Síða 1 af 1
P2P TV og HTPC ....
Sent: Mán 21. Mar 2011 21:59
af hagur
Sælir,
Eflaust margir hérna sem nýta sér ýmiskonar P2P TV þjónustur (Adthe.net, SopCast, TVU, Veetle etc.) til að horfa á t.d fótboltaleiki á netinu, er þaggi annars?
Þekkið þið hvaða lausnir eru til svo að þetta verði skemmtilegra í notkun með HTPC tölvu? Mér finnst glatað að þurfa að fara á t.d MYP2P.eu, rífa upp lyklaborð og mús og rýna í sjónvarpið í stofunni, smella á link, ræsa sopcast etc. etc. Er ekki til eitthvað meira streamlined interface á t.d SopCast svo það sé þægilegra að nota þetta með HTPC og fjarstýringu?
Allar uppástungur vel þegnar.
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 17:02
af hagur
Er búinn að finna þetta ... OnlineVideos plugin fyrir MediaPortal. Supportar fleiri tugi online video síðna og einnig MyP2p.eu
Snilld!
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 17:19
af bixer
ég er með svipaðar pælingar, geturu komið með betri lýsingu á hvernig. annars hef ég alltaf verið að nota xbmc fyrir allt. veistu um eitthvað svona fyrir xbmc?
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 17:43
af blitz
Er að setja saman HTPC eins og er, hvernig er setupið þitt hagur? Ertu búinn að pósta því áður?
Tölvan mín verður
AMD E350
4gb DDR3
500gb Samsung 2.5" (hræódýr, annars er streymt af 4tb server)
Wifi N
Antec ISK100 eða eða Wesena ITX
Logitech Harmony + Gamepad (f. emulator) + Mediakeyboard
c.a. 50k
XBMC Live eða mediaportal?
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 18:09
af codec
Hægt að komast í stream frá Sopcast, hægri smell á gluggann, velur properties, þar er að finna location: t.d.
http://127.0.0.1:8902/streamnotar þá streamið svona:
http://127.0.0.1:8902 Ef menn nota ps3mediaserver minnir mig að sé til plugin til að streama af netinu man ekki hvað það heitir.
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 18:55
af kjarrig
Hagur,
Hvernig settir þú þetta upp í OnlineVideos í MediaPortal?
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Mið 23. Mar 2011 19:51
af hagur
Ég hef ekki póstað setup-inu mínu hingað, nei ... en kannski að ég geri það við tækifæri.
Stutta útgáfan er svona:
Hardware:
E5200 Örgjörvi @ 2.7GHz
2GB Minni
Gigabyte móðurborð, man ekki týpuna nákvæmlega
500GB diskur
Hauppauge WinTV sjónvarpskort tengt við afruglara (notað til að streama sjónvarp o.fl. í aðrar tölvur á heimilinu með SageTV)
ATI Radeon HD3850 skjákort tengt með HDMI og Component við heimabíómagnara
USB-UIRT (til að stýra tölvunni með fjarstýringu og gera tölvunni kleift að stýra græjum)
Hugbúnaður:
WinXP eins oger
MediaPortal 1.1.3 með slatta af plugins (OnlineVideos, MyTvSeries, MyMovies ofl.)
EventGhost (Til að mappa IR skipanir frá Harmony One yfir í keyboard inputs fyrir MediaPortal)
SageTV server
Kjarrig:
Ég sótti bara nýjustu útgáfu af OnlineVideo plugininu hingað:
http://forum.team-mediaportal.com/onlin ... 1-a-57467/Setti inn DirectShow filter fyrir SopCast:
http://download.sopcast.cn/download/SopFilter.zipSetti inn viðbót frá notandanum "Brownard", sjá neðsta póst hér:
http://forum.team-mediaportal.com/onlin ... ndex2.htmlSvo fer maður í config-ið fyrir OnlineVideos og addar nýju site-i, úr dropdowninu velur maður svo MyP2P, sbr. póstnúmer 2 hérna:
http://forum.team-mediaportal.com/onlin ... ndex3.htmlNotabene, að ég hef ekki prófað þetta alla leið ennþá, þ.e að actually spila eitthvað en það virkar a.m.k að browsa alla flokkana og sjá þá leiki sem eru væntanlegir o.sv.frv. Skv. öðrum notendum á spjallinu á þetta að virka fínt.
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Fim 24. Mar 2011 12:47
af kjarrig
Hagur, takk fyrir þetta, prófa þetta þegar ég hef tíma. Tók eftir að þú notar MyMovies í MediaPortal, hefur þú ekki skoðað MovingPictures plugin-ið? Margfalt betra finnst mér. Einnig aðlagaði ég til scraper að þegar þú sækir kvikmynd að þá er tengst inná kvikmyndir.is, ef myndin finnst þar, þá færðu söguþráðinn á íslensku og einnig íslensku aldurstakmörkunina.
með kveðju,
Kjartan
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Fim 24. Mar 2011 14:02
af hagur
Sæll,
Jú, held að ég hafi ruglast á nöfnum þarna, rugla saman MyTvSeries og MyMovies. Nota einmitt MovingPictures fyrir kvikmyndirnar
Hvernig aðlagaðirðu það? Þurftirðu að forrita eitthvað eða er þetta bara config?
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Fim 24. Mar 2011 20:41
af kjarrig
Mín útgáfa:
http://forum.team-mediaportal.com/movin ... per-90897/Athugaðu bara að hafa þetta efst á listanum yfir datasources.
Svo þýddi ég MovingPictures, ætti að vera í setupi frá þeim. Ef þér vantar og vilt fá þýðinguna, þá get ég sett hana hérna.
Kjartan
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Fim 24. Mar 2011 20:55
af blitz
Hvað hefur mediaportal umfram XBMC?
Re: P2P TV og HTPC ....
Sent: Fim 24. Mar 2011 21:17
af hagur
Líklega ekki neitt sérstakt, enda mjög svipuð "tól".
Ég persónulega er búinn að nota MediaPortal í mörg ár og er bara orðinn mjög vanur því. Erfitt að breyta útaf vananum.
Hef prófað Boxee og XBMC en endaði alltaf aftur í MP.