Síða 1 af 1

Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 18:32
af guggi69
Er að spá í sjónvarpi bæði fyrir tölvunotkun og líka til að horfa á hvort mæli þið með

http://ormsson.is/default.asp?content=n ... &vara=4979

Eða

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... 4606H#elko


Endilega láttið mig vita vantar virkilega mikla aðstoð

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 18:36
af bulldog
Ég mæli ekki með Ormsson eftir mín viðskipti við þá.

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 18:41
af gutti
Hvað stærð ert leita 30 til 40 eða 42 ? stofu eða herbergi :-k
Og hvað ætla að eyða mikið fjármagn í tv ?

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 19:02
af guggi69
u.þ.b 37"

Eins og er mun það vera í herb enn mun síðar færast yfir í stofu

er að hugsa um 150 þús helst ekki meira

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 19:34
af gutti
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=42VLC4120C hér er 42" LCD FHD sjónvarp á Tilboð: 139.990 á sm.is svo
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42UX30 Tilboð: 149.990 bæði er í sm.is 42" Vreal ProPlasma sjónvarp

42 er allveg nóg fyrir stofu og herbergi

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 19:57
af guggi69
er samt ekki led málið?

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 20:22
af hagur
guggi69 skrifaði:er samt ekki led málið?


Jú.

Athugaðu samt að kynna þér muninn á "Edge LED" baklýsingu og svo "venjulegri" LED baklýsingu. "Edge LED" hafa kosti og galla. Ég er sjálfur með svoleiðis tæki, kostirnir vega þyngra hjá mér. Gallarnir pirra mig lítið.

LED tækin nota svo mikið minna rafmagn líka og hitna lítið sem ekki neitt. Getur verið stór kostur.

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Mán 05. Sep 2011 21:25
af guggi69
er þá ekki http://ormsson.is/default.asp?content=n ... &vara=4979 málið?

Re: Hvort sjónvarpið mæli þið með?

Sent: Þri 06. Sep 2011 00:33
af stebbi23
Allt flott tæki...*

Mæli samt frekar með, Samsung UE40D5005
http://www.samsungsetrid.is/vorur/414/

Sharp tækin eru mjög flott en myndin í þessu Samsung tækjunum er töluvert betri.
Er með þessi tvo tæki til sýnis í BT Skeifunni(Sharpinn og 37" D5005) og munurinn er peninganna virði, komdu bara og sjáðu.

Myndi skoða annað hvort það eða Panasonic tækið fyrir ofan, hoppaði frekar fyrir bíl heldur en að taka Grundig tækið* :( og það sem ég hef séð af svipuðum Philips tækjum hrífur mig ekki, og btw versta fikt tæki í sögu heimsins ef það er með þessari semi kringlóttu Philips fjarstýringu.
Ég á sjálfur C6005 sem er týpa frá því í fyrra og er MJÖG svipað D5005 tækinu, einstaklega ánægður með það og nota Allshare möguleikann mikið og Movie Share(.avi, .wmv, .mkv) virkar allt, held ég hafi ekki prófað neitt annað.