Síða 1 af 1
Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 15:57
af FriðrikH
Er aðeins að velta fyrir mér sjónvörpum og lýst í fljótu bragði vel á
þettaÉg er ekki búinn að fara að horfa á það, ætla að reyna að taka rúntinn í vikunni, en hvaða tæki ca. á þessu verðbili, upp í 200 þús mundu vaktarar mæla með að ég liti á.
Sjónvarpið er ætlað til sjónvarpsgláps og PS3 spilunar.
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:26
af MatroX
þetta tæki er alveg hrikalega flott. félagi minn fékk sér svona og myndin í þessu tæki er alveg svakaleg. þetta er svo hreint. bjart tæki og með svo skýrum litum mæli með þessu
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 16:49
af GuðjónR
Ég held þú fáir ekki betra tæki fyrir þennan pening.
Tært og skýrt sjónvarp.
Eina sem mér finnst skrítið við sjónvarpið mitt er að birtan rokkar doldið upp og niður, t.d. ef það er viðtalsþáttur og myndavélin fer af A yfir á B og koll af kolli þá rokkar birtan upp og niður eins og það sé einhver "óður" að fikta í dimmer í sjónvarpssal.
Ég spurði viðgerðarmann hjá SM út í þetta og hann sagði algengt að fólk kvartaði yfir þessu.
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 17:00
af Hvati
GuðjónR skrifaði:Ég held þú fáir ekki betra tæki fyrir þennan pening.
Tært og skýrt sjónvarp.
Eina sem mér finnst skrítið við sjónvarpið mitt er að birtan rokkar doldið upp og niður, t.d. ef það er viðtalsþáttur og myndavélin fer af A yfir á B og koll af kolli þá rokkar birtan upp og niður eins og það sé einhver "óður" að fikta í dimmer í sjónvarpssal.
Ég spurði viðgerðarmann hjá SM út í þetta og hann sagði algengt að fólk kvartaði yfir þessu.
Sjónvarpið stillt á Dynamic contrast ratio kannski?
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 18:23
af PhilipJ
Ég á 32" útgáfuna af þessu sjónvarpi og er mjög ánægður með myndgæðin... innbyggði media spilarinn mætti samt vera aðeins betri, .mkv supportið er ekki mjög gott. Og svo er ekki support fyrir external subtitles.
Og svo er ein spurning til þeirra sem eiga sambærilegt sjónvarp frá Philips... Sjónvarpið mitt hefur verið að gefa frá sér brakhhljóð af og til. Sama hljóð og kemur þegar maður kveikir á sjónvarpinu og slekkur, líklega út af því að plastið er að þenjast út/dragast saman. Þetta hljóð getur verið svolítið pirrandi þegar það kemur oft. Ég hef ekki tekið eftir þessu hljóði í öðrum flatskjám (nema þegar kveikt er eða slökkt). Hafið þið tekið eftir þessu eða ætti ég að láta tékka á þessu?
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 22:09
af FriðrikH
Hefur einhver reynslu af
þessu
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Sun 01. Maí 2011 22:21
af GuðjónR
Hvati skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég held þú fáir ekki betra tæki fyrir þennan pening.
Tært og skýrt sjónvarp.
Eina sem mér finnst skrítið við sjónvarpið mitt er að birtan rokkar doldið upp og niður, t.d. ef það er viðtalsþáttur og myndavélin fer af A yfir á B og koll af kolli þá rokkar birtan upp og niður eins og það sé einhver "óður" að fikta í dimmer í sjónvarpssal.
Ég spurði viðgerðarmann hjá SM út í þetta og hann sagði algengt að fólk kvartaði yfir þessu.
Sjónvarpið stillt á Dynamic contrast ratio kannski?
Dynamic contras > Maximum
Dynamic backlight > Off
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Mán 02. Maí 2011 11:40
af stebbi23
Sjálfur myndi ég ekki fara í tæki þar sem er greinilegt ekki að höndla birtustillingar vel. Philips eru góð tæki nema þegar þú ferð í ódýru týpurnar hjá þeim því þá færðu crappy panel og sýnist að svörin á þessum þræði séu nokkuð góð sönnun á því.
Annars keypti ég mér 37" af þessu tæki um daginn og er drullu ánægður með það.
http://www.samsungsetrid.is/vorur/150/http://www.bt.is/vorur/vara/id/11720http://www.bt.is/vorur/vara/id/14971
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Mán 02. Maí 2011 15:25
af njordur
Ég get alveg tekið undir þessi Samsung meðmæli hérna fyrir ofan, hef núna átt 2 Samsung tæki. Var með 40" LCD tæki keypt 2006 og get ekki sagt neitt slæmt um það, nema kannski að það var bara 720P
Svo fékk ég mér í haust eitt stykki svona
http://www.samsungsetrid.is/vorur/176/ Frábært tæki að öllu leiti, hef ekki enn lent í video formatti sem ég get ekki spilað á því í gegnum networkið.
Aðeins stærra og dýrara tæki, en þessi tæki deila þó nokrum fídusum eins og usb og network afspilun sem virkar mjög vel. Og ef þú átt Samsung Android síma þá geturu notað hann sem fjarstýringu yfir networkið. Wifi á símanum og fast tenging á sjónvarpinu.
Phillips tækinn hafa alltaf skilað sínu, sérstaklega fyrir þennan verðmiða, og ef þú ert ekki tilbúinn að fara upp um verð flokk og fá þér þetta Samsung tæki þá þarftu ekkert að vera hræddur við að skella þér á Phillips tækið.
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Fim 05. Maí 2011 00:06
af FriðrikH
Hvað með þetta sett
http://budin.is/vara/lg-42le5300-100hz-led-lcd-tv/31906Maður er samt smá smeykur að versla sjónvarp af netverslun. Er budin að standa sig vel?
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Fim 05. Maí 2011 19:23
af FriðrikH
Nú er ég líka að velta svolítið fyrir mér með HDMI tengin. Mér leist nokkuð vel á nokkur sjónvörp sem eru bara með 2 HDMI tengjum, er það ekki full-lítið?
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Fim 05. Maí 2011 19:45
af blitz
FriðrikH skrifaði:Nú er ég líka að velta svolítið fyrir mér með HDMI tengin. Mér leist nokkuð vel á nokkur sjónvörp sem eru bara með 2 HDMI tengjum, er það ekki full-lítið?
Þegar þú ert með gott sjónvarp er næsta stig að fá sér alvöru heimabíó.
Standard heimabíómagnari er með amk 4x HDMI tengi + 1x sem fer í sjónvarpið þannig að það er ekki vesen..
Að rúlla um á flottu sjónvarpi en ekki með heimabíó er eins og að rúlla um á nýjum Benz á stálfelgum..
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Fös 06. Maí 2011 09:14
af FriðrikH
Eftir talsverðar uppflettingar og vangaveltur held ég að ég smelli mér á eitt stykki Panasonic G20
http://www.hataekni.is/is/vorur/5000/5020/TX-P42G20E/ er þetta ekki bara skíturinn?
Re: Sjónvarpspælingar
Sent: Fös 06. Maí 2011 11:19
af Hauksi
Þetta er lang besta 42" tækið í dag fyrir hreyfimynd sem kostar minna en 200.000
Þú ert búinn að lesa þér til um það, gallarnir í tækinu eru nokkrir..
Sumir hafa hætt við kaup þeirra vegna, meðan aðrir taka ekki eftir þeim.
Af þessum tækjum sem þú linkar á þá er G20 best nema
fyrir kyrrmyndir.
Öll sjónvörp eru með galla og sum eru klárlega gallagripir.