Síða 1 af 1
Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 02. Jan 2009 04:30
af davidsb
Sælir
Ég var að splæsa í svona kvikindi
http://www.wdc.com/en/products/products.asp?driveid=572 eftir að hafa verið að skoða svona sjónvarpsspilara undanfarið, létt jólagjöf frá mér til míns
Þetta kostaði mig 78 pund sem gera ca 14 þús kall miðað við gengið 178.
Ég sá að Tölvulistinn er með þennan sama flakkara á 29.900
http://www.tl.is/vara/11468Keypti mér líka Western Digital My Book Essential Edition 1TB external hd til að hafa með þessu ásamt 16gb USB lykli. Allur pakkinn á 182 pund sem ég myndi halda að væri vel sloppið.
Eeeen nóg komið af monti
Ég var að spá í hvort einhver hérna eigi svona og hvernig reynslan er af þessu, ég er búinn að gúggla þetta til fjandans og ekkert fundið nema jákvæðar umfjallanir, eini gallinn sem ég sé er að það sé ekki innbyggður HD og spilar ekki DRM efni. en það skiptir mig ekki máli þar sem þetta verður ekki mikið fært til, nota þá bara usb lykilinn, ég var meira að leita að spilara sem færi létt með HD efni og sérstaklega þá 1080 myndir ásamt því að vera hljóðlátur. Þessi virðist ráða vel við það ásamt að spila nánast öll formats af hvort sem það er hljóð eða mynd. Hann spilar h264 og x264 samkvæmt öllu sem ég les þrátt fyrir að x264 sé ekki inní supported format. Sýnist líka á öllu að WD verði með almennilegt support við þennan spilara, kom nýtt firmware 3 vikum eftir að þetta fór í sölu sem lagaði nánast allt sem kvartað var yfir í byrjun.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 02. Jan 2009 10:14
af Hyper_Pinjata
Helvíti fallegt kvikindi líka
ef þú ert með hd sjónvarp (sem ég rétt vona) þá Verðurðu að prófa The Day After Tomorrow í HD,720p er mjög fínt en 1080p er ennþá betra
hún lýtur svo ógeðslega vel út í háskerpu að ég nánast sleiki tölvuskjáinn hjá mér þegar ég kíki á hana,i'm not lying about that by the way.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 02. Jan 2009 11:59
af Matti21
X264 og H.264 eru sami codecinn. Alveg eins og Dvix og Xvid er sami codecinn. X264 er bara freeware útgáfa af H.264 codecinum. Þessi græja er búinn að fá ágætis dóma erlendis. Í bandaríkjunum er litið á þetta sem svona "the poor mans alternative to popcornhour. Hann spilar flest það sem popcornhour græjurnar eru að spila. Þeir eiga alveg að ráða við basic x264 encode með AC3 hljóði. Ef þú villt hinsvegar geta spilað skrár með DTS hljóði þarftu að tengja boxið við magnara sem ræður við DTS afkóðun með optical kapal.
Mér skilst að þetta box sé, eins og popcornhour og langflestir HD spilarar, takmarkað við x264 Level 4.1 svo þú ættir að athuga með Level-in á þeim HD skrám sem þú átt áður en þú reynir að neyða hann til þess að spila þær. Getur notað forrit eins og MediaInfo til þess. Lang flestir góðir encoders eins og Esir og Eureka nota alltaf level 4.1 en óþektir encoders og scene grúppur eiga oft til að nota level 5.1
Verðið á þessari græju hérna á íslandi er náttúrlega grín og ég neita að trúa því að einhver hérna heima kaupi þetta. Ég mun allavega ekki hika við að kaupa þetta ef ég fer eitthvað erlendis á næstunni.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 02. Jan 2009 21:34
af davidsb
verðið hækkaði um 10 þús kall hjá tölvulistanum í dag, fór úr 29.990 í 39.990
Vandamálið með DTS hljóð er ekki erfitt, er með proggy sem convertar því í AC3 á svona 10-15 min.
hér er líka gígantískur þráður um spilarann á avs forum
http://www.avsforum.com/avs-vb/showthread.php?t=1080840 næstum komið 3000 post í þennan þráð.
