hsm skrifaði:Snuddi skrifaði:Ég gæti ekki verið meira ósammála þér. Ég var með 85cm disk frá Eico og var á 4. hæð og var oft snarvitlaust veður, snjókoma, hríð og þvílíkir sviptivindar sem mynduðust á svölunum og það hafði bara ekki minnstu áhrif á gæðin eða útsendinguna yfir höfuð.
Allt í lagi
þá er þú einn af þessum fáu heppnu.
Ég er með allan pakkan hjá SKY+HD 3-400 stöðvar og það er mismunandi styrkur á þessum rásum. Ég lendi stundum í því að ef það er virkilega vont veður og sérstaklega þegar það er slagviðri
þá koma truflanir í sumar rásir enn alls ekki allar. Og já ég hef verið í sambandi við þá hjá Eico þar sem ég er að borga 2 SKY áskriftir í gegnum þá og fékk hluta af búnaðinum hjá þeim.
Þar hef ég rætt þetta og þar á bæ fékk ég þau svör að ef ég vildi vera 100% öruggur þá þarf maður að fá sér "STÆRRI" disk.
En svo aftur á móti þá getur það vel verið ásættanlegt að fá truflanir í sumar stöðvar á leiðinlegum dögum. Vildi bara deila minni reynslu af þessu.
Fer eftir staðsetningu og næmni LNBsins. Ég er með 100 cm disk og 4 falt LNB man reyndar ekki næmnina, en hún er víst minni eftir því sem þú ferð í stærra LNB. Ég lendi aldrei í vandræðum sama hversu vont veður er lengur, hins vegar í hitt í fyrra lenti ég í vandræðum með Setanta Sports en jafnvel fólk í Bretlandi var að væla út af því ( hef ekki lent í þessu með ESPN né neinar aðrar stöðvar ). Mér var sagt að málið væri að stöðvarnar eru annars vegar á AAstra á 28.2° og svo á Eurobird á 28.5°og Setanta voru á 28.5° og voru þess vegna utar á disknum. Hins vegar lenti ég alltaf bara í vandræðum með Setanta ekki neinar af hinum stöðvunum á Eurobird ( eins og til dæmis þarna rússneska fréttastöðin ).Líka ekki vera of cheap, fáðu þér carbon-fiber disk, hef heyrt um þó nokkra sem hafa lent í því að stáldiskarnir hafa skekkst og/eða fokið.... Öreind og Elnet hafa reynst mér bestir í öllu því sem ég hef keypt í kringum sjónvarpsdrasl hjá mér. Diskinn og LNBið fékk ég hjá Öreind og kaplar og fleirra hef ég alltaf fengið hjá Elnet.
Ég er persónulega með SKY+HD borgar tæplega 60 pund ef mig minnir rétt ( minnir að þetta séu 58°pund sem ég er að greiða, ég kaupi þær í gegnum írskan milliaðila ( Ísl. aðilarnir eru bara ruglaðir í commission að mér finnst ) ). Hins vegar gætirðu farið ólöglegu leiðin og fengið þér Dreambox, hins vegar leggja Sky mjög mikið uppúr því að uppruna Piracy á kortunum sínum og það gæti alveg verið að það þeir nái að loka NDS á morgun aftur og eyðilagt schemeið það. Jafnvel HD boxið, ættir að fá það hjá Öreind. Getur annað hvort keypt svona Cardsharing ( sem þeir segja þér ekki að sé Cardsharing ) af ísl. aðila og borgað 6.900 án HD. Eða verslað af aðila eins og
http://www.bestcardshare.com/products.p ... y-UK-World - á 20 Bandaríkja dollara með HD ( þarft þá HD Dreambox og það er smá kúnst að installa þessu ).
---
Sky hefur svo margt framyfir Ísl stöðvarnar.....
1. Lendi næstum aldrei í því að það sé ekki eithvað í sjónvarpinu sem ég nenni að horfa á. T.d. þegar ég sest niður að borða hádegismatinn ( sem ég geri yfirleitt síðdegis þegar ég næ að kíkja heim ) að þá finnst mér yndi að horfa á þætti eins og Jerry Springer, Maury og fleirra gull þætti eins og það.
2. Sky Movies er þess virði, þetta er ekki svona rusl eins og Stöð 2 Bíó, það er alltaf góðar myndir
3. Sky Anytime ( færð þetta ekki með cardsharing / Drembox ) er yfirleitt með öllum frumsýndum myndum á Sky Movies sem er mjög þægilegt
4. Alvöru úrval af HD ( og já það er mikill gæða munur )
5. ESPN, Sky, ITV og BBC halda þér vel góðum í öllu íþróttatengdu.
6. Jón Ásgeir er ekki að fá peningana þína ( heldur Rubert Murdoch, og þótt að hann sé skíthæll, er hann ekki Íslenskur skíthæll
)
--- Cons ---
1. Fjandans RÚV var svo cheap að það missti þjóðaríþrótt Íslendinga ( handboltann ) yfir til Stöð 2 Sport ( landsleikin þ.e.a.s ) og það er ekki sýnt á Sky
2. Þýski handboltinn og spænski eru sýndir í mjög litlu upplagi
Annars sakna ég ekki, dagskrágerð á Stöð 2 ( íslensk þ.e.a.s. ) er alveg ágæt, en ég sakna þess ekki.