Síða 1 af 1
Digital ísland
Sent: Lau 17. Okt 2009 07:15
af Krissinn
Er með 2 digital ísland afruglara,aðallykil og aukalykil en málið er að þeir eru báðir tengdir við örbylgjuloftnetið með sitthvorri snúrunni en mig langar að tengja aukamyndlykilinn við aðalmyndlykilinn með einni snúru eins og það á að vera held ég en ég hef farið eftir leiðbeiningunum á vodafone en fæ aldrei neinar stöðvar inná aukamyndlykilinn? Semsagt tengi úr "tv out,, á aðalmyndlyklinum í kross/splitter og úr splitterinum í video og hinn endinn inní herbergi í aukamyndlykilinn í tengi sem heitir "ant in,, en fæ samt aldrei neitt merki á aukalykilinn
við fá hjálp.
Re: Digital ísland
Sent: Lau 17. Okt 2009 10:28
af Viktor
Búinn að hringja uppeftir?
Re: Digital ísland
Sent: Lau 17. Okt 2009 11:27
af benson
Prófaðu að sleppa videoinu og tengja beint frá aðal yfir í auka. Farðu svo í handvirka leit og tékkaðu á hversu mikinn styrk þú færð á U48 eða S13 (fer eftir því hvernig örbylgjuloftnet þú ert með). Þegar þú færð ágætis styrk leitaðu þá með kerfisleit á (minnir mig að það heiti) svo þú fáir stöðvarnar sem eru á öllum hinum muxunum líka. Tengdu svo videoið á milli þegar stöðvarnar eru komnar inn á auka.
Annars bara 1414 og velja 3.
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 09:37
af Krissinn
Fæ ekkert, engan styrk eða neitt
er með þetta hefðbundna vinkil örbylgjuloftnet
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 09:50
af benson
Er ekki örugglega loop snúran tengd á aðal boxinu?
Ertu með basic boxið, PVR eða HD?
Ef þú ert með basic er það gamla eða nýja?
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 09:56
af Krissinn
jú hún er tengd á báðum lyklunum, er með basic gömlu gerðina.
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 12:16
af Starman
Ég mundi splitta loftnetsmerkinu áður en það fer inn á myndlykil, þ.e.a.s. loftnet--->splitter-->TV-in á myndlykli 1 og 2
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 12:31
af Krissinn
já er með Það þannig en vil fá báða ruglarana á sömu snúru afþví tildæmis til að taka upp í tölvu þá er auðveldra að velja á milli ruglara án þess að færa snúru á milli
Re: Digital ísland
Sent: Sun 18. Okt 2009 14:40
af benson
Ef þú ert með tvo basic af gömlu gerðinni þá fer loftnetið inn á aðal efst uppi til vinstri í ant in. Loop snúran fer svo í tengið uppi til hægri og niðri til vinstri. Þá er bara tv out eftir og það tengist í ant in á auka boxinu. Það þarf ekki loop snúru á auka boxið nema að þú ætlir að senda merkið áfram. Ferð svo bara í handvirka leit og leitar á U48 (líklega). Tékkaðu líka á U27 og U28, það er UHF greiða.