Síða 1 af 1

Speaker wire í RCA

Sent: Þri 05. Okt 2010 02:02
af AndriH
Ég er búinn að skoða margar leiðir til að tengja sjónvarpið mitt við Studio Monitorana mína. Útgangarnir á sjónvarpinu eru svona týpískir speaker wire útgangar. Þetta sjónvarp er 50" monitor með engum hátölurum. Ég keypti mér studio monitora útaf ótrúlegu soundi. Ég hef ekki efni á mixer, þannig mig langar að mixa þetta aðeins öðruvísi. Beintengja þá við sjónvarpið mitt. Ég keypi XLR í Rca stikki fyrir löngu, og er búinn að vera að svissa milli Xbox og flakkarans með því að skipta með handafli.. hehe..

Svo rakst ég á þetta http://www.ehow.com/how_4885770_convert ... plugs.html

Speaker wire í RCA er möguleiki. En ég er smá stressaður útaf því að hátalararnir eru með innbygðum magnara. http://www.yamaha.com/yamahavgn/CDA/Con ... NTID=49338

Er einhver tech geek sem getur staðfest að ég geti gert þetta án þess að eitthvað springi/skemmist? Ss. speaker wire úr sjónvarpi (12w minnir mig) í rca í formagnaðann monitor.?

Takk=)

Re: Speaker wire í RCA

Sent: Þri 05. Okt 2010 09:41
af biturk
keiptu þér bara 2 rása behringer mixer í tónabúðinni kosta eiginlega ekki neitt, mun gáfulegra en skítamix á dýrum hlutum :-k

Re: Speaker wire í RCA

Sent: Þri 05. Okt 2010 10:51
af DJOli
Hljóðmerki er hljóðmerki, og ef ég man rétt, er ekki hægt að fá meiri spennu út úr því á einn veg eða annan, nema jú með koparvírum, en þá bara ogguponnsupínulítið meiri spennu...

hvað með að kaupa rca fjölgara e. http://www.att.is/product_info.php?cPat ... b616806400 <- Svona

tveir svona = tveir útgangar fyrir rásirnar, just don't fuck it up :P það er reyndar hálf erfitt...en samt...ég hef t.d. notað svona stubba til að fá 4 rása old style magnara til að taka merki á allar 4 rásirnar í gegnum 2 rása snúru...en það var nú bara stereomagnari...en já :D

Re: Speaker wire í RCA

Sent: Þri 05. Okt 2010 12:46
af AndriH
Hehe jám var búinn að skoða þann möguleika að kaupa svona splitter. En þá þarf ég að standa í því veseni að hækka og lækka fyrir aftan monitorinn (Þegar ég er í Xbox þ.e.a.s), eða lækka ingame. Ef ég myndi hooka þessu upp við sjónvarpið, gæti tengt fleirri tæki við hátalarana, hækkað og lækkað að vild og svissað auðveldlega á milli. Það er draumurinn. Eina sem ég er að pæla í, er að þessi speaker wire útgangur gefur frá sér spennu, og hvort það hafi einhver áhrif á RCA tengið í hátlaranum. Eða öfugt.

En já hvað kostar svona mixer? Og hvað margar rásir?

Re: Speaker wire í RCA

Sent: Þri 05. Okt 2010 12:54
af biturk
hringdu bara í tónabúðina og spurðu hvað 2 eða 4 rása behringer mixer kostar, það er opið núna.


getur líka spurt þá hvort þeir myndu fara aðra leið í málinu, þeir hafa gríðarlega þekkingu á þessum málum og hafa altlaf getað hjálpað mér með svona.