Síða 1 af 1
Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:17
af urban
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405Hsemsagt þetta tæki.
vita menn eitthvað hvernig þessi tæki eru að reynast ?
þar sem að þetta er á þrusu tilboði þá er freystandi að skella sér á þetta.
síðan mega menn koma með tillögur af sjónvörpum
FULLHD 40"+
verðbil, segjum bara upp að 260 þús
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:26
af TheVikingmen
Philips sjónvörp hafa verið að koma vel út finnst mér.
Gott verð fyrir þennan grip ölluheldur.
En ég mæli með LG sjónvarpi
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:29
af AntiTrust
Hörkutæki, þessu nýju allavega sem ég hef haft kynni af.
Þessi stærð, þessi upplausn, þetta merki, þessi tengi og 100mhz - á þessu verði?
Ekki spurning um að þetta séu geðveik kaup.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:30
af Halli25
Systa fékk sér þetta tæki og líkar vel við það, ég smellti venjulegum flakkara við það með MKV og það spilaði það léttilega
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:33
af audiophile
Lítur út fyrir að vera mjög gott tæki.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:34
af urban
AntiTrust skrifaði:Hörkutæki, þessu nýju allavega sem ég hef haft kynni af.
Þessi stærð, þessi upplausn, þetta merki, þessi tengi og 100mhz - á þessu verði?
Ekki spurning um að þetta séu geðveik kaup.
þetta var einmitt nákvæmlega það sem að ég hugsaði.
vildi eiginlega bara fá einhvern annan til þess að benda á það
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 13:13
af stebbi23
Flott tæki. Mæli með að þú farir samt og fáir að sjá mynd með Pixel Plus HD off.
Man þegar ég var að selja þessi tæki að PPHD átti til að breyta myndinni all svakalega og t.d. setja margt í fókus sem átti einfaldlega ekki að vera í fókus.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 14:37
af Daz
Sama tæki, 5000 kalli ódýrara?
42PFL5405H hjá Elko
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 15:35
af urban
það verður þá orðið dýrara komið hingað heim.
þar sem að það er umboðsaðili fyrir heimilistæki hérna í eyjum.
og borga ég því engan flutning á tækinu til eyja
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 15:51
af TheVikingmen
Ef þú ert tilbúinn að borga soldið meira þá mæli ég með þessu
http://www.hataekni.is/is/vorur/5000/5020/42LE730N/
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 17:25
af stebbi23
Að mínu mati, flottasta LCD tækið á markaðnum í dag.
Er að fara á 200k í Ormsson og BT
http://www.samsung.com/se/consumer/tv-h ... cification
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Mið 24. Nóv 2010 17:47
af GuðjónR
urban skrifaði:http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H
semsagt þetta tæki.
vita menn eitthvað hvernig þessi tæki eru að reynast ?
þar sem að þetta er á þrusu tilboði þá er freystandi að skella sér á þetta.
síðan mega menn koma með tillögur af sjónvörpum
FULLHD 40"+
verðbil, segjum bara upp að 260 þús
Hringdu í fellow spjallverja
Ómar Smith s: 568-9090 hann vinnur hjá
http://www.sm.is sem er rekið af sömu aðilum og
http://www.ht.is og hann veit ALLT sem hægt er að vita um þessi tæki.
Ég keypti
þetta tæki hjá honum fyrir tveimur árum, mjög ánægður með það fyrir utan þessi þrjú skipti sem það hefur þurft að fara í viðgerð og þá tvo mánuði sem tók að gera við það
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 01:38
af Hörde
Ég er með 42" Panasonic G20 plasma sem er á einhvern 230kall hjá þeim og ég er frekar ánægður með. Það er ekki gallalaust (frekar en önnur sjónvörp) en kostirnir vega auðveldlega upp á móti göllunum. LCD vs. plasma er þó annað mál og smekksatriði, en ef baklýsingin og svartir tónar almennt bögga þig í LCD tækjum þá er plasma hiklaust málið. Sömuleiðis er mun lægra input lag í plasma tækjum ef þú kemur til með að nota 360 eða PS3 með tækinu, og almennt finnast mér meiri myndgæði í plasma en LCD.
