Síða 1 af 1
Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 21:35
af Yawnk
Ég veit ekki alveg hvar ég á að pósta þessu, ég fann engan flokk með hátölurum
þannig að ég set það bara hérna.
Málið er það, að ég er að leita mér að góðu 5.1 PC heimabíói hérna á Íslandi, en það er bara svo lítið úrval, verður að vera undir 35.000.
Það eina sem ég finn er eitthvað lélegt og kraftlaust Logitech eins og í BT.
Ég er að spá í þetta hér :
http://kisildalur.is/?p=2&id=552 Ég er einmitt svo lélegur í þessu, ég var að velta fyrir mér hvort eitthver gæti útskýrt hvort að þetta sé gott eða ei
Hvort væri nú skemmtilegra að fá sér, stóra tvo gólfhátalara eða 5.1
Takk
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 21:39
af oskar9
Stórir gólfhátalarar og magnari er svona 200 þúsund, færð fín kerfi með svona litlum 5.1 kerfum en ekkert nálægt t.d Dali gólfhátölurum og Yamaha magnara
http://www.hataekni.is/is/vorur/6000/6020/NS555/http://www.hataekni.is/is/vorur/6000/6010/RXV467TI/
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 21:42
af kubbur
35 þús er allt of lítið
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 21:44
af oskar9
sammála Kubbi, þó svo þú finnir þér eitthvað kefi sem "sleppur" þá viltu fljótt uppfæra, værir betur settur með góðan magnara og gæti svo bætt við hátölurum og bassaboxi og slíku þegar þú færð meiri pening
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 21:48
af kubbur
Myndi segja lágmark 50 þús fyrir magnara og annað eins fyrir hátalara
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 22:11
af Son of a silly person
Sjálfur var ég með svona litið og nett 5.1 pc-krefi. Fljótlega eftir að blu-ray myndir komu á markað þá gafst ég upp á mini kerfinu og verslaði mér magnara og hátalara.
Þetta er magnarinn sem ég mæli mjög mikið með. :
http://ormsson.is/vorur/4869/ : Algjör draumur að hafa sjálfvirka hljóðuppsettningu.
Síðan verslaði ég hátalara svipað þessum:
http://ormsson.is/vorur/4923/ Svona sett ætti að duga 80% þeirra sem vilja 5.1 kerfi.
Þannig... Já 5.1 kerfi er um 200 kall.
Meðan ég man þá nota ég hdmi kapal í skjákortið fyrir hljóð. Það styður dloby ture-hd og dts-hd hdmi 1.3 minnir mig.
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 22:18
af tdog
Ef ég væri þú, þá myndi ég fara langt over the top, og fá mér BeoLab 8002. Stykkið kostar reyndar tæpar 250.000 krónur, en hljómurinn er ekkert nema gæði.
Ef ekki… Þá myndi ég leita mér að mjög góðum magnara, þú getur keypt þér „skitnari“ hátalara ef þú kaupir betri magnara.
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 22:27
af Yawnk
Takk fyrir svörin, en ég er nú eiginlega ekki að leita mér að eitthverju dýru hljóðkerfi, bara eitthverju litlu og nettu eins og í Kísildal
Er nefnilega varla með plássið fyrir þessi skrímsli sem þið sýnduð mér
Gólfhátalarar, tja.. ég meinti nú frekar eitthvað í líkingu við þetta
http://kisildalur.is/?p=2&id=851 svona 'minni' version af svoleiðis
Er nú ekkert í eitthverju hevví bissnessi, bara casual leikjaspilun og tónlist
http://kisildalur.is/?p=2&id=552 Þetta væri ágætt fyrir það, ekki satt
Re: Hátalarar!
Sent: Mán 26. Mar 2012 23:32
af atlih
mæli virkilega með þessum solo 7 , átti svona og fannst mér soundið frábært fyrir peningin. Þeir sem hanga á svona síðum og opna þræði merkta hátalarar hafa sennilega ekkert vit á græjum undir 35þúsund því þeir hafa ekki skoðað neitt nálægt þeim verðflokk í mörg ár. allavega í mínu tilfelli. græjulúðum finnst mun gáfulegra að þú takir þér bara góðan yfirdrátt og kaupir þér bara almennilegar græjur
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 01:43
af AntiTrust
Fyrir 35 ættiru nú að geta orðið þér út um notað Z-5500 kerfi. Finnur varla meira performance fyrir peninginn.
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 03:25
af Minuz1
Mæli með því að þú fáir þér bara 50 þúsund króna headphones...
