þægindin þau að þurfa ekki að leggja á sig að setja kapal í stokk og svona.

edit: Málið er að ég er bara vanur því að nota sjónvarpið sem annan skjá, og hátalara tengda við tölvu. Ég vil geta spilað tónlist í tölvunni, streymt tónlist yfir netið og svona, og outputtað í fínu græjurnar í stofunni. Veit ekki hvernig dlna leysir það.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 20:54
af SolidFeather
Æj þetta er eitthvað svo mikil meðalmennska. Ég myndi bara byrjáþví að skoða magnara + 2.0 system sem þú gætir þá bætt við seinnameir.

En það er bara ég.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 20:56
af AntiTrust
Ef þú ert með aflokað herbergi sem opnast ekki út í neitt opið rými þá gætiru svosem skoðað soundbar. Ég myndi þó persónulega aldrei íhuga það sjálfur þar sem þau komast ekki nálægt proper 5.1/7.1 kerfum. Sem mikill kvikmyndaunnandi gæti ég ekki ímyndað mér að vera án alvöru surround hljóðs.

Ég þoli ekki heldur kapla og snúrur og fel þetta allt bara bakvið lista, lítið mál.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 21:18
af appel
AntiTrust skrifaði:Ef þú ert með aflokað herbergi sem opnast ekki út í neitt opið rými þá gætiru svosem skoðað soundbar. Ég myndi þó persónulega aldrei íhuga það sjálfur þar sem þau komast ekki nálægt proper 5.1/7.1 kerfum. Sem mikill kvikmyndaunnandi gæti ég ekki ímyndað mér að vera án alvöru surround hljóðs.

Ég þoli ekki heldur kapla og snúrur og fel þetta allt bara bakvið lista, lítið mál.

Já, ég er doldið að hallast að því að soundbar sé bara rugl að kaupa.

En vá hvað maður er ringlaður í þessu.

Ég myndi alveg vilja 5.1 kerfi EF maður gæti falið þetta snúrufargan, helst bara að að þessir hátalarar séu þráðlausir, gegnsæjir og þurfi ekkert rafmagn. En í alvörunni, er ekki hægt að hafa allavega þessari aftari hátalara þannig að þeir séu þráðlausir? Svo er það sem ég skil ekki... afhverju þetta er allt svart, og snúrurnar svartar í þokkabót... ég meina maður er að fara setja þetta á HVÍTAN vegg.

Æi, fer bara í þessar verslanir og reynir að heimta þjónustu og ráðgjöf. Trúi ekki að ég sé eini einstaklingurinn í heiminum sem er með svona "spes" kröfur.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 21:24
af mundivalur
Ég vildi losa mig við snúrur og fékk mér Yamaha Ysp-2200 =179.995 http://hataekni.is/is/vorur/6000/6005/YSP2200/ gafst upp eftir 6 mán ,ekkert surround því að stofan var ekki ferköntuð og bassinn er bara ekki nógu djúpur !
Magnari,bassabox og 2 hátalarar er miklu betra,ég er kominn með 5.1 dót og þvílíkur munur :D

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:02
af Matti21
Gleymdu þessum soundbars. Þetta virkar aldrei almennilega. Ef maður vill surround sound þá þurfa hátalarnir að vera allan hringinn ef maður tímir því ekki að nennir ekki að standa í veseninu við að ganga frá því snyrtilega þá er maður bara betur settur með stereo eða 2.1 setup.

Ef þú villt gera þetta almennilega bættu þá aðeins við budgetið. Svona 100 þús er lágmark. Farðu í heimilistæki/sjónvarpsmiðstöðina og hátækni og fáðu ráðgjöf. Kauptu heimabíómagnara og tvo hátalara og svo geturðu bætt við fleiri hátölurum seinna. Getur keypt ódýra litla hátalara til að byrja með og seinna meir keypt enþá betri hátalara og nýtt gömlu í bakhátalara.

