Síða 1 af 1
Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 00:43
af ManiO
Hver eru gjöldin á sjónvörpum? Tollar og þess háttar.
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 00:45
af Klemmi
http://www.tollur.is/upload/files/calc_netverslun(22).htmVelur þarna aðrir skjáir og sjónvarpstæki
Tollur 7,5%
Vörugjald 25%
Virðisaukaskattur 25,5%
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 00:52
af ManiO
Snilld, vissi ekki af þessu.
Edit: Hvað telst sem "skjáir eingöngu nothæfir fyrir tölvu"? Eru sjónvörp án móttakara flokkuð sem slíkt?
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 08:10
af emmi
Tæki með móttakara og/eða HDMI tengi eru flokkuð sem sjónvarpstæki eftir því sem mér er sagt.
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 08:31
af hagur
ManiO skrifaði:"skjáir eingöngu nothæfir fyrir tölvu"
Þessi skilgreining hlýtur að ná aðeins yfir þá skjái sem eru monitorar, þ.e skjái sem hafa ekki sjónvarpsmóttakara. Þar ættu tengimöguleikar ekki að skipta neinu máli.
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 09:19
af Halli25
hagur skrifaði:ManiO skrifaði:"skjáir eingöngu nothæfir fyrir tölvu"
Þessi skilgreining hlýtur að ná aðeins yfir þá skjái sem eru monitorar, þ.e skjái sem hafa ekki sjónvarpsmóttakara. Þar ættu tengimöguleikar ekki að skipta neinu máli.
Rangt, tollurinn flokkar skjái með hátölurum og með hdmi tengi sem skjái sem hægt er að nota við annað en tölvur og því sömu tollar og á sjónvörp... bjánalegt ég veit
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 09:50
af ManiO
faraldur skrifaði:hagur skrifaði:ManiO skrifaði:"skjáir eingöngu nothæfir fyrir tölvu"
Þessi skilgreining hlýtur að ná aðeins yfir þá skjái sem eru monitorar, þ.e skjái sem hafa ekki sjónvarpsmóttakara. Þar ættu tengimöguleikar ekki að skipta neinu máli.
Rangt, tollurinn flokkar skjái með hátölurum og með hdmi tengi sem skjái sem hægt er að nota við annað en tölvur og því sömu tollar og á sjónvörp... bjánalegt ég veit
Sem er glatað þar sem að 200þús kr sjónvarp verður 350 þús kr sjónvarp fyrir vikið.
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Þri 16. Nóv 2010 10:17
af dori
faraldur skrifaði:Rangt, tollurinn flokkar skjái með hátölurum og með hdmi tengi sem skjái sem hægt er að nota við annað en tölvur og því sömu tollar og á sjónvörp... bjánalegt ég veit
Þá hefur skjárinn minn verið flokkaður svona... Andsk.
Maður verður að fara að leggja sig fram við að finna skjái án hátalara ef þetta er svona. Þar sem skjáhátalarar bjóða uppá ein verstu hljómgæði sem ég veit um (almennt, ég veit að það eru undantekningar).
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Mið 17. Nóv 2010 10:03
af kjarrig
Eftir því sem mér er sagt skv. starfsmanni sjónvarpsbúðar, að ef skjárinn er með HDMI tengi, þá verður hann flokkaður sem sjónvarp, skiptir engu hvort að það séu hátalarar eður ei, var mikið að spá í þessu að fá mér monitor, þar sem maður notar ekki "hátalarana" úr sjónvarpinu, en féll frá því vegna þess að skjárinn yrði flokkaður sem sjónvarp útaf HDMI tenginu.
Re: Innflutningsgjöld á sjónvörpum?
Sent: Mið 17. Nóv 2010 12:02
af appel
Ég keypti Símnet Plasma með HDMI.
En Símnet Plasma var fluttur inn án HDMI (og tuners), en gæjinn flutti svo HDMI kortin í tækin sér inn og kostaði spjald með 2x hdmi aukalega einhvern 10 þús kall.
Þetta gerði það að verkum að tækið kostaði mun minna en ella.
Maður þarf að kunna á kerfið sko.
v
Þetta er ekki hægt á venjulegum consumer tækjum úti í búð, þau koma bara forsamsett og óbreytanleg, búið að plasta vel yfir þetta allt saman.