Síða 1 af 1
Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 13:00
af arnaros
Er á fullu að skoða flakkara og kíkja á príca og fleira rakst á þetta, hefur kannski einhver reynslu af þessum flökkurum
hvernig þeir reynast og er þetta sami flakkarinn, hvernig stendur á þessum mikla verðmun
http://buy.is/product.php?id_product=1252http://bt.is/vorur/vara/id/10760
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 13:02
af AntiTrust
Þú ert að bera saman dýra búð og mjög ódýra búð. Engin vísindi á bakvið þetta.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 13:05
af Lexxinn
ég kalla þetta BT verð...
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 16:13
af Arena77
BT er okurbúlla, versla aldrei þar
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 17:22
af Olafst
Eina sem mér dettur í hug er að það vanti vörugjöld(25%) og stefgjöld(4%) ofaná verðið hjá buy.is. Finnst það reyndar ólíklegt þar sem þeir eru búnir að vera í bissness í smá tíma og ættu að þekkja mismunandi tollflokka
Vörugjöld eru er 25% skv. tollur.is -
https://vefafgreidsla.tollur.is/tollalina/tav/Og höfundarréttargjöld, 4%
Flokkurinn er 8521.9029 og lítið mál að fletta þvi upp þarna á þessari slóð til að sjá nánari útlistun á þessu.
Tekið úr lýsingunni á flokknum:
Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir til þess konar vara.
Rafbúnaður og -tæki og hlutar til þeirra; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir til þess konar vara
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 17:53
af machiavelli7
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 18:14
af Gunnar
haha mæli með að tl kaupi af buy og selji svo á 89.990. strax komnir í gróða þar...
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 18:22
af Olafst
Mig grunar að þarna vanti líka 25% vörugjald hjá buy.is sem leggst á alla hátalara
En eins og ég segi, aðeins ágiskun útí loftið hjá mér, en verðmunurinn bendir sterklega til þess.
Ég skoðaði þetta fyrir nokkru síðan þegar ég var að spá í að kaupa sjálfur að utan. Það eru ansi margar vörur sem bera háa tolla(sirka 25%).
Allir margmiðlunarspilarar, allir skjáir með HDMI tengi og öll hátalarakerfi t.d.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 19:24
af Pandemic
Þið sjáið líka að þetta er sérpöntunarverð þannig það þarf ekki endilega að vera uppfært.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 19:51
af hagur
Olafst skrifaði:Mig grunar að þarna vanti líka 25% vörugjald hjá buy.is sem leggst á alla hátalara
En eins og ég segi, aðeins ágiskun útí loftið hjá mér, en verðmunurinn bendir sterklega til þess.
Ég skoðaði þetta fyrir nokkru síðan þegar ég var að spá í að kaupa sjálfur að utan. Það eru ansi margar vörur sem bera háa tolla(sirka 25%).
Allir margmiðlunarspilarar, allir skjáir með HDMI tengi og öll hátalarakerfi t.d.
Verðið á buy.is er endanlegt verð, þ.e það sem þú sem kúnni borgar fyrir vöruna. Öll gjöld og VSK er því hluti af þessu verði.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 21:08
af OverClocker
Það er nú ekki gott ef buy.is er ekki að borga þau gjöld sem þeim ber..
Það væri ansi gott ef FBG gæti staðfest að öll gjöld séu greidd.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 22:00
af AntiTrust
OverClocker skrifaði:Það er nú ekki gott ef buy.is er ekki að borga þau gjöld sem þeim ber..
Það væri ansi gott ef FBG gæti staðfest að öll gjöld séu greidd.
Pff, eins og okkur sé ekki sama. Það sem við borgum til hans er það sem skiptir máli
Annað er hans hausverkur.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 22:22
af Starman
AntiTrust skrifaði:OverClocker skrifaði:Það er nú ekki gott ef buy.is er ekki að borga þau gjöld sem þeim ber..
Það væri ansi gott ef FBG gæti staðfest að öll gjöld séu greidd.
Pff, eins og okkur sé ekki sama. Það sem við borgum til hans er það sem skiptir máli
Annað er hans hausverkur.
Tja, það verður ykkar hausverkur sem hafa verslað af honum ef þetta er rétt (sem ég hef að sjálfsögðu ekki hugmynd um)
, því eins og dæmin sanna þá þýðir lítið að væla um ábyrgð við gjaldþrota fyrirtæki. Ég ætla rétt að vona þeirra vegna hjá buy.is
að þeir séu með þessi atriði á hreinu , því annars er þetta bara spurning um tíma þar til einhver samkeppnisaðili sendir ábendingu til yfirvalda.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 22:23
af urban
ef að ég man rétt þá er bannað að gefa upp verð án allra gjalda í smásölu.
þannig að væntanlega er þetta rétt.
Re: Hvaða bull verðmunur á Flakkara er þetta
Sent: Mið 31. Mar 2010 22:51
af AntiTrust
Starman skrifaði:Tja, það verður ykkar hausverkur sem hafa verslað af honum ef þetta er rétt (sem ég hef að sjálfsögðu ekki hugmynd um)
, því eins og dæmin sanna þá þýðir lítið að væla um ábyrgð við gjaldþrota fyrirtæki. Ég ætla rétt að vona þeirra vegna hjá buy.is
að þeir séu með þessi atriði á hreinu , því annars er þetta bara spurning um tíma þar til einhver samkeppnisaðili sendir ábendingu til yfirvalda.
Ég geri mér auðvitað grein fyrir því. Hinsvegar - þá er ávalt framleiðsluábyrgð, og fyrir verðin á mörgu sem þeir eru að bjóða uppá, myndi ég ekki væla loss á ábyrgðinni eftir fyrsta árið.
Annars var þetta sagt í meira gríni en alvöru.