Síða 1 af 1
Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 20:53
af ManiO
Já, titillinn er frekar lýsandi.
Hef lítið vit á merkjum. Þarf minnst 2 HDMI, 3-4 væri ekkert verra. Stuðningur við flesta hljóðstaðla nauðsynlegt, helst alla.
Ef möguleiki er þá væri kostur að hafa ekki einhverja gígantíska hátalara.
Hvað myndi slíkt vera að gera stórt gat í veskið þessa dagana?
Einnig, ef einhver veit um einhvern sem gæti lagað fyrir mig optical in tengi (tengið smellir ekki þegar að tengt er í það) væri það snilld.
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 21:04
af Pandemic
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 21:09
af AntiTrust
Ef þú ætlar að taka "ekki sett" heldur pússla saman sjálfur 7.1 kerfi, talaðu þá við pro audio gaur og láttu hann hjálpa þér. Hvert einasta detail, hver einasta tala skiptir miklu máli til að fá sem mest úr 7.1 kerfi.
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 21:23
af Some0ne
Það sem Pandemic postaði er ágætis sett held ég, Magnarinn er allaveganna mjög fínn, og ef þú ætlar ekki að fara útí eitthvað mega custom setup á hátölurum sem er töluvert dýrara en 115k
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 21:35
af hagur
Myndi líka skoða Yamaha magnarana hjá Hátækni. Yamaha er solid merki í þessu.
Þetta er ódýrasti magnarinn hjá þeim sem hefur HDMI in/out (4 inn og 1 út) og Dolby TrueHD og DTS-HD.
EDIT sorry, gleymdi linknum
http://www.hataekni.is/vorur/hljomtaeki ... ar/pnr/848
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 21:44
af Pandemic
Er með þetta sett sem ég valdi hérna heima reyndar með eldri magnara af sömu gerð. Mjög fínt.
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 22:05
af Ulli
mæli með Bræðunum Ormsson í Síðumúla.
getur feingið THX certified 7,1 magnara með 4 HDMI teingjum og usb/ipod rdy magnara á 150k
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Þri 12. Jan 2010 23:27
af Gothiatek
Ég er nýbúinn að koma mér upp heimabíókerfi, ætlaði að kaupa Yamaha RX-V765 af Hátækni en hann hækkaði úr 98 þús í 189 þús á milli sendinga. Sem er rugl, þetta er ekki 200 þús kr magnari. Endaði á Pioneer VSX-819 frá Ormsson (5 rása) - ágætis magnari en þarf að uppfæra fyrr en síðar.
Svo keypti ég QLN hátalara hjá
Portus, þeir eru ekkert nema snilldin ein. Kannski aðeins stærri en þú ert að leita að en þeir eru líka með Proson hátalara sem hafa fengið góða dóma. Mæli með Portus, frábært þjónusta.
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Sun 24. Jan 2010 02:48
af Ethereal-
Þeir framleiðendur sem eru að koma best út í dag eru Yamaha og Denon. Onkyo eru mjög góðir líka nema (að mínu mati) eru þeir ljótustu sem ég hef séð. Svo skaltu ekkert vera að eltast við THX badge, hefur ekkert við það að gera nema þú sért að fara setja upp kerfi í 60-100 fermetra rými.
Ég mæli EINDREGIÐ með þessum magnara, efast um að þú fáir jafn góðan grip á klakanum í dag fyrir þetta verð. Hefur fengið afburða dóma alls staðar sem hann hefur verið skoðaður. Ég er reyndar mikill Denon maður og vann sem sölumaður í umboðinu um nokkurt skeið þannig ég er kannski ekki beint hlutlaus, en lestu þér til um gripinn á netinu.
http://ht.is/index.php?sida=vara&vara=AVR1910BOg varðandi hátalarakerfi, ég myndi frekar byggja upp 5.1 sett hægt og hægt, byrja á 2 frontum t.d., frekar en að kaupa þér lítinn ódýran satilite hring. Því miður er úrval á hátölurum í dag mjög takmarkað. Paradigm hjá Steina í Hljómsýn eru alltaf skemmtilegir en það því miður erfitt og leiðinlegt að versla við þá. Ég myndi skoða Dali Ikon línuna, mjög góðir hátalarar og léttir í keyrslu. Ef þú vilt frekar grunt framyfir hljómgæði geturu skoðað JBL, ekkert síðri hátalarar í sjálfu sér en eru meiri "partýhátalarar" að mínu mati, allavegana ódýrasta línan, ná ekki sama fínleika og hlutleysi og Dali
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Sun 24. Jan 2010 05:15
af Glazier
Þó ég hafi lítið sem ekkert vit á þessu þá mæli ég með því að þú finnir þér það setup sem þig langar í og færð svo Friðjón hjá buy.is til að panta það fyrir þig.. (örugglega það ódýrasta í stöðunni því ég veit að sm er að leggja töluvert ofaná græjurnar sínar)
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Mán 25. Jan 2010 02:30
af Ethereal-
Veit ekki með SM, en ég veit að álagningin á Denon mögnurunum hjá HT er ekki há, miðað við margt annað.
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Mán 25. Jan 2010 02:53
af einsii
Ég seigi Onkyo alla leið. Er búinn að eiga minn Onkyo TX-DS 838 (Integra týpa sem er töff
) frá 98 minnir mig og er þetta rosalega góð græja, Hann svosem er ekkert með öllu því nýjasta eins og HD stuðningi en það sem hann gerir gerir hann sko vel. Svo eru sirka 30 ára gamlir Onkyoar í gangi hérna heima og í skúrnun, enn í ágætis geimi
Sjálfur er ég svo með Castle front og surround hátalara, Kef center úr studio línunni gömlu og Castle classic sub sem er æði.
Annars með lúkkið sem einhver benti á hér ( og linkaði svo á ljótasta tækið sem Denon hefur smíðað)
þá er málið að kaupa bara Onkyo sem er aðeins ofar í línunni hjá þeim og þá kominn með svona hurð yfir takka og tengi, þá lúkka þeir bara mjög clean og flottir finnst mér.
Fást hjá Pfaff btw
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Mán 25. Jan 2010 20:01
af Ethereal-
Útlitið er auðvitað spurning um smekk. Ég hélt að Pfaff væru hættir með allar græjur nema Pro ?
Re: Magnari og 7.1 kerfi - hvað er slíkt að kosta?
Sent: Mán 25. Jan 2010 20:06
af Ulli
Ethereal- skrifaði:Útlitið er auðvitað spurning um smekk. Ég hélt að Pfaff væru hættir með allar græjur nema Pro ?
dat is true