Síða 1 af 1

Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 16:34
af nokiae66
Er að spa í hvort er betra hjá símanum eða vodafone?

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 16:56
af SolidFeather
Hvað þarftu að rugla?

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 16:57
af pattzi
Vodafone í gegnum ljós amino svarti

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 17:02
af tdog
Ljósnet Símans ódýrara en Gagnaveitan...

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 17:04
af pattzi
tdog skrifaði:Ljósnet Símans ódýrara en Gagnaveitan...

sökkar feitt

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Mán 11. Júl 2011 17:10
af wicket
pattzi skrifaði:
tdog skrifaði:Ljósnet Símans ódýrara en Gagnaveitan...

sökkar feitt

Hvernig færðu það út ? Einhver rök bakvið þetta hjá þér eða bara eitthvað öskur út í loftið því að þú annað hvort er ekki á Ljósnetssvæði eða ert argur út í Símann sem fyrirtæki ?

Ég er að nota Ljósnetið og get ekki kvartað. Ódýrara en ADSLið sem ég var með og hraðinn er yndi. Myndi láta Gagnaveituna taka niður boxið sitt ef það væri ekki út í bílskúr hjá mér.

Er með Sagem HD lykilinn þeirra, hann hefur virkað fínt. Er með litla Sagem sem er ekki HD inn í einu herberginu og hann er að virka fínt líka.

Eina vandamálið sem er væntanlega vandamál hjá öllum sem nota HDMI er að Textavarpið kemur ekki með enda pjúra analog merki sem HDMI flytur ekki á milli.

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 21:38
af pattzi
Nei bara hraðara hjá gagnaveitunni er alveg hérna hitt líka í hverfinu

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 21:40
af wicket
Það er jafn hratt fyrir utan upload hraðann sem er 25mbit og það er ódýrara. Þannig að það er erfitt fyrir neytandann að kvarta mikið yfir því :)

Ef þú hefur ekki prófað þjónustuna er erfitt fyrir þig að segja að eitthvað sökkar feitt. Það er óþroskað og ómálefnalegt.

stay classy san diego !

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 21:44
af pattzi
Já bara síminn er ofdýr er lægri símareikningur en þegar við vorum hjá símanum vodafone núna ,

annars borga ég þetta ekki þannig mér er nett sama hvernig net er hérna heima

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 22:05
af tdog
Patti er rétt svo 16 ára og hefur ábyggilega ekki miklar reynslu af símreikningum.

Ef við miðum við megabit/krónur þá er Ljósnetið virkilega hagstætt m.v ADSLið.

Hann býr reyndar ekki í ljósvæddu hverfi og alveg þónokkurn spotta frá símstöðinni.

Wicket, þú getur bara sett loftentscoax í tækið sem tekur við RUV, þannig geturu nýtt textavarpið í sjónvarpinu. Vandamálið er ekki HDMI kapallinn, heldur að textavarpið er ekki flutt yfir Sjónvarp Símans.

Edit, or is it? Ég hef alltaf haldið að það væri bara flutt yfir kóaxinn, eða skjátlast mér?

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 22:07
af pattzi
tdog skrifaði:Patti er rétt svo 16 ára og hefur ábyggilega ekki miklar reynslu af símreikningum.

Veistu hver ég er ?????????
er með ljósleiðara.

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 22:08
af tdog
Jebb. Ég veit að þú ert að nota Ljósleiðara Gagnaveitunnar, það er frekar augljóst.

pattzi skrifaði:Já bara síminn er ofdýr er lægri símareikningur en þegar við vorum hjá símanum vodafone núna ,

annars borga ég þetta ekki þannig mér er nett sama hvernig net er hérna heima

Ég skildi nú ekki fyrri setninguna, en þú virðist hafa mjög miklar skoðannir á því hvaða nettengingu aðrir ættu að fá sér.

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 22:22
af Viktor
Síminn = VOD > Vodafone

Innleggin fyrir ofan svarið mitt er krabbameinið sem er að drepa vaktina.

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 23:31
af wicket
tdog skrifaði:Patti er rétt svo 16 ára og hefur ábyggilega ekki miklar reynslu af símreikningum.

Ef við miðum við megabit/krónur þá er Ljósnetið virkilega hagstætt m.v ADSLið.

Hann býr reyndar ekki í ljósvæddu hverfi og alveg þónokkurn spotta frá símstöðinni.

Wicket, þú getur bara sett loftentscoax í tækið sem tekur við RUV, þannig geturu nýtt textavarpið í sjónvarpinu. Vandamálið er ekki HDMI kapallinn, heldur að textavarpið er ekki flutt yfir Sjónvarp Símans.

Edit, or is it? Ég hef alltaf haldið að það væri bara flutt yfir kóaxinn, eða skjátlast mér?

Textavarpið er klárlega sent í gegn um Sjónvarp Símans, er að nota það í dag í gegnum IPTV afruglara frá Símanum sem tengist með SCART. HDMI boxið frammi í stofu aftur á móti gúdderar ekki textavarpið. Skv. því sem ég hef séð á netinu er Textavarpið pjúra analog dót og HDMI sendir ekkert analog merki og þess vegna dettur þetta út

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Fös 15. Júl 2011 23:44
af tdog
SNILLD! Þá get ég endanlega losað mig við loftnetsgreiðuna og tæmt loftnetsrörin ;)

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Lau 16. Júl 2011 08:06
af audiophile
Ljósnetið er nú bara fokking snilld, sérstaklega fyrir mann eins og mig sem býr á stað sem er ekki með ljósleiðara inn í hús og mun líklega aldrei gerast. Ég er að fá yfir 50mbit í download og 10mbit niður og sjónvarpið virkar hikstalaust í gegnum þetta. Þetta er rúmlega 1000kr ódýrara á mánuði en 12mbit ADSL hjá Vodafone.

Re: Hd ruglara siminn eða vodafone ??

Sent: Lau 16. Júl 2011 15:59
af tdog
Síðan fyrir utan það þá þarf ekki að gera neinar drastískar breytingar hjá manni þegar maður fær sér Ljósnetið. Bara skipta um router. Og jú, splitter í inntakið (helst).