Síða 1 af 1
Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Þri 13. Okt 2009 22:48
af dogalicius
Sælir félagar, mig langar að fá að vita ykkar álit á þessu og hvað væri best fyrir mig að gera.
Græjunar eru eftitaldar.
Heimabíósett
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=HKTS11BKHeimabíómagnari
http://www.hataekni.is/vorur/hljomtaeki ... ar/pnr/706svo er ég líka með
http://www.kef.com/GB/SurroundSound/FiveTwo/model11Svo var ég líka að eignast þennann
http://www.china-highend-hifi.com/prod0112341245.htmog það sem ég er að spá hvort það sé til einhver skymsamlegt lausn til að tengja þetta allt saman??
það sem mig myndi langa væri að nota kef hátalarana og sterio magnarann og geislann fyrir music, og svo heimabíómagnarann og harman/kardon fyrir myndir og svona.
jæja hef þetta ekki lengra núna, vona að það sé hægt að skilja þetta hjá mér.
Mbk
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 00:28
af flottur
hmmmm
Þú færð þér DVD spilara tenigr við
http://www.hataekni.is/vorur/hljomtaeki/magnarar/p tengir svo þetta við heimabíómagnaran
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=HKTS11BK og þá ertu kominn með kerfi sem er fyrir DVD
Færð þér geislaspilara og tengir
http://www.china-highend-hifi.com/prod0112341245.htm saman og
http://www.kef.com/GB/SurroundSound/FiveTwo/model11 við hann líka.
Yamaha magnarinn býður samt upp á endalausa möguleika þannig að þú getur í raun og veru leikið þér alveg eins og þú vilt.
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 00:37
af dogalicius
já takk fyrir svarið, en málið er að ég á dvd spilara og allt það, er með xbox 360 , ps3 og media center pc tengt allt við heimabíómagnarnn, en það sem ég er að spá er hvort ég geti ekki bara notað þessa kef háltalara sem fronta fyrir heimabíókerfið , en semssagt samt haft þá tengda við sterio magnarann, svo er ég að spá með bassaboxið hvort það sé eitthvað hægt að nota það við þennann sterio magnara líka því það mætti vera eilítið meiri bassi í þessum kef hátölrum.
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 03:23
af stebbi-
Eru seðlar í þínu baðkari félagi....það er nú bara hundraðþúsund þetta og hundraðþúsund hitt af þessu dóti O.O
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 04:45
af dogalicius
hehe nei ekki aldeilis, er bara ekki fæddur í gær
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 09:48
af codec
Eru ekki preout tengi á yammanum fyrir front hátalara? Þá gætir þú tengt sterio magnaran þar í og yamminn er þar með n.k. preamp fyrir sterio magnarann.
Það er kannski ekki setup fyrir audio-púritana en gæti gengið.
Þegar þú hlustar á tónlist í svona setup-i þá er sennilega best að stilla yamman þannig hljóðið fari beint í gegnum hann, "pure direct" eða hvað það heitir. Þá fer merkið framhjá öllum (flestum) rásum sem geta haft áhrif á merkið og beint í outputin.
Einn gallinn er auðvitað sá að þá er alltaf báðir magnaranir í gangi.
Það eru líka til svona "Speaker switch-ar" spurnig hvort þessir hér eigi lausnir til að velja á milli
http://www.russound.com/speaker_selectors.htm.
Eða þessi hér
Niles Audio DPS-1 - Amazon.comÉg veit reyndar ekki hvort/hvaða áhrif svona græjur hafa á hljóðið.
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 10:00
af raekwon
ertu að spá semsagt að nota stereo magnarann sem aukakraft á heimabíóið í frontinn og líka til að sjá um afspilun af cd ?
ég myndi allavega tengja það þannig og nota front out á dvd spilaranum
eða ef ert að nota 6channel tengi á heimabíómagnaranum þá ættirðu að nota 6channel front out á heimabíómagnaranum yfir í stereo magnarann og þá geturðu nýtt dvd sem cd eða hvernig sem er og kannski best að finna bara sound out sem spilar alltaf það sem er í gangi á heimabíómagnaranum yfir á stereo og þá geturðu lækkað á heimabíó og kveikt á stereo og þá er alltaf möguleiki að nýta sorruond í hljóð og bæta svo bara við þegar vilt meiri kraft með stereo magnaranum
þannig setup getur raun bætt endalaust við hátölurum á sömu rásir
ég var með svona aukafront sem var reyndar við heimabíómagnarann enda mjög flottur thx magnari með a+b rásir og það munaði rosa að vera með stóra fronta til að bæta inní svona þegar mar vildi hækka soldið duglega en ég held þú viljir ekki missa sorround hljóðið þótt sért að hlusta á cd fyllir svo vel að fá þetta allan hringinn og ætti að vera stilling í magnaranum að jafna front back í music hét á mínum PLII minnir mig
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 10:19
af dogalicius
Codec jú það er það er preout, þarf ég þá alltaf að vera með kveikt á yammanum? og svo líka er einhver leið til að nota bassaboxið með þessum 2 ? eða er ég alveg í ruglinu með það??
og raekwon þetta er meira svona purist dæmit
eins og codec réttilega sagði, ég skil alveg hvað þú ert að meina, en það er bara stór munur á góðri tónlist í sterio hljóði og síðan í surround, það er ekki hægt að líkja því saman, eins flott og surround er þá get ég sagt þér að ég fæ 10 meiri gæsahúð á að hlusta á það sem ég fýla í þessum kef með sterio magnarnn!
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 17:23
af dogalicius
er semsagt ekkert hægt að nota bassaboxið við þessa 2 saman?
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 17:40
af codec
jú afhverju ekki, með því að tengja preout úr yammanum í sterio magnaran og láta yamman sjá um subbinn það eru sér sub tengi á honum.
Græju nördar (audiophiles) myndu sennilega gretta sig og vilja hafa þetta tengt sér, en þetta ætti að vera hægt svona og þá er bara að prófa og athuga útkomuna. Eyrun þín eru eini rétti mælikvarðinn á setupið.
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 20:09
af dogalicius
Ok takk fyrir það codec
ég ætla að skella mér í þetta á eftir eða annað kvöld. skal láta þig vita hvernig fer.
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 20:31
af Pollonos
Ég er með góðan NAD heimabíómagnara, en maður slekkur bara a surround hlutanum ef verið er að hlusta á tónlist og stillir á Stero output og slekkur á öllum Dolby eða THX fídusum (gerist sjálkrafa þegar ég stilli á tónlistarinput). Get ekki séð að ég sé neitt svikinn af þvíl, en ég er svosem ekki mikill audiophile!
Þessi Yamaha magnari er hin fínasta græja þannig að ég skil ekki fyrir fimm aura þetta setup sem hér er verið að lýsa...!
Re: Hjálp við að tengja heimabíó magnara og sterio magnara saman
Sent: Mið 14. Okt 2009 21:16
af dogalicius
Nei ég skil það svosem að menn skilji þetta ekki alveg, og þessir heimabíó magnarar alveg frábærir, en ég ákvað að kaupa mér þennann heimabíómagnara til að sannreyna það sem ég hef verið að lesa á netiniu og líka það sem ég hef heyrt frá mönnum sem eru allir í þessu, og ég er bara orðlaus yfir hvað það er allt annanð að hlusta á þessa kef hátalra í sterió magnarum, bara ótrúlegt hefði varla trúað þessu sjálfur, en já það er sko munur.