Síða 1 af 2

Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 19:30
af svanur08
Vantar ráðleggingar með heimabíó magnari+hátalarar í 1 pakka, þarf að vera 5.1 og spila DolbyHD og DTS HD Master audio og sem er ekki með blu-ray spilara með.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 19:38
af gutti
hvað má setið kosta :?:

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 19:57
af svanur08
gutti skrifaði:hvað má setið kosta :?:


Up to 100k

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 20:27
af gutti
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... 294BL#elko

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=759

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=759

langt best fá að hlusta f'int að taka eigið dvd mynd sem þú horfa á

Svo mæli ég með hljómsýn í Ármúla mjög gott sett hjá þeim :skakkur
er með kerfið frá þeim 5.1 en keypti 2 auka er sem 7.1 :happy

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 21:14
af svanur08

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 21:27
af gutti
Onkyo er gott merki linkið af heimabíóið http://www.eu.onkyo.com/en/products/avx-380-34557.html

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 07. Feb 2012 22:27
af DJOli
Ég persónulega, tæki Yamaha kerfið, það er með sexy magnara sem hægt er að nota seinna við annað.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mið 08. Feb 2012 17:07
af svanur08
Ætli maður taki ekki Onkyo kerfið, veit að Onkyo eru með góða magnara.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 19:47
af magnusgu87
Sæll, ég er í sömu hugleiðingum og þú og langar því að spyrja þig um reynslu af þessum græjum?

Mér líst gríðarlega vel á þessa hátalara svona í þessu price-range, ég er ekki alveg búinn að ákveða price-rangeið ennþá hvort ég stilli þessu í hóf (100k) eða fara all-in (250K+) og taki þá Onkyo heimabíómagnari 7.1
og Jamo S606 5.1 hátalarasett saman.

Þú slepptir líka spilaranum og ég geri því ráð fyrir að þú sért með allt efni inná tölvu/server sem þú spilar þetta af, hvernig hljóðkort ertu með í tölvunni fyrir þessar græjur? Einsog er ég með gamalt JBL heimabíókerfi sem ég fékk notað fyrir 5þús kall og notast bara við analog rásirnar af móðurborðinu en býst fastlega við að þurfa splæsa í efnilegt hljóðkort sem styður coaxial og/eða optical sem ég tengi svo yfir í magnarann.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 20:53
af mundivalur
Gallin við þessi pakka heimabíó er að það er ekkert auka Hdmi :mad fyrir td. tölvuna !

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 22:06
af svanur08
mundivalur skrifaði:Gallin við þessi pakka heimabíó er að það er ekkert auka Hdmi :mad fyrir td. tölvuna !


Ég fékk mér onkyo kerfið, það eru 3 HDMI input á magnaranum.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 22:23
af mundivalur
Já sá það núna :happy það er helvíti fínt í svona pakka !

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 22:36
af djvietice
100þ? Logitech z906 :happy

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 23:04
af fallen
svanur08 skrifaði:
mundivalur skrifaði:Gallin við þessi pakka heimabíó er að það er ekkert auka Hdmi :mad fyrir td. tölvuna !


Ég fékk mér onkyo kerfið, það eru 3 HDMI input á magnaranum.


Er sæmilegur hljómur í þessu Onkyo kerfi?

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Mán 07. Maí 2012 23:18
af svanur08
fallen skrifaði:
svanur08 skrifaði:
mundivalur skrifaði:Gallin við þessi pakka heimabíó er að það er ekkert auka Hdmi :mad fyrir td. tölvuna !


Ég fékk mér onkyo kerfið, það eru 3 HDMI input á magnaranum.


Er sæmilegur hljómur í þessu Onkyo kerfi?


Já virkar fínt.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 00:02
af magnusgu87
Svanur08, ertu nokkuð til í að svara þeim spurningum sem ég set fram ofar í þræðinum? Einnig er ég að velta því fyrir mér hvaða tengi þú notar til að flytja hljóðið, coaxial, optical eða hdmi og hversvegna?