Þetta er allavega það sem ég mundi gera. Þetta fer bara allt eftir kröfunum sem þú gerir og hvað þú ert tilbúinn að eyða. Ef þú villt bara no-nonsense ágætis heimabíókerfi þá ertu eflaust vel settur bara með þetta samsung kerfi sem þú linkaðir á eða td. þetta http://www.hataekni.is/is/vorur/6000/6005/HX521/

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:22
af astro
appel skrifaði:Já, ég er doldið að hallast að því að soundbar sé bara rugl að kaupa.

En vá hvað maður er ringlaður í þessu.

Ég myndi alveg vilja 5.1 kerfi EF maður gæti falið þetta snúrufargan, helst bara að að þessir hátalarar séu þráðlausir, gegnsæjir og þurfi ekkert rafmagn. En í alvörunni, er ekki hægt að hafa allavega þessari aftari hátalara þannig að þeir séu þráðlausir? Svo er það sem ég skil ekki... afhverju þetta er allt svart, og snúrurnar svartar í þokkabót... ég meina maður er að fara setja þetta á HVÍTAN vegg.

Æi, fer bara í þessar verslanir og reynir að heimta þjónustu og ráðgjöf. Trúi ekki að ég sé eini einstaklingurinn í heiminum sem er með svona "spes" kröfur.

Blessaður vertu, farðu bara í byggingavöruverslun og keyptu þér rafmagnsstokka með lími að aftan, kosta eithvað um 500Kr 2m langir renningar (verð fer líka eftir þykkt) en ég keypti mér c.a. 6m og límdi í kringum stofuna hjá mér
Ég er með 2x hátalarasnúrur og hátalararnir eru fyrir aftan sófan og svo þykka HDMI snúru í stokknum (er með skjávarpa fyrir aftan sófan líka), hvítir grannir og litlir stokkar sem sjást ekki á veggjunum og límið er gott á þeim.
Ég límdi bara mína stokka bara á vegginn niðri fyrir ofan parket listana, 100% undetectable :happy

(Bauhaus eru með ódýrustu stokkana, voru sirka helmingið ódýrari en í húsó & bykó sem eru með lítið úrval miðað við bauhaus)

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:29
af appel
astro skrifaði:

Sjónvarpið er á sjálfstæðum vegg í miðri íbúð. Ef ég ætlaði að hafa hátalara fyrir aftan þar sem er setið þá þyrfti ég að leiða snúru yfir parketið.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:30
af GuðjónR
Það er líka hægt að kippa parketlistunum frá, setja snúrurnar á bakvið og setja listana aftur á sinn stað :)

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:36
af worghal
ætli þú verðir ekki bara að sætta þig við soundbar með þráðlausu bassaboxi ?

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:39
af SolidFeather
Tekur nottla stereo framyfir soundbar allan daginn.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:43
af AntiTrust
Ég átti fyrir nokkrum árum flott Sony heimabíó kerfi, með þráðlausum bakhátölurum. Get ímyndað mér að slíkt myndi henta þér ágætlega.

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:43
af CendenZ
er ekki hægt að draga kapla í dósirnar?

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:50
af appel
Ok takk... held ég búinn að komast að niðurstöðu í þessu.

Annaðhvort er það 2.1 kerfi, eða 5.1... og þá myndi ég fá mér þráðlausa bakhátalara eða draga snúrur í dósir. Mun skoða verðin á þessu, fyrirhöfn og svo jú auðvitað hljóðgæðin.

:happy

Re: Hljómgræjur

Sent: Sun 22. Júl 2012 23:59
af Bioeight
http://www.amazon.co.uk/Panasonic-SHFX71EK-Transmitter-SC-BTT775-SC-BTT370/dp/B003GALDK2/ref=dp_cp_ob_ce_title_0 - Þráðlaus sendir og móttakari fyrir bakhátalara(sýnist þetta bara vera fyrir nokkrar tegundir af Panasonic heimabíógræjum).
http://www.amazon.co.uk/Panasonic-SC-BTT775EBK-5-1ch-Blu-ray-Cinema/dp/B004W6ID3O/ref=pd_bxgy_ce_img_b - Eins og t.d. þessar heimabíógræjur.

