Síða 1 af 1

Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 18:52
af Frost
Sælir. Ég er með fartölvu sem að ég vill tengja við sjónvarpið. Er með VGA í RCA kapal, er búinn að tengja frá tölvunni(VGA) í sjónvarpið(RCA). Satt að segja hef ég ekki hundsvit á þessu og væri gott að fá smá hjálp á þessu. Finn ekkert notsamlegt á netinu um þetta.

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 19:28
af starionturbo
Síðast þegar ég vissi er ekki hægt að converta VGA í RCA án þess að það sem tekur á móti RCA geti sérstaklega unnið úr þeim upplýsingum. :(

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 19:36
af Frost
Hvernig snúru gæti ég þá notað?

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 19:50
af Tiger
Er ekkert S-vhs tengi á fartölvunni? Ég er með 3-4 ára HP vinnuvél og get tengt hana við sjónvarpið með því og svo bara jack tengi fyrir hljóðið. Reyndar held ég að það heiti mini s-vhs.

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 19:54
af steinarorri
Var með sama vandamál og ég held að eina leiðin til að gera þetta sé VGA í HDMI converter (Að því gefnu að sjónvarpið sé með HDMI inn). Festi kaup á slíku fyrir 2 mánuðum og er sáttur. http://www.computer.is/vorur/7399/
Att.is er með þetta 500kr ódýrara en þetta var ekki til þegar ég var að kaupa þetta - þrátt fyrir að vera skráð á síðunni þeirra... veit ekki hvernig það er núna.

Þetta er dálítið dýrt en hafa verður í huga að þetta er ekki bara millistykki heldur breytir þetta analog yfir í digital.

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 19:55
af Frost
Snuddi skrifaði:Er ekkert S-vhs tengi á fartölvunni? Ég er með 3-4 ára HP vinnuvél og get tengt hana við sjónvarpið með því og svo bara jack tengi fyrir hljóðið. Reyndar held ég að það heiti mini s-vhs.


Hvað þarf ég þá að gera frá því? Hvaða hluti þarf ég að kaupa svo að þetta gengur upp hjá mér án vandræða..?

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 20:07
af Tiger
Ef það er s-vhs tengi á tölvunni og sjónvarpinu þá þarftu bara s-vhs snúru og málið dautt (eins og hjá mér). Jú og svo mini jack snúru fyrir hlóðið ef þú ætlar að taka það líka.

Mynd

Re: Smá hjálp með að tengja fartölvu við sjónvarp

Sent: Lau 03. Apr 2010 21:16
af Frost
Ég bjargaði þessu. Notaði VGA snúru fyrir mynd og svo Audio jack fyrir hljóð. Var ofsa lengi að grafa í snúru haugnum hjá mér :)