Síða 1 af 1
Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Mán 03. Jan 2011 23:57
af jardel
Er með mjög stórt vandamál, ég er með plasma 42" skjá
http://simnet.is/plasma/skjaupplys.htm það er hvorki hdmi né skart göt á þessu tæki og það þarf að tengja sér hátalara við þessa skjái, vandmálið er það ég veit ekkert hvaða snúru ég get notað og ég er búinn að fara í 10 ónafngreindar raftækja verslanir hér á landi og enginn veit neitt. Hérna er mótakarinn
http://www.vodafone.is/sjonvarp/myndlyklar/amino110 og hérna eru tæknilegar uppl. um hann
http://www.vodafone.is/hugbunadur/leidb ... _FINAL.pdf eru einhverjir sérfræðingar hérna sem gætu hjálpað mér með þetta, yrði mjög þakklátur. Vodafone geta ekkert gert.
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:21
af AntiTrust
Ég get ekki betur séð en að það sé S-Video tengi á báðum tækjum. Getur notað það.
Svo verðuru bara að splæsa í magnara og hátalara eða ódýrt heimabíókerfi til að tengja afruglarann við til að fá hljóð.
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:24
af jardel
nei því miður það er því miður ekkert s video á amino mótakaranum
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:31
af snaeji
Búinn að reyna átta mig á þessu en sýnist í raun ekki vera nein leið til þess að fá þetta til að smella saman
Eða er AV útgangur í sjónvarp (5) ekki s-video ?
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:34
af AntiTrust
jardel skrifaði:nei því miður það er því miður ekkert s video á amino mótakaranum
Hm, ertu viss? Skv. manufacturer specifications er S-Video og Composite tengi meðal annars. Get ekki betur séð en þetta tengi á myndinni númer 5 sé S-Video? Annaðhvort það eða e-ð proprietory tengi.
Annars er líklega eina í boði fyrir þig að kaupa þennan Tuner aukalega frá þeim sem selur monitorana og tengja þannig.
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:43
af Orri
jardel skrifaði:nei því miður það er því miður ekkert s video á amino mótakaranum
Þú verður að fara niður í Vodafone og fá hjá þeim S-Video snúruna.
S-Video snúran er með S-Video tengi sem og Composite (rautt, gult og hvítt) tengi á öðrum endanum en eitthvað spes tengi á hinum endanum sem plöggast í Amino tækið.
Er með svona snúru við mitt Amino þar sem sjónvarpið getur ekki áframsent hljóðið í heimabíóið og þarf því að vera með hljóðið beintengt í heimabíóið og svo S-Video í sjónvarpið.
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:45
af jardel
þetta er av útgangur ekki svideo útgagnur á amino mótakarnum
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:47
af andribolla
http://www.computer.is/vorur/5621/http://www.computer.is/vorur/3250/Gætiru ekki Bjargað þessu með þessu Mega Mixi ?
eða bara opna Scart tengið og lóða inn á s-vidio endana í kaplinum ?
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:50
af Orri
jardel skrifaði:þetta er av útgangur ekki svideo útgagnur á amino mótakarnum
Þessi S-Video snúra sem þú færð hjá Vodafone er á öðrum endanum með S-Video og Composite eins og ég skrifaði áðan, en með svona tengi á hinum endanum sem tengist aftan í Amino boxið.
- amino110-rearv.jpg.jpeg (68.05 KiB) Skoðað 1085 sinnum
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 00:57
af benson
Orri skrifaði:jardel skrifaði:þetta er av útgangur ekki svideo útgagnur á amino mótakarnum
Þessi S-Video snúra sem þú færð hjá Vodafone er á öðrum endanum með S-Video og Composite eins og ég skrifaði áðan, en með svona tengi á hinum endanum sem tengist aftan í Amino boxið.
amino110-rearv.jpg.jpeg
Þetta er
mini-DIN10 tengi sem kemur default með scart. Þú ættir að geta fengið mini-DIN10 í s-video/composite/rca eða mini-DIN10 í component/rca í Vodafone Skútuvogi. Við höfum notað annað hvort til þess að leysa svona vandamál. Aftur á móti hefur verið vesen með einstaka NTSC skjái/tv frá USA sem birta litina ekki rétt.
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 01:00
af jardel
ég þakka ykkur kærlega fyrir hjálpina ég skoða þetta á morgun hjá vodafone það er vonandi að þeir eiga þessa snúru til. ég væri til að sjá mynd af þessari snúru á netinu er séns að googla hana? hvað heitir hún?
Re: Er hægt að tengja amino 110 við plasma tæki frá simnetplasma
Sent: Þri 04. Jan 2011 03:38
af axyne
það er líka component út á þessum amino lyklunum.
Tengdi svona einu sinni við Bose kerfi, þar component fer inná video tengibretti og hljóð inná sjálfan spilarann.
Klippti á snúruna og lóðaði Component og hljóð framlenginu.
Hef oft þurft að framlengja í þessum helvítis kappli
þá var reyndar ekkert í boði hjá Vodafone, prufaði að athuga þangað fyrst.