Þetta væru þá svokallaðar semi-wireless heimabíógræjur. Svoleiðis græjur hafa verið til á Íslandi, minnir að ég hafi séð svona í Elko á sínum tíma. Þetta gæti alveg verið lausnin fyrir þig. Þannig að þá veistu að þetta er til og þú getur leitað að því, spurningin er bara hvort þetta sé til á litla Íslandi.

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 00:10
af tdog
Ég myndi sansa fallega álsúlu upp úr þessum frístandandi vegg og láta hana fara upp í loft. Getur ef til vill látið hana virka sem listaverk, og leitt síðan snúrur upp í loft og frá súlunni í límlistum í loftinu.

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 00:36
af appel
tdog skrifaði:Ég myndi sansa fallega álsúlu upp úr þessum frístandandi vegg og láta hana fara upp í loft. Getur ef til vill látið hana virka sem listaverk, og leitt síðan snúrur upp í loft og frá súlunni í límlistum í loftinu.

Vá... :shock: úff, alltof áberandi.

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 03:04
af appel
Matti21 skrifaði:Ef þú villt bara no-nonsense ágætis heimabíókerfi þá ertu eflaust vel settur bara með þetta samsung kerfi sem þú linkaðir á eða td. þetta http://www.hataekni.is/is/vorur/6000/6005/HX521/

Já, takk fyrir þetta, held ég ætli að stökkva á þetta tæki, sýnist á speccunum/features og verðinu að þetta sé hentugast fyrir mig (þar að auki vaxtalaust lán). Mun kaupa á morgun nema einhver mótmælir 8-[

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 03:09
af svanur08
Þetta gæti verið ágætt líka ---> http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=SCBTT262

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 14:07
af appel
En þetta?

http://ormsson.is/vorur/4862/

Spurning hvort maður stilli ekki bara aftari hátölurum upp að framan þar til maður finnur lausn á þessu snúrurugli, varla skemmir það fyrir, og speccarnir á þessu eru góðir.

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 19:41
af appel
Búinn kaupa þetta og byrjaður að spila í gegnum wi-fi:
http://www.samsungsetrid.is/vorur/583/

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 19:44
af svanur08
appel skrifaði:Búinn kaupa þetta og byrjaður að spila í gegnum wi-fi:
http://www.samsungsetrid.is/vorur/583/

Flott kerfi enjoy! ;)

Re: Hljómgræjur

Sent: Mán 23. Júl 2012 22:12
af appel
Þetta "AllShare" er algjört rubbish. DLNA er rubbish. Bara virkar ekki, svo einfalt er það. Voðalega hypað og allt saman, en ég vissi að þetta væri bara bull og myndi aldrei virka einsog auglýst er. (ekki það að það hefði skipt máli þegar ég keypti tækið).

Er með AllShare windows forritið, og búinn að bæta við fullt af vídjó skrám í libraryið, en græjurnar detectar það ekki, þær detecta samt símann!
Svo þarf ég að nota símann til að spila... af windows tölvunni og í sjónvarpið. Ég meina ... þetta er alveg GA GA GA GA stupid hugsun á bakvið þetta DLNA kerfi. Hvernig kokkuðu þeir upp svona geðveik notkunartilvik? Nota símann til að spila af tölvunni og birta í sjónvarpinu? Svo virkar ekki að spila allt saman. Var að reyna horfa á nýjasta True Blood og playbackið fór alveg í KENG. Matroska virkar ekki heldur. Svo dettur þetta inn og út... síminn detectar oftast ekki tölvuna, og tölvan detectar ekki símann... blah...

Þannig að krakkar mínir, DLNA er algjört rubbish, sem þetta "AllShare" frá samsung byggist á. Ef ég get ekki fengið þetta til að virka einsog skyldi hvernig á þá venjulegt fólk að fá þetta til að virka?

Back to plan B... beintengja úr tölvunni í græjurnar með hdmi.

Fokking fokk.