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 00:21
af svanur08
magnusgu87 skrifaði:Sæll, ég er í sömu hugleiðingum og þú og langar því að spyrja þig um reynslu af þessum græjum?

Mér líst gríðarlega vel á þessa hátalara svona í þessu price-range, ég er ekki alveg búinn að ákveða price-rangeið ennþá hvort ég stilli þessu í hóf (100k) eða fara all-in (250K+) og taki þá Onkyo heimabíómagnari 7.1
og Jamo S606 5.1 hátalarasett saman.

Þú slepptir líka spilaranum og ég geri því ráð fyrir að þú sért með allt efni inná tölvu/server sem þú spilar þetta af, hvernig hljóðkort ertu með í tölvunni fyrir þessar græjur? Einsog er ég með gamalt JBL heimabíókerfi sem ég fékk notað fyrir 5þús kall og notast bara við analog rásirnar af móðurborðinu en býst fastlega við að þurfa splæsa í efnilegt hljóðkort sem styður coaxial og/eða optical sem ég tengi svo yfir í magnarann.


Fer bara allt eftir hversu stórt herbergið er, en ég er ekki með þetta tengt við tölvuna, er með Logitech Z-2300 við tölvuna og er bara með hljóðkortið í móðurborðinu við það, en nota HDMI í Onkyo, frá blu-ray yfir í magnara og frá magnara yfir í TV, til að fá 3D og Lossless sound.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 00:36
af svanur08
Samt dauðlangaði að sérpanta þetta ---> http://www.eu.onkyo.com/en/products/ht- ... 43416.html

Bara komið í of hátt verð fyrir mig ;)

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 00:41
af magnusgu87
Ég er með þetta í 20m2 stofu þar sem það eru 4metrar frá veggnum þar sem sjónvarpið/tölvan og allt setup verður og að hinum veggnum þar sem sófinn er - alveg upp við vegginn.

Þú ert að notast við hdmi tengi sem ég veit að flytja bæði hljóð og mynd í bestu gæðum. Í tölvunni minni er MSI K9AGM2-L móðurborð og það er með 2 HDMI tengi, sérð þú, eða get ég einhvernveginn séð það hvort það styðji DTS - HD / MA eða hvort ég þurfi að fjárfesta mér í spes hljóðkorti? Mér sýnist einnig að flest hljóðkort sé annahvort bara coaxial og/eða optical en ekki HDMI, þýddi þetta þá ekki bara í raun fleiri snúrur í stað þess að vera bara með 2 HDMI, ein úr tölvu í sjónvarp fyrir mynd og svo hin úr tölvu í magnara fyrir hljóð? Þ.e.a.s ef þetta móðurborð styður DTS (tala nú ekki um að geta sparað nokkra þúsundkalla ef ég þarf ekki að kaupa spes hljóðkort)

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 00:49
af svanur08
magnusgu87 skrifaði:Ég er með þetta í 20m2 stofu þar sem það eru 4metrar frá veggnum þar sem sjónvarpið/tölvan og allt setup verður og að hinum veggnum þar sem sófinn er - alveg upp við vegginn.

Þú ert að notast við hdmi tengi sem ég veit að flytja bæði hljóð og mynd í bestu gæðum. Í tölvunni minni er MSI K9AGM2-L móðurborð og það er með 2 HDMI tengi, sérð þú, eða get ég einhvernveginn séð það hvort það styðji DTS - HD / MA eða hvort ég þurfi að fjárfesta mér í spes hljóðkorti? Mér sýnist einnig að flest hljóðkort sé annahvort bara coaxial og/eða optical en ekki HDMI, þýddi þetta þá ekki bara í raun fleiri snúrur í stað þess að vera bara með 2 HDMI, ein úr tölvu í sjónvarp fyrir mynd og svo hin úr tölvu í magnara fyrir hljóð? Þ.e.a.s ef þetta móðurborð styður DTS (tala nú ekki um að geta sparað nokkra þúsundkalla ef ég þarf ekki að kaupa spes hljóðkort)


