Síða 1 af 1

Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:12
af topas
Sæl

Mig vantar ca. 20 m. langa HDMI framlengingarsnúru. Hvar fæ ég svoleiðis á góðu verði? Þetta þarf annaðhvort að vera framlenging eða DVI -> HDMI

Kv, Topas

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:16
af biturk
http://www.ortaekni.is/vorulisti/kaplar/skjakaplar-dvi/pnr/185

þetta er það lengsta sem ég fann, samt dáldið dýrt

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:19
af jodazz

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:21
af Glazier
Þegar ég var að skoða HDMI snúrur fyrir örfáum mánuðum þá var Kísildalur með ódýrasta verðið..
En 20m löng HDMI snúra er að mig minnir lágmark 20.000 kr. og verðið á metrann lækkar ekki eftir því sem snúran verður lengri, þvert á móti þá hækkar verðið bara ef eitthvað er.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:21
af topas
topas skrifaði:Sæl

Mig vantar ca. 20 m. langa HDMI framlengingarsnúru. Hvar fæ ég svoleiðis á góðu verði? Þetta þarf annaðhvort að vera framlenging eða DVI -> HDMI

Kv, Topas


Shitt maður, já þetta er soldið dýrt.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:27
af jodazz
Sirka 6k kominn hingað þessi á Ebay. Skil ekki verðlagningu á HDMI snúrum hérna á skerinu.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:29
af dori
Ég myndi leita annarra leiða við að bera merkið þessa leið ef þú ert með svona stórar fjarlægðir í huga. Eitthvað í áttina að þessu.

EDIT:
jodazz skrifaði:Sirka 6k kominn hingað þessi á Ebay. Skil ekki verðlagningu á HDMI snúrum hérna á skerinu.

HDMI snúra og HDMI snúra er ekki það sama, merkið virkilega tapast eða verður verra á svona langri leið nema snúran sé góð.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:30
af halli7

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:31
af topas
jodazz skrifaði:Sirka 6k kominn hingað þessi á Ebay. Skil ekki verðlagningu á HDMI snúrum hérna á skerinu.


Já, ekki spurning um að panta þetta sjálfur ef verðlagningin svona hér á landi. Það er frekar súrt ef snúran er dýrari en græjan sem á að tengja :)

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:40
af topas
Reyndar gæti ég græjað þetta líka með DVI snúru. Þannig að ef þær fást í svona lengdum á þokkalegu verði fer ég í það.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fim 17. Feb 2011 23:45
af dori
Skoðaðu þetta. Fer smá yfir hluti eins og "rýrnun" á merkinu og svona...

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fös 18. Feb 2011 11:49
af Amything
Svo er þetta smart (ekki prófað samt): http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1350

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fös 18. Feb 2011 13:41
af pattzi
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=786

ég á svona 15m


4.995 kr mjög fín snúra:D

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fös 18. Feb 2011 21:44
af Holy Smoke
Ég myndi mæla nákvæma lengd vegna þess hvað lengdir geta leynt svaðalega á sér. Ég sirkaði út að ég þyrfti bara 3m kapal (og var búinn að panta hann) en þegar ég mældi þá voru það 5. Ef þú þarft bara 15m kapal þá er hann hér um bil gefins á 5þús kall en annars þarftu að standa í mun meira veseni að fá 20m kapal að utan.

Annars færðu 20m kapla á 20-25 pund á breska Amazon.

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fös 18. Feb 2011 23:51
af topas
Frábært :) Takk fyrir þetta. Var búinn að finna á 13.000.... 5.000 hljómar mun betur :)

Re: Lööööööng HDMI snúra - Hvar fæ ég hana?

Sent: Fös 18. Feb 2011 23:55
af kjarribesti
Amything skrifaði:Svo er þetta smart (ekki prófað samt): http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1350

ég færi örugglega í þetta ef ég væri að þessu