Síða 1 af 1
Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 15:44
af Krissinn
Er að dreifa sjónvarpsmerki frá Digital Ísland myndlykli í 2 önnur sjónvörp í húsinuí gegnum Coax sjónvarpskapal og það er sitthvor coax kapallinn sem fer í þessi 2 sjónvarpstæki semsagt ekki sami kapall í 2 sjónvarpstæki og það er magnari sem myndlikillinn tengist í áður en hann dreifir merkinu í þessi 2 sjónvarpstæki en samt er myndin sem kemur í hin 2 sjónvarpstækin með línum í og ennþá verri ef ég er ekki með magnarann. Rúv sést samt mjög vel í gegnum útsendinguna sem loftnetið tekur á móti en ekki á rásinni fyrir myndlykilinn (CH 33) Þannig að þetta er pottþétt myndlykilinn. Er einhver annar í sömu stöðu? Hvernig er hægt að laga þetta? Er búinn að fá 2 sinnum nýjan myndlykil og alltaf sama sagan.
Re: Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 15:49
af topas
Eg myndi prufa að breyta útsendingartíðnini á afruglaranum.... default er 33 en þú getru breytt þessu í 35 eða whatever.
Re: Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 16:09
af Krissinn
topas skrifaði:Eg myndi prufa að breyta útsendingartíðnini á afruglaranum.... default er 33 en þú getru breytt þessu í 35 eða whatever.
Já var einmitt að gera það , setti á 44 á lyklinum og myndin er crystal tær núna
Afhverju eru gæðin svona slæm á 33 útgangsrásinni á lyklinum?
Re: Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 18:02
af topas
Stundum þegar kaplar, tengi, magnarar og fl. er orðið lélegt þá bera þeir ekki ákveðna tíðni en önnur tíðni getur verið í lagi. Td. á köplum sem eru úti og verða fyrir vatnsskemmdum þá detta nokkrar rásir út en aðrar eru í lagi. Þá er nóg að stitta kapalinn sem nemur skemdinni og allt virkar. En vegna þess að flestar rásir eru í lagi telja menn oft að kapallinn sé í lagi.
Re: Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 18:04
af Viktor
krissi24 skrifaði:Er að dreifa sjónvarpsmerki frá Digital Ísland myndlykli í 2 önnur sjónvörp í húsinuí gegnum Coax sjónvarpskapal og það er sitthvor coax kapallinn sem fer í þessi 2 sjónvarpstæki semsagt ekki sami kapall í 2 sjónvarpstæki og það er magnari sem myndlikillinn tengist í áður en hann dreifir merkinu í þessi 2 sjónvarpstæki en samt er myndin sem kemur í hin 2 sjónvarpstækin með línum í og ennþá verri ef ég er ekki með magnarann.
Þetta er svo löng setning að ég nenni ekki að lesa hana. Notaðu punkta og kommur.
Re: Léleg myndgæði í gegnum Coax úr Digital Ísland
Sent: Mið 11. Maí 2011 18:08
af Krissinn
Sallarólegur skrifaði:krissi24 skrifaði:Er að dreifa sjónvarpsmerki frá Digital Ísland myndlykli í 2 önnur sjónvörp í húsinuí gegnum Coax sjónvarpskapal og það er sitthvor coax kapallinn sem fer í þessi 2 sjónvarpstæki semsagt ekki sami kapall í 2 sjónvarpstæki og það er magnari sem myndlikillinn tengist í áður en hann dreifir merkinu í þessi 2 sjónvarpstæki en samt er myndin sem kemur í hin 2 sjónvarpstækin með línum í og ennþá verri ef ég er ekki með magnarann.
Þetta er svo löng setning að ég nenni ekki að lesa hana. Notaðu punkta og kommur.
Þetta er komið í lag þannig að þú þarf ekki einu sinni að eyða tíma í að lesa hana
Fann útúr þessu sjálfur er búinn að svör.