Síða 1 af 1

Digital Ísland tíðni

Sent: Lau 16. Ágú 2008 18:50
af arro
Hæ,

Þannig er mál með vexti að tengdó var að fá sér sjónvarp og það er s.s. með DVBT móttakara innbyggðum og rauf fyrir kort. Var að prófa að leita af rásum á þessu og fann ekki RÚV+ og ekki Stöð 2 Sport 2 - annað virðist koma. Það væri nefilega snilld fyrir mig að geta látið kallinn skila Breiðbandsafruglaranum og fá sér Digital Ísland í staðinn - og plögga svo kortinu þar í sjónvarpið. Myndi þýða einu tækinu minna fyrir mig að fjarstýra í gegnum síma.

Þannig að nennir einhver þarna úti sem er með Digital Ísland að tékka hvort hann sé með RÚV+ og Stöð2 Sport2 ? Væri fínt ef sá sami nennti að tékka á tíðninni því allvega finnur sjónvarpið þær ekki beint.

kv/

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Mán 18. Ágú 2008 00:19
af ÓmarSmith
Þú getur ekki notað þessa rauf á TV inu. Virkar ekki á Íslandi. Eða virkar e-ð takmarkað EF það virkar á annað borð.

Þannig að þú getur bara hætt að reyna. ;)

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Mán 18. Ágú 2008 00:48
af coldone
Þetta er ekki rétt hjá þér Ómar. Ég spurði gaurana hjá Eico um þetta og þar var mér sagt að þetta gangi en þeir hjá 365 þurfa að breyta kortinu eitthvað. Hvað það er sem þarf að gera veit ég ekki en þetta var mér tjáð en hef ekki tékkað á þessu hjá 365.

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Þri 19. Ágú 2008 12:50
af ÓmarSmith
Mér skildst af e-m, að þeir hjá STöð 2 hefðu læst á þetta því þeir vilja koma sínum lyklum út.

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Fim 21. Ágú 2008 23:17
af axyne
Virkar í sumum sjónvörpum með innbyggðu DTV-T og með kortarauf.

hef lent í því að sjónvarpið endurnyji ekki áskriftina þannig þarf að hringja reglulega og láta 365 skjóta á kortið.

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Fös 22. Ágú 2008 00:11
af hsm
Hvenær skildi sá dagur renna upp að hlutirnir bara virki í allri þessari tækni :shock:

Re: Digital Ísland tíðni

Sent: Fös 22. Ágú 2008 22:50
af Gúrú
hsm skrifaði:Hvenær skildi sá dagur renna upp að hlutirnir bara virki í allri þessari tækni :shock:


Þegar kínverjarnir taka yfir heiminn í samstarfi við Japan.