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 07:39
af Yawnk
AntiTrust skrifaði:Fyrir 35 ættiru nú að geta orðið þér út um notað Z-5500 kerfi. Finnur varla meira performance fyrir peninginn.
Ég var einmitt að leita mér að þaða kerfi, ég veit bara ekki hvar ég fæ það, ég fann ekkert.
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 09:19
af kubbur
atlih skrifaði:mæli virkilega með þessum solo 7 , átti svona og fannst mér soundið frábært fyrir peningin. Þeir sem hanga á svona síðum og opna þræði merkta hátalarar hafa sennilega ekkert vit á græjum undir 35þúsund því þeir hafa ekki skoðað neitt nálægt þeim verðflokk í mörg ár. allavega í mínu tilfelli. græjulúðum finnst mun gáfulegra að þú takir þér bara góðan yfirdrátt og kaupir þér bara almennilegar græjur
Nokkuð til i þessu, en þú verður samt sem aður að skoða ástæðuna fyrir því að við hættum að skoða þennan verðflokk, þetta er rusl sem þú getur aldrei nokkurn tímann notað i neitt annað en að hlusta a hljóðbækur
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 13:23
af Yawnk
Ekki veit einhver hvar ég gæti séð hvar hlutur kostar þegar hann er kominn til landsins? t.d frá Amazon.
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 13:31
af worghal
Yawnk skrifaði:Ekki veit einhver hvar ég gæti séð hvar hlutur kostar þegar hann er kominn til landsins? t.d frá Amazon.
http://www.tollur.is/extern.asp?cat_id=1700munda að reikna með sendingargjaldið.
kubbur skrifaði:atlih skrifaði:mæli virkilega með þessum solo 7 , átti svona og fannst mér soundið frábært fyrir peningin. Þeir sem hanga á svona síðum og opna þræði merkta hátalarar hafa sennilega ekkert vit á græjum undir 35þúsund því þeir hafa ekki skoðað neitt nálægt þeim verðflokk í mörg ár. allavega í mínu tilfelli. græjulúðum finnst mun gáfulegra að þú takir þér bara góðan yfirdrátt og kaupir þér bara almennilegar græjur
Nokkuð til i þessu, en þú verður samt sem aður að skoða ástæðuna fyrir því að við hættum að skoða þennan verðflokk, þetta er rusl sem þú getur aldrei nokkurn tímann notað i neitt annað en að hlusta a hljóðbækur
þetta er ekki allveg rétt hjá þér. ég keypti mitt hátalara set, sem er reyndar 2.1, á 18þús í tölvulistanum og það er enþá með dúndur hljóð gæði
Altec Lansing CS21
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 14:54
af gutti
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 15:24
af Yawnk
gutti skrifaði:http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=7593 mæli með þessu svín virkar sound
Átt þú þessa sjálfur?
var einmitt að spá í þessa líka, en þeir virðast svo litlir... og brothættir
Hvernig er hljóðið í þessu, eitthver bassi?
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 16:10
af gutti
já ég er með þessa sem ég linkaði og hljóðið er klikkað óþarfi að vera með bassa box með þessu
genius koma frekar óvart upp á sound í þessu
Re: Hátalarar!
Sent: Þri 27. Mar 2012 17:24
af Yawnk
gutti skrifaði:já ég er með þessa sem ég linkaði og hljóðið er klikkað óþarfi að vera með bassa box með þessu
genius koma frekar óvart upp á sound í þessu
Hvernig er þetta í leikjaspilun..?
Pikkar það upp öll litlu hljóðin í bakgrunninum o.fll
Er þetta ekki frekar fyrir tónlist?
Re: Hátalarar!
Sent: Mið 28. Mar 2012 15:20
af Yawnk
gutti skrifaði:já ég er með þessa sem ég linkaði og hljóðið er klikkað óþarfi að vera með bassa box með þessu
genius koma frekar óvart upp á sound í þessu
Hvernig er þetta í leikjaspilun..? Pikkar það upp öll litlu hljóðin í bakgrunninum o.fll
Er þetta ekki frekar fyrir tónlist?
Re: Hátalarar!
Sent: Sun 06. Jan 2013 09:05
af Garri
Var einmitt að setja upp hljóð-kerfið fyrir leikjatölvuna. Er búinn að prófa allskonar kerfi, Micro-lab 200, Creative og fleiri gerðir.. algjört prump!
Á endanum keypti ég Audio-Polk i15
Audo Polk rt-15i ásamt Sony magnara fyrir innan við 10k, betri kaup hef ég ekki gert í hljóð-kerfum.