ég vildi ekki Popcornhour því ég var að leita eftir hljóðlausu, litlu og lúkker
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Mán 05. Jan 2009 10:31
af Halli25
Þar sem við búum í tollaparadís!!! þá þurfum við aðeins að borga 35% tolla og höfundarréttar gjöld á öllu sem sendir merki í viðtæki eins og sjónvarp plús vsk!!! svo þú getur ímyndað þér hvað TL eða sá sem flytur þetta inn þarf að borga í gjöld af spilaranum. Svipað og er á iPods.
Ég nældi mér í þennan spilara og er verulega sáttur, einfaldur í notkun og góð gæði í 1080p... eina sem ég lenti í veseni með er mkv fælar með DTS.. á eftir að prófa með optical kapal í græjurnar mínar... vona að það fixxi það.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Mið 07. Jan 2009 23:32
af davidsb
Hann sér ekki um DTS því gjaldið á DTS leyfinu er dýrt. En hann hleypir merkinu í gegnum optical og ef þú ert með heimabíó þá á það að virka.
En gæjar eins og ég sem eiga ekki heimabíó converta bara dts í AC3 á 5 min með rétta forritinu.
Svo gæti verið sniðugt að update'a firmware ef þú ert ekki búinn að því.
http://www.wdc.com/en/products/wdtv/*Edit*
Sýnist ég þurfa að borga ca 15 þús í gjöld af þessu samkvæmt reiknivélinni á tollur.is
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 08. Jan 2009 10:09
af Halli25
davidsb skrifaði:*Edit*
Sýnist ég þurfa að borga ca 15 þús í gjöld af þessu samkvæmt reiknivélinni á tollur.is
svo þú græddir ekkert á að kaupa þetta úti og ert ekki með ábyrgð hérna heima
GG
:)
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 08. Jan 2009 19:44
af davidsb
jújú, fyrir 1tb external hd disk og spilarann borgaði ég 32 þús, ef ég borga 15 þús í gjöld þá er það 47 þús total. Bara spilarinn hérna heima er á 39.900. Harði diskurinn kostar 35.000 svo ég er að spara helling.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 08. Jan 2009 20:17
af Gúrú
davidsb skrifaði:jújú, fyrir 1tb external hd disk og spilarann borgaði ég 32 þús, ef ég borga 15 þús í gjöld þá er það 47 þús total. Bara spilarinn hérna heima er á 39.900. Harði diskurinn kostar 35.000 svo ég er að spara helling.
http://www.computer.is/vorur/7001?
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 08. Jan 2009 20:26
af blitz
Gúrú skrifaði:davidsb skrifaði:jújú, fyrir 1tb external hd disk og spilarann borgaði ég 32 þús, ef ég borga 15 þús í gjöld þá er það 47 þús total. Bara spilarinn hérna heima er á 39.900. Harði diskurinn kostar 35.000 svo ég er að spara helling.
http://www.computer.is/vorur/7001?
Þetta er external HD hvernig?
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 08. Jan 2009 20:35
af Gúrú
blitz skrifaði:Gúrú skrifaði:davidsb skrifaði:jújú, fyrir 1tb external hd disk og spilarann borgaði ég 32 þús, ef ég borga 15 þús í gjöld þá er það 47 þús total. Bara spilarinn hérna heima er á 39.900. Harði diskurinn kostar 35.000 svo ég er að spara helling.
http://www.computer.is/vorur/7001?
Þetta er external HD hvernig?
Las bara 1TB afsakið.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 30. Jan 2009 00:04
af stankonia
sælt veri fólkið
þetta er kannski frekar vitlaus spurning en virkar þessi spilari með gömlum "túbu" sjónvörpum? er ekki enn búinn að fjárfesta í flottum flatskjá (er þó planið í nánustu framtíð).
