Síða 1 af 1

Heyrnartól

Sent: Mán 07. Feb 2011 22:02
af Daði29
Er að spá í að fara fjárfesta mér í nýjum heyrnartólum. Veit bara ekkert hvað ég á að fá mér, Sennheiser samt trúlega. Er ekkert ógurlega kröfuharður á þetta vill bara góðan hljóm. Eitthvað á 5-10 þús væri flott, 10-15 max.

Þetta er það helsta í boði á Íslandi í dag:

Sennheiser HD 201 - Kosta 3900 kr
Mynd

Sennheiser HD 202 - Kosta 4900 kr
Mynd

Sennheiser HD 205 - Kosta 7900 kr
Mynd

Philips SHP2000 - Kosta 3200 kr
Mynd

Sennheiser RS 120 (þráðlaus) - Kosta 9900 kr
Mynd

Philips SBCHC8440 (þráðlaus) - Kosta 9900 kr
Mynd

Re: Heyrnartól

Sent: Mán 07. Feb 2011 22:05
af HelgzeN
Farðu í Sennheiser 515 eða 555 miklu miklu betra ..

Re: Heyrnartól

Sent: Mán 07. Feb 2011 22:32
af dori
Daði29 skrifaði:Er að spá í að fara fjárfesta mér í nýjum heyrnartólum. Veit bara ekkert hvað ég á að fá mér, Sennheiser samt trúlega. Er ekkert ógurlega kröfuharður á þetta vill bara góðan hljóm. Eitthvað á 5-10 þús væri flott, 10-15 max.
Mín ráðlegging (er smá audiophile) er að fá þér alls ekki budget þráðlaus heyrnartól nema það sé virkilega það sem þú þarft. Þar sem þú setur þau og einhver með snúru ætla ég bara að byrja á að strika það útaf listanum hjá þér. Það eru einhverjir hérna að selja notuð HD 555 á ~10 kall. Svo hafa HD 595 verið að fara notuð á ~15 kall.

Ég myndi reyna að fá önnur þeirra. Þú sérð ekki eftir því. Heyrnartól mega alveg vera smá notuð (svo fremi sem þau eru ekki illa farin) án þess að það bitni á gæðunum.

EDIT: Hérna eru tveir að reyna að selja einum HD 555 á ~10 kall. Talaðu við þá og reyndu að finna út hvort annar þeirra á þau ennþá. Það væri algjörlega bang for the buck fyrir þig.

Re: Heyrnartól

Sent: Mán 07. Feb 2011 22:35
af Daði29
Eða 598, aðeins of flott, verst að maður á ekki pening fyrir svona græju.

Mynd

Re: Heyrnartól

Sent: Lau 12. Feb 2011 14:10
af astro
Daði29 skrifaði:Eða 598, aðeins of flott, verst að maður á ekki pening fyrir svona græju.

Mynd

Ég keypti mér svona í fríhöfninni. Fyndin saga, ég fór í Elkó til þess að kaupa mér HD515 Gamer, borgaði 13,***Kr,- fyrir þau,
ég opnaði kassan og sá að þetta voru bara venjuleg HD515 og fór til baka og kvartaði og hann reyndi að koma mér í skilning um að þetta væri nýja týpan og nýja lúkkið.
Sem er bara alls ekki rétt, en ég skila vörunni og fæ endurgrett að fullu vegna þess að hann seldi mér vitlausa vöru. Síðan sé ég þessi HD598 hangandi á 22.000Kr,- ca.
Var mikið að skoða þessi heyrnartól heima en fann þau ekki undir 40.000kallinn.. úff ég var ánægður! En þau eru ekki á Elko fríhöfn heimasíðunni.. skrítið :l

Re: Heyrnartól

Sent: Lau 12. Feb 2011 16:35
af Daði29
astro skrifaði:

Eru þetta ekki hörku heyrnartól? Rauninni 595 bara flottari?

*edit: Er bara hægt að kaupa þau við brottför þarna í fríhöfninni eða ættu þau líka að vera til komu-megin?

Re: Heyrnartól

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:00
af dori
Daði29 skrifaði:Eru þetta ekki hörku heyrnartól? Rauninni 595 bara flottari?

*edit: Er bara hægt að kaupa þau við brottför þarna í fríhöfninni eða ættu þau líka að vera til komu-megin?

Það er annar driver í þessum en 595 og svo er byggingin aðeins öðruvísi og þ.a.l. skila þau hljómnum aðeins öðruvísi frá sér. Ég veit hins vegar ekkert um hvor hljóma betur...

Re: Heyrnartól

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:05
af KrissiP
Ég á HD 202 og nota þau í leikjum og bara tónlist almennt
Þau hafa reynst mér mjög vel, hljóðeinangra vel og eru ódýr svo rosalega góður bassi í þeim :megasmile

Re: Heyrnartól

Sent: Sun 13. Feb 2011 00:24
af Fylustrumpur
Alls ekki fá þér Sennheiser 120. Það er mögulega óþægilegustu heyrnatól í heimi. Fáðu þér frekar 130.