Það er reyndar sorglegt að hugsa til þess að ég keypti mitt tæki á 290þús fyrir rétt rúmum 5 mánuðum. Það var þó næstum því hverrar krónu virði þrátt fyrir að ég sé algjör nasisti þegar kemur að myndgæðum. Ég get a.m.k. mælt með því þó ég hafi ekki reynslu af hinum tækjunum.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 01:49
af bAZik
GuðjónR skrifaði:urban skrifaði:http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H
semsagt þetta tæki.
vita menn eitthvað hvernig þessi tæki eru að reynast ?
þar sem að þetta er á þrusu tilboði þá er freystandi að skella sér á þetta.
síðan mega menn koma með tillögur af sjónvörpum
FULLHD 40"+
verðbil, segjum bara upp að 260 þús
Hringdu í fellow spjallverja
Ómar Smith s: 568-9090 hann vinnur hjá
http://www.sm.is sem er rekið af sömu aðilum og
http://www.ht.is og hann veit ALLT sem hægt er að vita um þessi tæki.
Ég keypti
þetta tæki hjá honum fyrir tveimur árum, mjög ánægður með það fyrir utan þessi þrjú skipti sem það hefur þurft að fara í viðgerð og þá tvo mánuði sem tók að gera við það
Ég er líka með tæki líkt þessu, gerði miklar rannsóknir áður en ég ákvað að taka það. Ég er ekkert annað en hæst ánægður með það!
Keypti það í SM fyrir aðeins meira en ári síðan.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 02:42
af Raidmax
Ég er einmitt að fara að skella mér á þetta Philips tæki , hef verið að skoða það. Þeir hjá Elko segja að þeir séu búnir að selja hundruð Philips tæki og hefur allt virkað fínt.
Þetta sjónvarp er auðvitað 100hrz , 2ms í viðbragstíma , skerpu 100.000 á móti 1 og Full HD auðvitað. Mér finnst ekki þurfa ekki mikið meira þannig ég myndi skella mér á þetta nema eitthverjir Sjónvarps sénar segja annað. Fylgir HDMI snúra með sem er flott en þeir segja ekkert hversu löng né neitt ?
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 12:49
af Feeanor
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... ry_id=1705ég er sjálfur búinn að vera að spá dálítið í þessu hérna að ofan
40" Full HD LED philips tæki með 2ms svartíma, 100Hz etc á 180K...
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 15:14
af Raidmax
Já þetta er samt fake LED ,það er ekki svona þunnt bara með LED baklýsingu
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 16:25
af eta
Raidmax skrifaði:Ég er einmitt að fara að skella mér á þetta Philips tæki , hef verið að skoða það. Þeir hjá Elko segja að þeir séu búnir að selja hundruð Philips tæki og hefur allt virkað fínt.
Þetta sjónvarp er auðvitað 100hrz , 2ms í viðbragstíma , skerpu 100.000 á móti 1 og Full HD auðvitað. Mér finnst ekki þurfa ekki mikið meira þannig ég myndi skella mér á þetta nema eitthverjir Sjónvarps sénar segja annað. Fylgir HDMI snúra með sem er flott en þeir segja ekkert hversu löng né neitt ?
Mæli hiklaust að þið skoðið Panasonic G20 tækin.
1080p 5.000.000 skerpa og Svart er svart
. eins og að horfa á ljósmyndir í þessu
Allavega valdi ég frekar Plasma því ég þoli ekki gráa litin sem á að kallast svart í LCD. LED kemst samt aðeins nær í svörtu en ekkert eins og Plasma.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 16:47
af Raidmax
Hvað eru verðin á þessum Panasonic G20 tækjum?
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 17:52
af hsm
Raidmax skrifaði:Hvað eru verðin á þessum Panasonic G20 tækjum?
Verðið var
234.995 en er uppselt eins og er.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 17:53
af Jimmy
eta skrifaði:Mæli hiklaust að þið skoðið Panasonic G20 tækin.