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 30. Jan 2009 00:30
af coldcut
stankonia skrifaði:sælt veri fólkið
þetta er kannski frekar vitlaus spurning en virkar þessi spilari með gömlum "túbu" sjónvörpum? er ekki enn búinn að fjárfesta í flottum flatskjá (er þó planið í nánustu framtíð).
verð að viðurkenna að ég veit ekki hvort hann virki..spurning hvort það sé ekki bara HDMI tengi á þessu, og þá virkar hann ekkert.
En þú kaupir þér náttúrulega ekki svona HD spilara og notar hann við túbuskjá. Það er eins og að kaupa sér Porsche 911 og nota hann í að smala rollum.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 30. Jan 2009 00:41
af stankonia
hehe kannski. planið er að kaupa drauma sjónvarpstækið í júní (þegar næstu námslán kikka inn) og því var ég að pæla hvort þessi flakkari myndi virka í þessa mánuði fram að því ...
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 30. Jan 2009 07:47
af Viktor
stankonia skrifaði:hehe kannski. planið er að kaupa drauma sjónvarpstækið í júní (þegar næstu námslán kikka inn) og því var ég að pæla hvort þessi flakkari myndi virka í þessa mánuði fram að því ...
http://www.att.is/product_info.php?prod ... b29a1b3472
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fim 26. Feb 2009 13:51
af Baloo
Svona til ða spyrja hvernig convert-ið þið DTS yfir í AC3. Ég er búinn ða reyna svo margt og það gengur aldrei neitt. Gætuð þið hjálpað mér?
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Lau 07. Mar 2009 01:40
af 1337x
Ég er búin að eiga þetta í dágóðan tíma og ég get ekki kvartað. Eina sem er að angra mig er að stundum kviknar ekki á honum þegar í ýti á turn on takkann, og þá þarf ég að aftengja rafmagnssnúruna og tengja hana aftur í og þá kviknar á honum.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Lau 07. Mar 2009 19:37
af Gúrú
1337x skrifaði:Ég er búin að eiga þetta í dágóðan tíma og ég get ekki kvartað. Eina sem er að angra mig er að stundum kviknar ekki á honum þegar í ýti á turn on takkann, og þá þarf ég að aftengja rafmagnssnúruna og tengja hana aftur í og þá kviknar á honum.
Skráðir þig til að segja þetta á 95 daga gömlum þræði
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Mán 09. Mar 2009 11:41
af Halli25
1337x skrifaði:Ég er búin að eiga þetta í dágóðan tíma og ég get ekki kvartað. Eina sem er að angra mig er að stundum kviknar ekki á honum þegar í ýti á turn on takkann, og þá þarf ég að aftengja rafmagnssnúruna og tengja hana aftur í og þá kviknar á honum.
Búinn að uppfæra firmware á honum? Lagaðist hjá mér þegar ég uppfærði hann.
http://www.wdc.com/en/products/wdtv/skellir á usb minnislykil og ferð í valmyndina og velur update og voila færð miklu betri spilara
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 20. Mar 2009 00:23
af davidsb
Baloo skrifaði:Svona til ða spyrja hvernig convert-ið þið DTS yfir í AC3. Ég er búinn ða reyna svo margt og það gengur aldrei neitt. Gætuð þið hjálpað mér?
Betra seint en aldrei....
Downloadaðu þessu
http://audioconverter.heartware.dk/og lestu þetta
http://audioconverter.heartware.dk/Tutorial/ætti að ganga eins og í sögu þá.
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 20. Mar 2009 12:18
af Legolas
HANN SPILAR EKKI ISO FÆLA
pice of shit
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 20. Mar 2009 14:59
af Gúrú
Legolas skrifaði: HANN SPILAR EKKI ISO FÆLA
pice of shit
Hættu að red bolda... og af hverju ertu að pirra þig útaf því?
Þú vissir þegar að þú keyptir hann (ef að þú keyptir svona) að hann gerir það ekki..
Re: Western Digital HD Media Player.
Sent: Fös 20. Mar 2009 20:56
af Legolas
Hehe chill dude, þessvegna keypti ég hann ekki