Síða 1 af 1

ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 10:15
af gullis
Sælir, vantar smá ráðleggingar.

Mér var að bjóðast ICY-BOX HD flakkari, tæplega ár gamall.
Er með bilaðann RCA útgang en HDMI í góðu lagi, með 1080 upscaling en styður mkv.

Hvað er verið að meina með þessu sem ég feitletraði ?

kv Gulli.

Re: ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 10:39
af hagur
Það þýðir að hann upscale-ar myndbönd sem eru í lægri upplausn en 1080p upp í 1080p.

Þetta skiptir í raun litlu máli, því ef þú tengir þetta t.d við Full HD sjónvarp, þá mun það gera þetta hvort sem er, og eflaust betur en flakkarinn gerir þetta.

Re: ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 12:34
af biturk
hvernig icy box flakkari er þetta og á hvaða verði?

ef þetta er 304 þá skaltu gleima því, það er alveg handónýtt dót! spilunarmöguleikar og notendaviðmót er það lélegt að ég var að verða geðveikur á honum!

Re: ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 15:20
af gullis
Það er ekki tekið framm,, bara tæplega ársgamall á 10Þ án disks auðvitað.

Re: ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 15:29
af biturk
gullis skrifaði:Það er ekki tekið framm,, bara tæplega ársgamall á 10Þ án disks auðvitað.



fáðu að vita það ef þúrt að spá í þessu.....líka uppá verð að gera

Re: ICY-BOX HD flakkari

Sent: Mið 24. Nóv 2010 20:26
af gullis
Ég er ekkert ósáttur við verðið,, þetta spilar mkv, það er það sem ég er að sækjast eftir, var bara að spá hvað þetta upscaling væri ;) Þessi þráður er búinn að gera sitt gagn :happy