Síða 1 af 1
Heimabíó
Sent: Mán 02. Ágú 2010 16:14
af dabbi12
Sælir, nú var ég að fá mér sjónvarp og er að hugsa að fá mér heimabíó, 5.1 kerfi, þar sem ég hef ekki mikið vit á heimabíóum þá vantar mig hjálp með þetta.
Mælið þið með einhverju sérstöku á ekki dýrara en 50 þús kall?
Re: Heimabíó
Sent: Mán 02. Ágú 2010 16:57
af peturthorra
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 01:12
af dabbi12
Ok, þetta lítur heldur vel út, allavega eins og staðan er núna þá mun ég splæsa á þetta heimabíó og PS3 næstu mánaðarmót, vona bara að tilboðið stendur ennþá hjá sjónvarpsmiðstöðinni þá.
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 02:09
af FreyrGauti
Ef þú varst að fá þér HD sjónvarp og ert að fara versla ps3 þá myndi ég leita mér að heimabíó sem er með HDMI in og out eða allvega optical in, og styður DolbyTrueHD og DTSHD hljóðstaðlana.
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 02:40
af peturthorra
Ok , þetta bíó sem ég benti honum á er með HDMI og OPTICAL og styður Dolby Prologic II, DTS, DTS 96/24, Stereo, Dolby Digital 5.1 , sem dugar . og þú færð ekki DTSHD eða DTS TRUE HD stuðning í 50 þús græjum.
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 07:53
af FreyrGauti
peturthorra skrifaði:Ok , þetta bíó sem ég benti honum á er með HDMI og OPTICAL og styður Dolby Prologic II, DTS, DTS 96/24, Stereo, Dolby Digital 5.1 , sem dugar . og þú færð ekki DTSHD eða DTS TRUE HD stuðning í 50 þús græjum.
Samkvæmt þessari vefsíðu er þetta með optical og hdmi out, eina digital inputið er digital coax á meðan að ps3 er með optical out.
http://www.pixmania.co.uk/uk/uk/5003012 ... -home.htmlhttp://is.playstation.com/ps3/support/p ... tions.htmlEf þú vilt nýta heimabíóið almennilega og þá Dolby og DTS staðlana meðan þú notar ps3 þá þarftu heimabíó sem bíður upp á optical in. Þetta er bara fyrir hljóðið, tengir síðan hdmi í sjónvarpið.
*Edit* Eða kaupa svona græju:
http://www.audiovisualonline.co.uk/dyna ... splay.html
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 11:39
af rubey
Það þarf líka að vera HDMI snúra fyrir DTS-HD ef þú vilt það, dugar ekki að vera með optical á því.
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 20:06
af dabbi12
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 20:13
af dabbi12
Ég er einnig með 2 laus HDMI tengi á sjónvarpinu, sem nú er tengt í pc tölvuna hjá mér,
http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42S20 .
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 22:02
af Jimmy
Fullt verð 79.990, tilboðsverð 84.990, magnað!
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 22:55
af dabbi12
Hahah já eitthvað undarlegt, er að spá hvort að fullt verð eigi að vera 79 þús og tilboðsverð 69 þús eða hvort fullt verð eigi að vera 89 þús og tilboðsverð 79 þús.
Re: Heimabíó
Sent: Fim 05. Ágú 2010 23:16
af FreyrGauti
Já, allavega hvað varðar tengingar miðað við ps3. Kæmi mér samt ekki á óvart ef það væri betri hljómur í Philips kerfinu.
Re: Heimabíó
Sent: Fös 06. Ágú 2010 08:57
af ManiO
Jimmy skrifaði:Fullt verð 79.990, tilboðsverð 84.990, magnað!
Special price for you my friend!