Síða 1 af 1

Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 11:56
af Snæri
Hvaða búnað mælið þið með til að skrá orkunotkun? Þyrfti 3-5 skynjara sem fara utan um víra undir öryggi í rafmagnstöflu. Er með home assistant og fær um að nota raspberry pi, arduino eða esp32 o.s.frv.

Það sem ég er að skoða núna:
Skynjarar/nemar
https://www.faranux.com/product/sct013-non-invasive-clamp-ac-current-sensor-100a-sen/
https://www.discomp.cz/proudovy-senzor-sct-01_d85275.html
https://www.bastelgarage.ch/gravity-analog-ac-current-sensor-with-current-clamp

Controller (væri helst til í að sleppa controller ef hann er að kosta yfir ~5þ kr.)
https://www.discomp.cz/tinycontrol-lan-controller-v4_d122769.html

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 12:34
af GuðjónR
Rafmagnsmælir frá Veitum dugar fint.

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 12:42
af ejm
Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 12:49
af Snæri
GuðjónR skrifaði:Rafmagnsmælir frá Veitum dugar fint.

Er í fjölbýli og rafmagnsmælir er staðsettur langt í burtu. Væri til í að fylgjast með rafmagnsnotkun á nokkrum greinum innan minnar íbúðar. Gæti mögulega komið upp access point í mínu rými niðri og náð tengingu við mæli Veitna. Veistu hvort það séu til útgefnar leiðbeiningar um það frá Veitum?

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 12:51
af Snæri
ejm skrifaði:Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em


Takk fyrir þetta. Þetta lítur vel út. Kannski finn ég einhvern sem er til í að selja þetta nýtt/notað.

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 13:06
af Snæri
ejm skrifaði:Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em


https://tolvutek.is/Lifsstils--og-snjallvorur/Shelly/Shelly-3EM-120A-DIN-Rail-WLAN-thriggja-fasa-med-3x-straumnema/2_38453.action

Er þetta ekki græjan?

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 13:25
af TheAdder
Shelly eru með gott úrval, bæði eins fasa og 3 fasa:
https://www.shelly.com/collections/energy-metering

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 13:48
af axyne
Ef þú ætlar aðeins að pæla í heildar notkun og ert með mæli sem blikkar þá geturðu notað þetta:
https://glow-energy.io/

Ég er búin að vera nota þetta í rúm 3 ár og virkar vel.

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 13:49
af oskarom
Þetta er græjan fyrir 3 fasa: https://www.shelly.com/products/shelly-3em-63w-gen3

Þessi fyrir 1 fasa: https://www.shelly.com/products/shelly-em-gen3

Ég er svo með alla "stór-/sí-notendur" á eldir útgáfu af þessum (en kaupi þessa nýju tegund næst): https://www.shelly.com/products/shelly- ... gen3-white

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 14:30
af Snæri
Held ég taki Shelly 3EM 120A DIN-Rail sem fæst hjá Tölvutek. Er bara með eins fasa rafmagn. Þá get ég fylgst með heildarnotkun og tveimur greinum sem nota mestu orkuna. Skv. myndinni https://tolvutek.is/images/prod/B/E/B/C/BEBC9A20-89CC-44A2-8937-079D816434F5_5_big.jpg þá ætti það að ganga upp. Fæ rafvirkja til að tengja þetta allt í rafmagnstöflunni.

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Mið 04. Mar 2026 15:06
af orn
Nýju mælarnir eru víst með serial viðmót sem ég veit að fólk hefur verið að tengja snjalltæki við til að fylgjast með.

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Sent: Fim 05. Mar 2026 00:05
af sxf
Ef þú hefur áhuga á að lesa af snjallmælinum þá mæli ég með slimmelezer+ (https://www.zuidwijk.com/product/slimmelezer-plus/). Eitt email á veitur og það er opnað fyrir P1 portið. Svo fer Veitur vonandi að opna fyrir hitavatnsmælinn en þá munu þau gögn detta inn á rafmagnsmælinn líka.