Hef nú ekki ennþá séð neitt hljóðkort sem stiður DTS HD MA eða Dolby TrueHD, og er ekki að sjá 2 HDMI tengi á þessu móðurborði.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 01:03
af magnusgu87
Vá já steikt hjá mér, ég er með sér skjákort sem er með eitt HDMI, en svo virðist sem að ég geti tengt annað HDMI inní kassan og ég hélt að það væri tengt móðurborðinu, prófaði að færa hdmi tengið úr skjákortinu yfir í hitt og myndin fór af sjónvarpinu og ekkert gerðist, þannig að líklega er það bara ekkert tengt og ekkert á bakvið það tengi, þarf að kíkja á innvolsið við tækifæri, nenni því ekki núna. Móðurborðið það hinsvegar hefur 8 audio rásir
Onboard Audio
Audio Chipset
Realtek ALC888
Audio Channels
8 Channels


Þú hinsvegar talaðir um að þú hefðir ekki séð nein hljóðkort með DTS -HD/MA stuðning, ég er nefnilega að skoða það líka ef ég þyrfti að fara útí slík mál. Það er að gerast á þessum þræði og þar bendir Kalli9900 á þetta hljóðkort Þetta er t.d ekki með hdmi en hefur optical og coaxial stuðning.

Og varðandi þetta Onkyo kerfi sem þú hafðir ekki budget í, hvað kostar það?

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 01:08
af svanur08
magnusgu87 skrifaði:Vá já steikt hjá mér, ég er með sér skjákort sem er með eitt HDMI, en svo virðist sem að ég geti tengt annað HDMI inní kassan og ég hélt að það væri tengt móðurborðinu, prófaði að færa hdmi tengið úr skjákortinu yfir í hitt og myndin fór af sjónvarpinu og ekkert gerðist, þannig að líklega er það bara ekkert tengt og ekkert á bakvið það tengi, þarf að kíkja á innvolsið við tækifæri, nenni því ekki núna. Móðurborðið það hinsvegar hefur 8 audio rásir
Onboard Audio
Audio Chipset
Realtek ALC888
Audio Channels
8 Channels


Þú hinsvegar talaðir um að þú hefðir ekki séð nein hljóðkort með DTS -HD/MA stuðning, ég er nefnilega að skoða það líka ef ég þyrfti að fara útí slík mál. Það er að gerast á þessum þræði og þar bendir Kalli9900 á þetta hljóðkort Þetta er t.d ekki með hdmi en hefur optical og coaxial stuðning.

Og varðandi þetta Onkyo kerfi sem þú hafðir ekki budget í, hvað kostar það?


Kostar úti £899.95 gæti trúað kringum 250-300k hér.

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 01:23
af magnusgu87
Oki, svona í fljótu bragði hallast ég nú samt líklega að 100K eyðslu - nema ég slái þessu eitthvað á frest. Ert þú ekki bara hel sáttu með tækið sem þú átt nú þegar?

Og hvað finnst þér varðandi hljóðkortið og snúru-pælingar? Ég veit að optical og coaxial eru í raun sitthvort tæknin til að flytja hljóð en í raun þá er hljóðmunurinn sjálfur aldrei að fara skipta neinu máli snúrulega séð, en hversvegna er hdmi þá ekki bara aðal standardinn fyrir bæði hljóð og mynd. Er einhver munur á optical/coaxial vs HDMI?

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 01:27
af fallen
magnusgu87, þú reddar þér bara skjákorti sem supportar bitstreaming og þá geturðu tekið hljóð og mynd í gegnum sömu snúruna frá tölvunni

Re: Heimabíó 5.1

Sent: Þri 08. Maí 2012 01:30
af magnusgu87
Geturu linkað nokkur dæmi?

Edit: Sjálfur er ég með ATI Radeon HD 5450