Síða 1 af 1
TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 16:45
af REX
Var að rekast á það að verðið á 50" G20 úti er dottið niður í um 650 pund (120 þús)
Væri ég til í að búa í Bretlandi núna...
Hef aldrei keypt sjónvarp að utan, er maður bara hugsanlega að fara lenda í veseni með það eða? Ef sjónvarpið er t.d. eitthvað gallað og svo náttúrulega upp á ábyrgð.
120.000
+9.000 (tollur)
+32.000 (vörugjald)
+40.000 (vsk)
________________
=201.000
42 tomman hér á landi var að enda við að lækka í 200 þús kallinn og 46" er á 250 þús...
http://www.currys.co.uk/gbuk/panasonic- ... tor=AL-233
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 17:06
af Prags9
Alltaf ákveðið risk varðandi ábyrgð og sendingu.
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 18:18
af bulldog
upp með veskið !!!!!
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 19:20
af Tiger
Gleymiru ekki sendingarkostnaði til Íslands og í rauninni þeirri staðreynd að þeir senda ekki til Íslands......
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 19:28
af Hauksi
Bara vesen!
Þú ættir að fá breska vsk-inn endurgreiddann.
Ekki gleyma sendingarkostnaði og tryggingu..eftir það verður heildarverðið...mun mun hærra.
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Sun 17. Apr 2011 19:51
af REX
Já hélt það væri hægt að senda þetta út um allt. Get gleymt þessu. Rugl verð samt.
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Fim 21. Apr 2011 22:41
af kubbur
til að koma í veg fyrir ábyrgðarvesen þá er örugglega hægt að plata einhverja búð til að panta þetta fyrir þig, þeir taka samt örugglega smávegis fyrir
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Fim 21. Apr 2011 22:53
af worghal
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Fim 21. Apr 2011 23:13
af Tiger
Þetta er bara 720p en hitt er 1080p sem er algjör lágmark á svona stóran skjá myndi ég segja, allavegana fyrir minn smekk.
Re: TXP50G20 á £649 - Langar í!
Sent: Fös 22. Apr 2011 10:23
af REX
Snuddi skrifaði:Þetta er bara 720p en hitt er 1080p sem er algjör lágmark á svona stóran skjá myndi ég segja, allavegana fyrir minn smekk.
og í rauninni ekki 720p sjónvarp er það nokkuð, því þótt það bjóði upp á rúmlega 720 lóðrétta pixla þá er það ekki að gefa frá sér nema 1024 lárétta og 720p myndir eru flestar með 1280 resolution þar ef ég man rétt.