Síða 1 af 1

Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 13:33
af Krissinn
Hvar er ódýrast að kaupa 42" sjónvarp

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 13:40
af KermitTheFrog
Hvar er ódýrast að kaupa gallabuxur?

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 13:55
af teitan
Dimmu húsasundi af einhverjum skuggalegum náunga?

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 13:58
af Tiger
KermitTheFrog skrifaði:Hvar er ódýrast að kaupa gallabuxur?

Agalega er þetta að verða þreytt spjallborð hérna. Er þetta ekki verðvaktar spjall, og á því svona spurning ekki rétt á sér? Ef fólk hefur ekki skoðun eða vitneskju um svarið þá finnst mér bara að það eigi að sleppa því að svara frekar en að byrja á einhverjum svona leiðindum.

Ef þú ert að leita að bara normal 42" sjónvarpi þá er Elko oftast með góð verð, einnig hefur BUY.is verið að flytja inn sjónvörp og myndi ég hiklaust leita þanngað næst þegar mig vantar sjónvarp. Sjónvarpsmiðstöðin oft með tilboð líka og HT.is

ps. en minni samt á að hafa lýsandi tiltil í þærðinum, hefði verið betra að hafa "hvar skal kaupa sjónvarp".

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 14:05
af ZoRzEr
Snuddi skrifaði:

Hryllilega þreytt týpa með svona stæla. Finnst eins og þeir séu stanlaust að fiska eftir fleiri innlegjum, svona fyrir typpamælingar.

Annars er ég sammála síðasta ræðumanni, Elko er með mikið úrval, buy.is gæti verið ódýrara og betri þjónusta. Sjónvarksmarkaðurinn er líka ágætur, oft mörg mjög góð aðeins eldri sjónvörp á tilboði.

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 14:13
af KermitTheFrog
Ekki fara að væla.

Ég var einfaldlega (á minn ófyndna hátt) að segja að það væri betra að koma með aðeins meiri upplýsingar um það sem hann spyr um.
Það er alveg staðall milli verðs og gæða. Það er hægt að kaupa hræódýrt drasl frá Pakistan eða viðurkennt gæðamerki.

Slakiði á.

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 14:30
af ZoRzEr
KermitTheFrog skrifaði:Ekki fara að væla.

Ég var einfaldlega (á minn ófyndna hátt) að segja að það væri betra að koma með aðeins meiri upplýsingar um það sem hann spyr um.
Það er alveg staðall milli verðs og gæða. Það er hægt að kaupa hræódýrt drasl frá Pakistan eða viðurkennt gæðamerki.

Slakiði á.

Það væri kannski betra að segja það þá. Ekki koma bara með einhverja útúrsnúninga og óþarfa skæting.

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 19:53
af Krissinn
Okey, biðst bara fyrirgefningar á að hafa spurt um þetta, vissi ekki að ein spurning myndi valda svona miklum ursla. Sný mér bara eitthvert annað :)

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 20:36
af teitan
krissi24 skrifaði:Okey, biðst bara fyrirgefningar á að hafa spurt um þetta, vissi ekki að ein spurning myndi valda svona miklum ursla. Sný mér bara eitthvert annað :)

Ertu í alvörunni bara að leita að sem ódýrustu 42" sjónvarpi?

Engar kröfur um myndgæði, fjölda tengja, o.s.frv.?

Ef ég væri þú þá mundi ég spá í einhverju fleiru heldur en bara stærð og verði :)

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 20:41
af Gunnar
krissi24 breyttu fyrsta posti með aðeins nákvæmari lýsingu hvernig 42" sjónvarp þú vilt.
hvernig tengi viltu hafa á sjónvarpinu t.d. lcd eða plasma?
svo hefði líka verið fínt að nota leitina, það hefur oft verið spurt að þessu og þá segja flestir að best sé að fara útí búðir og fá að skoða öll tækin.

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 21:15
af intenz
ELKO síðast þegar ég gáði.

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 21:55
af mattiisak
svariði bara djöfulsins spurninguni ef þið vitið hvar plastma eða lcd skjáirnir fást ódýrastir. ef þið vitið það ekki eða "þolið ekki svona þræði" ekki þá vera að gefa hönum bump með einhverju svona

"Hvar er ódýrast að kaupa gallabuxur?"
"Dimmu húsasundi af einhverjum skuggalegum náunga?".

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 22:29
af beatmaster
krissi24 skrifaði:Hvar er ódýrast að kaupa 42" sjónvarp
Árið 2007

mattiisak skrifaði:svariði bara djöfulsins spurninguni ef þið vitið hvar plastma eða lcd skjáirnir fást ódýrastir. ef þið vitið það ekki eða "þolið ekki svona þræði" ekki þá vera að gefa hönum bump með einhverju svona

"Hvar er ódýrast að kaupa gallabuxur?"
"Dimmu húsasundi af einhverjum skuggalegum náunga?".
Hver er samt raunveruleg spurning (sem er ástæðan fyrir því að þetta eru svörin sem að hann fær), vill hann kaupa ódýrt nýtt LCD, vill hann kaupa ódýrt nýtt Plasma tæki, vill hann kaupa ódýrt nýtt LED tæki, vill hann kaupa ódýrt nýtt tæki sem að er einungis með LED baklýsingu, vill hann kaupa eitthvað að framantöldu notað eða sem sýningartæki, er hann kanski að leita að 42" rear projection TV nýtt eða notað

Reglurnar skrifaði:1. gr.

Taktu þér tíma og vandaðu uppsetningu, stafsetningu og frágang bréfa.
Bréf sem eru illa gerð verður breytt eða þeim læst/eytt.

2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum
dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" heldur frekar
"Vantar hjálp með fps drop í CS" eða "P4 3.0 GHz eða AMD64 3000+?".

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Mið 19. Maí 2010 22:59
af Krissinn
mattiisak skrifaði:svariði bara djöfulsins spurninguni ef þið vitið hvar plastma eða lcd skjáirnir fást ódýrastir. ef þið vitið það ekki eða "þolið ekki svona þræði" ekki þá vera að gefa hönum bump með einhverju svona

"Hvar er ódýrast að kaupa gallabuxur?"
"Dimmu húsasundi af einhverjum skuggalegum náunga?".

Ég styð það! :D En já svo ég losni úr "yfirheyrslunni,, þá var ég nú bara að tala um t.d. LCD svona í kringum 150 - 180 þúsund og ég er að fara í HDMI þannig að það væri fínt að hafa minnsta kosti 2 þannig og það þarf auðvitað að vera Full HD. Hvernig lýst ykkur á þetta tildæmis: http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=LTV9742 Þetta þarf bara að vera svona nokkuð gott, hvorki slæmt né eitthvað súper gott bara svona millivegurinn :D

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Fim 20. Maí 2010 00:33
af Glazier
Friðjón hjá buy.is sagði mér einhvertíman að hann gæti reddað nánast hvaða sjónvarpi sem er.. og flestar vörur sem hann hefur verið að selja eru ódýrastar hjá honum svo ég myndi giska á að það væri ódýrasti kosturinn fyrir þig að panta hjá honum :)

Re: Hvar skal kaupa?

Sent: Fim 20. Maí 2010 08:45
af Krissinn
Glazier skrifaði:Friðjón hjá buy.is sagði mér einhvertíman að hann gæti reddað nánast hvaða sjónvarpi sem er.. og flestar vörur sem hann hefur verið að selja eru ódýrastar hjá honum svo ég myndi giska á að það væri ódýrasti kosturinn fyrir þig að panta hjá honum :)

Okey skoða það, takk fyrir :D