Síða 1 af 1

Heimabíó Hátalari

Sent: Fim 13. Ágú 2009 05:58
af Blasti
Jæja strákar

Er eitthvað vit í þessu hérna http://www.eico.is/?item=101&v=item

Ódýrt, væri gaman að fá að vita hvort einhver hér hafi reynslu af þessu eða hafi heyrt í svona græju

Re: Heimabíó Hátalari

Sent: Fös 14. Ágú 2009 15:55
af Narco
Þú veist að þetta jafnast aldrei á við 5.1 kerfi!!

Re: Heimabíó Hátalari

Sent: Fös 14. Ágú 2009 16:16
af Glazier
var einu sinni með svona og þetta er allveg að virka fínt sko..
en 5.1 kerfi er náttla alltaf betra :P

Re: Heimabíó Hátalari

Sent: Fös 14. Ágú 2009 16:31
af Matti21
Svona ódýr tæki....í stuttu máli, nei þetta virkar ekki rassgat.
Í nokkuð kassalaga herbergi með veggjum sitthvoru megin við eru td. yamaha YSP stokkarnir sem hátækni er að selja að virka þokkalega vel. Jafnast aldrei á við alvöru 5.1 set-up en nógu vel til þess að maður mundi íhuga þetta ef maður getur ekki lifað með snúrur með fram veggjunum.
En þar er líka einhver tæknibúnaður á bakvið þetta. Stefnuvirkir hátalarar og græjan stillir sig eftir herberginu og veit c.a hvað er langt í næsta vegg o.s.frv.
Hef ekki heyrt í nákvæmlega þessum stokk en í svona ódýrum græjum eru þetta bara mikið af hátölurum í einum kassa sem gera lítið annað en að senda allar hljóðrásirnar beint í andlitið á þér sem veldur því að hljómurinn verður bara drullugur og leiðinlegur.
Ert mun betur settur með góða stereo hátalara eða bara ódýrt 5.1 sett. Skil ekki þetta vesen með fólk og að þola ekki snúrur. Treður þessu bara bakvið lista eða leggur þetta snirtilega með fram veggjunum...ekki mikið mál...