1080p 5.000.000 skerpa og Svart er svart
. eins og að horfa á ljósmyndir í þessu
Allavega valdi ég frekar Plasma því ég þoli ekki gráa litin sem á að kallast svart í LCD. LED kemst samt aðeins nær í svörtu en ekkert eins og Plasma.
Hörde skrifaði:Ég er með 42" Panasonic G20 plasma sem er á einhvern 230kall hjá þeim og ég er frekar ánægður með. Það er ekki gallalaust (frekar en önnur sjónvörp) en kostirnir vega auðveldlega upp á móti göllunum. LCD vs. plasma er þó annað mál og smekksatriði, en ef baklýsingin og svartir tónar almennt bögga þig í LCD tækjum þá er plasma hiklaust málið. Sömuleiðis er mun lægra input lag í plasma tækjum ef þú kemur til með að nota 360 eða PS3 með tækinu, og almennt finnast mér meiri myndgæði í plasma en LCD.
Það er reyndar sorglegt að hugsa til þess að ég keypti mitt tæki á 290þús fyrir rétt rúmum 5 mánuðum. Það var þó næstum því hverrar krónu virði þrátt fyrir að ég sé algjör nasisti þegar kemur að myndgæðum. Ég get a.m.k. mælt með því þó ég hafi ekki reynslu af hinum tækjunum.
Eruði að fíla G20 tækið alveg í drasl?
Ekkert buzzing að pirra ykkur? eða image retention?
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 18:59
af razrosk
Mæli með þessu -
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=40PFL5605HEn einnig þessu ef þú vilt eyða aðeins meiru.. -
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL7695H - á sjálfur svona og það er GEGGJAÐ.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fös 03. Des 2010 22:22
af Hörde
Jimmy skrifaði:Eruði að fíla G20 tækið alveg í drasl?
Ekkert buzzing að pirra ykkur? eða image retention?
Hvorugt. Það er alltaf
eitthvað buzzing í plasma tækjum en ég þarf að vera við tækið til að heyra það. Ég heyri meira í ísskápnum inni í eldhúsi heldur en sjónvarpinu. Sama gildir um HTPC vélina og Xboxið. Ég fylgdist mikið með image retention fyrstu vikurnar en það litla sem kom upp við að spila tölvuleiki hvarf alltaf aftur á nokkrum tímum við venjulega notkun. Og þá þurfti ég spila sérstakt slideshow til að finna það. Það var meira retention á gamla LCD tækinu sem ég skipti út.
Þannig að já, ég er sáttur við tækið. Það er með betri liti og black level en ég hef séð í nokkru LCD tæki, lægra input lag, og mun betra response og motion resolution en hægt að fá úr LCD tækni yfir höfuð. Það er ekki gallalaust, en þetta eru gallar sem ég efast um ég hefði tekið eftir ef ég hefði ekki lesið um þá. Þess vegna ætla ég að sleppa því að nefna þá, en þeir eru ekki nema tveir.
Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki beðið eftir verðlækkuninni eða eytt aðeins meiru og fengið mér 3D Ready VT20 tækið. Þannig að ég er tilbúinn að kalla þetta næstbesta tækið á markaðnum.
Re: Philips 42" vantar álit á því og fleiri tækjum
Sent: Fim 09. Des 2010 23:06
af eta
Hörde skrifaði:Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki beðið eftir verðlækkuninni eða eytt aðeins meiru og fengið mér 3D Ready VT20 tækið. Þannig að ég er tilbúinn að kalla þetta næstbesta tækið á markaðnum.
Sama hér. 3D hefði verið stuð
En búinn að sanfæra mig um að ég selji þetta á barnalandi eftir 1,5ár og fái mér þá 3D, (en þetta endar örugglega inní sefnherbergi því maður tímir ekki að láta það
En já get ekki kvartað yfir neinu í G20 tækinu en hef reyndar ekki verið að lesa eða leita eftir göllum.
Sá samt feitan um á G20 og S20 þegar þau voru hlið við hið og gat ekki tekið S20 eftir það.