Síða 1 af 1

Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 17:42
af kristinnhh
Sælir strákar . Heyrðu ég keypti þennan flakkara i gær í Tölvutek á 33 þús og ég byrjaði að henda ´dóti inná hann og svoleiðis og fjarsteringinn virkar ekki á flakkarann og það er lokað hjá þeim í dag og ég er langt
frá því að vera sáttur með þetta. Ætlaði að liggja uppí rumi alla þessa helgi.. Hefur einhver lent í einhverju slíku hérna ? Það er einsog fjarsteringinn bara sé biluð eða einhvað slíkt..

Öll hjálp vel þeginn

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 17:43
af Oak
heimskuleg spurning en búinn að prufa nýjar rafhlöður ?

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 17:46
af reyndeer
Snýrðu ekki fjarstýringunni örugglega rétt? :snobbylaugh djók! :)

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 17:52
af GullMoli
Snúa batteríin alveg 100% rétt?

Annars geturðu prufað að taka myndavél (í síma t.d.) og beina að perunni sem er í fjarsteringunni, ýttu svo á takka og tékkaðu hvort það komi ljós frá farsteringunni (infared ljós sem myndavélin ætti að picka upp). Þú gætir þurft að stilla myndavélina á einhverja næturstillingu þó ég efist um það.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 19:08
af Drone
Ef þú tengir 373T við sjónvarp þá þarftu fyrst að kveikja á flakkaranum með því að ýta á takka aftan á hýsingunni, þá færðu blátt ljós framan á hýsinguna, svo þarftu að ýta á power takkann á fjarstýringunni til þess að hann ræsi sjónvarpsvalmynd.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 19:26
af kristinnhh
heyrðu ég er buinn að prufa þetta allt strákar kemur bara ekkert ljós á fjarsterínguna.. er hún ekki bara gölluð eða ónýt eða???

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 19:47
af kubbur
ef það kemur ekkert ljós frá henni í gegnum myndavélar þá er hún væntanlega gölluð eða þá að þú sért með ónýt batterí

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 20:47
af kristinnhh
Það kemur ekki neitt ljós frá henni ! Búinn að prufa 4x sett af batteríum .. Ég verð víst að fara niður í Tölvutek í fyrramálið og láta þá heyra það.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 20:49
af FreyrGauti
Prufaðu að taka batteríið úr, taka lítið flatt skrúfjárn og ýta járninu sem batteríið fer á inni í fjarstýringunni aðeins upp...gæti verið að það sé ekki nógu ofarlega til að batteríið nái sambandi.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Sun 27. Mar 2011 21:10
af kristinnhh
Heyrðu ég er búinn að prufa það og það virkaði heldur ekki . Takk fyrir alla hjálpina .. Enn þessi fjarstýring er greinilega ekki í lagi.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Mán 28. Mar 2011 04:17
af kubbur
Samt ekkert þeim að kenna að fjarstyringin sé biluð

Ættir að beina þinni reiði að argos

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Mán 28. Mar 2011 11:27
af Plushy
kubbur skrifaði:Samt ekkert þeim að kenna að fjarstyringin sé biluð

Ættir að beina þinni reiði að argos


Fylgdi fjarstýringin ekki með flakkaranum?

ef hún gerði það og er biluð ættu þeir einfaldlega að láta hann fá nýja.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Mán 28. Mar 2011 11:29
af Daz
Plushy skrifaði:
kubbur skrifaði:Samt ekkert þeim að kenna að fjarstyringin sé biluð

Ættir að beina þinni reiði að argos


Fylgdi fjarstýringin ekki með flakkaranum?

ef hún gerði það og er biluð ættu þeir einfaldlega að láta hann fá nýja.


Það er samt ekki seljandanum að kenna. Ekki nema þú ætlist til þess að seljendur prófi allar sínar vörur áður en þær eru seldar. Ef seljandi neitar að veita ábyrgðarþjónustu þá er það allt annað mál, en svo virðist sem ekki hafi reynt á það enþá.

Re: Argosy 1080P HV373T 1.5 Tb ( Keypt i Tölvutek í gær)

Sent: Mán 04. Apr 2011 12:39
af stebbi23
kristinnhh skrifaði:Það kemur ekki neitt ljós frá henni ! Búinn að prufa 4x sett af batteríum .. Ég verð víst að fara niður í Tölvutek í fyrramálið og láta þá heyra það.


mæli frekar með að vera bara kurteis og ég skal lofa þér að þú færð miklu betri þjónustu.
Ef að kúnnar eru með kjaft og frekju verður það yfirleitt til þess að starfsfólk nennir minna að aðstoða og vera hjálplegt.