Síða 1 af 1

HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:08
af el funo
Er að reyna að tengja fartölvuna við lcd tækið mitt með hdmi snúru. En alltaf þegar ég sting hdmi í samband þá slökknar á tölvuskjánum og þá kemur "connecting" á sjónvarpið og svo bara "no signal". Mér tekst semsagt ekki að tengja sjónvarpið við því það slökknar alltaf á tölvuskjánum svo ég get ekkert fiktað í stillingum.

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:15
af Hj0llz
búinn að prufa að halda Fn takkanum inni og ýta á "skjá takkan" ? oft F4 ef ég man rétt

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:21
af el funo
Frábært.. það virkaði.. en ég fæ samt sem áður enga mynd á sjónvarpið.. er að nota nvidia forritið..

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:26
af Hj0llz
búinn að fara í set up multible displays og klikka á My Display is not shown?

Þar áttu að geta force-að tv detection...svo þarftu að restarta

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:33
af el funo
Nvidia finnur sjónvarpið, það stendur laptop display og svo LG tv. og ég er búinn að haka í bæði. og fæ þá tvo skjái 1 og 2, búinn að prufa að stilla 2 á primary og clone en fæ samt sem áður ekkert signal á sjónvarpið..

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:40
af Hj0llz
prufaðu að ýta nokkrum sinnum á Fn+F4 og gáðu hvort að það geri eitthvað

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:42
af AntiTrust
Dettur í hug að þú sért annaðhvort með valda upplausn eða vitlaust refresh rate, og sjónvarpið geti ekki birt mynd vegna þess.

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:44
af el funo
nei það gerir ekki neitt..

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:48
af el funo
rakst á þær upplýsingar einhversstaðar, kann bara ekki að breyta því...

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:52
af Hj0llz
Change resolution í Nvidia Control Panel t.d. getur valið upplausn og refresh rate

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:57
af el funo
refresh rate er 60 herz á bæði tölvu og sjónvarpi og ég stillti resolution fyrir tölvu og tv eins, lét tölvuna stýra því. Hún var stillt á 1440 by 900 pixels.

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Fös 19. Nóv 2010 23:58
af nonesenze
gæti hjálpað að restarta vélinni með svónvarpið tengt og stilla svo, sumir driverar..... eða downloada nýasja driver http://www.nvidia.com

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Lau 20. Nóv 2010 00:00
af bAZik
el funo skrifaði:refresh rate er 60 herz á bæði tölvu og sjónvarpi og ég stillti resolution fyrir tölvu og tv eins, lét tölvuna stýra því. Hún var stillt á 1440 by 900 pixels.

Minnkaðu upplausnina. Ef þetta er ekki FullHD sjónvarp (1920×1080) þá getur það ekki sýnt 900 pixla hæð þannig settu upplausnina á 1280×720.

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Lau 20. Nóv 2010 00:08
af el funo
ég er nokkuð viss um að tækið sé fullHD, en ég prófaði samt að minnka upplausnina en það virkaði ekki. er líka búinn að prófa að restarta tölvunni með allt tengt..

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Lau 20. Nóv 2010 00:12
af bAZik
Prófaðu að sækja forritið UltraMon, veit ekki hvort það muni breyta einhverju en það er samt gott að vera með það ef maður er með sjónvarp tengt frá tölvu, prófílar með upplausnum fyrir hvoran skjá, sitthvort wallpaper á hvorum skjá og fleira..

Sæktu líka nýjustu driverana fyrir skjákortið þitt ef þú ert ekki búinn að því.

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Lau 20. Nóv 2010 00:14
af el funo
Takk fyrir það vinur. Hugsa að ég prufi það bara á morgun.. Hef ekki þolinmæðina í þetta lengur.. Er ekki mjög klár á tölvur.. hehe

Re: HJÁLP!! Vandamál við að tengja tölvuna við lcd.

Sent: Lau 20. Nóv 2010 00:24
af bAZik
el funo skrifaði:Takk fyrir það vinur. Hugsa að ég prufi það bara á morgun.. Hef ekki þolinmæðina í þetta lengur.. Er ekki mjög klár á tölvur.. hehe

Gangi þér vel, vonandi kemst þetta í lag á morgun!