Síða 1 af 1
ps3 red light of death
Sent: Fös 13. Maí 2011 20:07
af stjani11
Ég var að pæla hvort einhver hérna hefði lent í þessu með tölvuna sýna og hvort þið hafið þá prófað þetta fix
http://www.youtube.com/watch?v=4_Ic1_TY-GUhefur einhver náð að laga hana svona og hvar er hægt að fá no clean liquid flux á íslandi?
Re: ps3 red light of death
Sent: Fös 13. Maí 2011 20:24
af Jim
Þú ert víst að meina yellow light of death, ekki red : )
Re: ps3 red light of death
Sent: Fös 13. Maí 2011 20:31
af Hargo
Eiga ekki Íhlutir í Skipholti no-clean flux? Finnst það allavega líklegt...
Re: ps3 red light of death
Sent: Fös 13. Maí 2011 21:26
af zulupark
ég lenti í þessu. las mér aðeins til um þetta, skellti mér í byko og keypti hitabyssu, skrúfaði vélina í sundur og reflowaði bæði CPU og GPU. hreinsaði OEM kælikremið, setti arctic silver og svo allt saman uppá nýtt. hefur virkað vel fyrir mig síðan. Tek samt fram að náungi sem ég þekki gerði nákvæmlega það sama en hans viðgerð entist bara í viku (mín er komin á þriðja mánuð og enn í lagi).
Re: ps3 red light of death
Sent: Fös 13. Maí 2011 23:30
af Hj0llz
það er einmitt algjörlega happa/glappa hvað þessar viðgerðir endast..sumir eru heppnari en aðrir
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 00:12
af Hargo
Mín reynsla er að ef þú gerir þetta rétt, notar flux við reflowið, skiptir um kælikrem og setur eitthvað gott stuff í staðinn, beygir spangirnar aðeins meira sem þrýsta heatsinkinu á CPU og GPU þá endist þetta yfirleitt vel.
Mín er komin yfir árið, hef tekið nokkrar fyrir félagana líka og þær hafa allar heppnast vel.
Um að gera hjá þér að prófa þetta og sjá hvernig til tekst. PS3 móðurborðin þola það líka vel að fara inn í ofn ef þú ert smeykur við hitabyssuna. Þá færðu jafnari hita, 10 mín við 185°C á blæstri og þú ert góður.
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 00:37
af stjani11
Hargo skrifaði:Mín reynsla er að ef þú gerir þetta rétt, notar flux við reflowið, skiptir um kælikrem og setur eitthvað gott stuff í staðinn, beygir spangirnar aðeins meira sem þrýsta heatsinkinu á CPU og GPU þá endist þetta yfirleitt vel.
Mín er komin yfir árið, hef tekið nokkrar fyrir félagana líka og þær hafa allar heppnast vel.
Um að gera hjá þér að prófa þetta og sjá hvernig til tekst. PS3 móðurborðin þola það líka vel að fara inn í ofn ef þú ert smeykur við hitabyssuna. Þá færðu jafnari hita, 10 mín við 185°C á blæstri og þú ert góður.
ertu alveg viss með ofninn? gaurinn í videoinu segir að maður eigi alls ekki að gera það
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 10:42
af Hargo
Hef bakað fimm PS3 móðurborð með flux og þær eru enn allar í gangi í dag, þar á meðal mín. Forhitar ofninn í 185°C, skellir svo móbóinu inn í 10mín, slekkur á ofninum, setur rifu á hurðina og lætur kólna.
Mundu bara að taka CMOS batteryið úr
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 11:42
af biturk
f hverju eru menn ekki löngu farnir að skipta um krem og breita heatsinkinu áður en þær ofhitna og deyja
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 14:09
af axyne
Er gæinn í vídeóinu að rífa vélina í sundur ofan á teppi
Re: ps3 red light of death
Sent: Lau 14. Maí 2011 14:09
af worghal
axyne skrifaði:Er gæinn í vídeóinu að rífa vélina í sundur ofan á teppi
því miður já