Síða 1 af 1

Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Lau 11. Jún 2011 18:10
af Output
Sælir,

Núna er verið að kaupa nýtt sjónvarp á heimilið þá þarf maður nátturulega að fá ráð hjá ykkur :D Ég er að skoða þetta sjónvarp og lýst ágætlega á það, http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H En eins og ég sagði maður verður að fá ykkar álit. Svo hvernig finnst ykkur um þetta sjónvarp? Gætuð þið kannsku gefið manni ábendingar? :oops: Er enginn tölvugúru eins og þið. Og síðan hef ég eina aðra fljóta spurningu handa ykkur. Afhverju er þetta sjónvarp HD Ready? Ég hélt að HD Ready er þegar það er ekki hærri upplausn en 1024x768. http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=46FE9234B

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Sun 12. Jún 2011 18:23
af Output
Getur enginn hjalpað mer? :(

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Sun 12. Jún 2011 18:35
af worghal
númer eitt í það að byðja um ráð um kaup á hinu og þessu, nefna budget !

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Sun 12. Jún 2011 19:05
af Haxdal
Númer 1 og 2 við Sjónvarpskaup er að kaupa EKKI "HD Ready" tæki, fá sér 1080p eða sleppa því bara.
Númer 3, ekki kaupa sjónvarp með innbyggðum DVD spilara þau eru drasl.

Svo er gott að hafa í huga að það er ekki jafn mikið bögg með Plasma tækin í dag einsog var fyrir nokkrum árum (Burn-in, langur aðlögunartími fyrir litina, etc) svo þau eru orðin fínn kostur fyrir þá sem nenna ekki að standa í veseni (+ litirnir eru mun dýpri en í LCD tækjum), bara hafa í huga við Plasma tækin að það þarf að flytja þau lóðrétt, þ.e. ekki leggja þau niður.

Getur kíkt á Flat Panels og séð hvort þeir séu með review um panelinn á sjónvarpinu sem þú hefur í hyggju að kaupa, eru oft með góðar umfjallanir og hvernig á að fá sem mest útúr panelnum/tækinu.
http://www.flatpanelshd.com/

Er sjálfur að pæla í að fá mér http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42S30Y í vetur, eða ef ég mun hafa efni á því þá fá mér http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42G30 :)

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Sun 12. Jún 2011 20:09
af Hauksi
Í hvað á að nota tækið?
Hvar verður það staðsett?
Hversu langt verður setið frá því?

Hd ready: tæki sem er tilbúið fyrir HD-merki.

Hd ready sjónvarp er með 1366x768 eða 1024x768 upplausn
Hd ready 1080p sjónvarp er með 1920x1080 upplausn og margir kalla "full hd"

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Mán 13. Jún 2011 04:53
af Output
Já..Ég átti kannski að gefa ykkur fleiri upplýsingar :P En verðþakið er bara aðeins undir 200k, Tækið verður bara notað í sjónvarpsgláp og PS3. Það verður setið svona 4-5 metrar frá því. Skil ekki hvað þú meinar með hvar það verður staðsett, þú veist..Það verður bara fyrir framan sófa... :?

Re: Vantar ráð um sjónvarpskaup

Sent: Mán 13. Jún 2011 09:29
af Hauksi
Tækið staðsett..Mun lofta vel um það,sum tæki hitna mikið sér í lagi plasma
Hefur þú stjórn á lýsingunni í sjónvarpsherberginu, ef svo er þá ertu í góðum málum.
speglun=endurkast ljóss frá skjánum minnkar myndgæði verulega.
Mattur eða glossy skjár....Hafi maður ekki stjórn á lýsingunni þá tæki ég mattan.

Ef ég þyrfti að kaupa mér sjónvarp í dag þá tæki ég þetta ef verðið væri max 200.000
Ég sit 2,5-3m frá tækinu.
http://hataekni.is/is/vorur/5000/5020/TX-P42G20E/