Síða 1 af 1
Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 04. Ágú 2009 21:20
af ivarhauk
Sælir,
http://www.eico.is/?item=211&v=itemVar að velta því fyrir mér hvort einhver á svona græju hérna og hvernig hún væri að virka?
Á þetta ekki að geta spilað flest allt?
Borgar það sig að kaupa þetta á eBay og hvað hafið þið fengið þetta á mikið sent heim?
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 04. Ágú 2009 21:31
af einarornth
Ég á gömlu útgáfuna. Frábær græja.
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 04. Ágú 2009 21:43
af hagur
Ég á A-100 og tekur undir með Einari, snilldar apparat!
Eini gallinn sem ég hef rekið mig á er að hann er ekki með internal decoder fyrir DTS, þannig að til að geta fengið hljóð í DTS fælum þarftu að vera með hann tengdan við heimabíómagnara í gegnum optical/coaxial SP-DIF og magnarinn þarf auðvitað að styðja DTS. Ég nota minn bara inn í svefnherbergi tengdan við gamlar fermingargræjur með RCA og því fæ ég aldrei hljóð í .mkv skrám með DTS audio track.
Ég keypti minn notaðan á E-bay. Reyndar alveg í mint condition, ennþá í plasti og allt, en samt sem áður notaðan. Hingað kominn með flutningi og öllum gjöldum var hann á milli 40-50 þús. Hefði ég vitað hversu mikið þetta er "tollað" til andskotans (tollur/vsk/vörugjöld rúmlega tvöfölduðu verðið) þá hefði ég líklega sleppt þessu alveg. Plús það að dollarinn var lægri þá en hann er í dag.
Ég tel að þetta verð hjá Eico sé alveg hóflegt, fyrir 55þús færðu nýrri týpu, alveg ónotaða og þarft ekki að bíða í 1-2 vikur á meðan hann er á leiðinni til landsins.
Þetta er dýr græja, en ég fullyrði að þú verður ekki svikinn. Af mörgum talinn vera besti sjónvarspflakkari sem fáanlegur er.
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Fös 07. Ágú 2009 23:44
af ivarhauk
Takk fyrir frábært svar hagur
Held að maður verði nú bara að skella sér á þessa græju!
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Fös 07. Ágú 2009 23:51
af coldcut
Já endilega skelltu þér á þennan spilara José
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Sun 13. Sep 2009 22:00
af esja
Eg er með svona popcorn a-110 bara super spila allt og er mjog fint BEST TIL A MARKAÐ
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Sun 13. Sep 2009 23:16
af Krisseh
Mér finnst þeir svo dýrir, er ekki hægt að fá eitthvað sem spilar allt og eru endinga góðir fyrir 30þ ?
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Mán 14. Sep 2009 09:20
af Some0ne
Á svona týpu, og er með annan 1TB flakkara sem er nettengdur á innranetið, er ekki með HD í PCH flakkaranum en streama allt af hinum. Hef enn þann dag í dag ekki lent í faili með spilun á skrá, og hann streamar full HD hnökralaust. Ofaná þetta allt er rugl mikið sem er hægt að customiza þá, en ég hef ekki ennþá nennt því.
Hinsvegar er komin ný týpa af þessum flakkara sem er töluvert meira badass, það er hægt að setja Blu-ray drif í hann og hd. Auk þess að það er LCD skjár framaná sem að hefði verið fínt á eldra módelið.
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Mán 14. Sep 2009 10:14
af Televisionary
Ég á Poppcorn A-110 sem er lítið notað og safnar ryki. Fæst fyrir 40K ef einhver hefur áhuga þá vinsamlegast svarið mér í PM. Ég vil ekki fremja þráðarán um hábjartan dag.
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Mán 14. Sep 2009 14:05
af GuðjónR
Ef menn eru að spá í eitthvað sem spilar allt og eru tilbúnir í að borga 55k fyrir utan HDD sem kostar 15-20k auka af hverju ekki að fara alla leið og fá sér
flakkara á sterum?
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Fim 17. Sep 2009 16:57
af demeNte7
Ég keypti mér græjuna og er með 1,5TB disk inni í honum. Eina vandamálið sem mér finnst er að harði diskurinn (internal) þarf að vera formattaður á ext3 svo hann geti keyrt UNIX kerfið sem NMT er. Þar sem að Mac styður ekki þennan format hef ég þurft að setja inn driver svo að ég geti skoðað file-a á harða disknum með hann USB-tengdan en þessi driver er mjög óstabíll og hefur gert mér lífið leitt. Þ.a.l. hef ég alltaf þurft að færa file-a inn á hann með því að nota FTP server sem er ágætur til síns brúks en hámarkshraðinn er u.þ.b. 2MB/s og því getur þetta verið lengi að líða þegar maður er að setja inn myndir sem eru 5-6GB eða þá heilar þáttaseríur.
Annars er spilarinn fínn og hefur ekki enn lent í vandræðum með afspilun á efni.
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 22. Sep 2009 20:21
af coldcut
hvað...ertu bara á mörgum accountum eða?
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 22. Sep 2009 20:48
af GuðjónR
coldcut skrifaði:hvað...ertu bara á mörgum accountum eða?
lookar þannig að ivarhauk og demeNte7 sé sami gaurinn
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 22. Sep 2009 20:54
af ivarhauk
Já óvart..
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 22. Sep 2009 21:31
af GuðjónR
ivarhauk skrifaði:Já óvart..
óvart? stofnaðir alveg óvart annan user og hafðir fyrir því að setja inn avatar og læti
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 22. Sep 2009 22:35
af coldcut
Það þarf náttúrulega að banna svona vitleysisgang. Menn geta notfært sér þetta í söluþráðum
Re: Popcorn Hour A-110
Sent: Þri 17. Nóv 2009 13:25
af hallgrg
Eru menn ekkert að lenda í vandræðum með Windows 7 og þessa græju? Notar hann ekki samba share?