Síða 1 af 1
LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fim 22. Jan 2026 23:26
af RassiPrump
Sælir kæru netverjar.
Kunningi á glænýtt LG sjónvarp með LG content store, var að fá sér áskrift af Sýn og finnur ekki Sýn app þar inni. Er einhver með lausn á þessu?
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fim 22. Jan 2026 23:37
af Viktor
Getur huggað þig við það að þú getur sett upp versta app í heimi
https://adstod.siminn.is/home/sjonvarp-simans-appid
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fim 22. Jan 2026 23:41
af Vaktari
Sýn appið er ekki komið fyrir LG.
Miðað við hvernig appið er í Samsung Android sjónvörpunum að þá hlítur eflaust að vera langt í þetta LG app.
Hækkar líka allt hjá sýn í næsta mánuði
Það er bara apple tv, eða google tv t.d. eða einhver svoleiðis lausn þangað til
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fim 22. Jan 2026 23:55
af kornelius
Er með LG TV og þar eru það tvö forrit sem virka á iptv og þau eru frá símanum og Nova.
Þessi íslensku forrit finnast ekki í leit nema vera með stillt á íslensku í "Broadcast Country"
K.
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fös 23. Jan 2026 08:12
af RassiPrump
Er hægt að vera með Sýn+ í gegnum síma appið? Það app finnst nefnilega í content store hjá LG...
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fös 23. Jan 2026 09:54
af codec
RassiPrump skrifaði:Er hægt að vera með Sýn+ í gegnum síma appið? Það app finnst nefnilega í content store hjá LG...
Stutt svar, nei það er ekki hægt eftir því sem ég best veit. Sé það ekki í mínu LG tæki.
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Fös 23. Jan 2026 22:29
af gilli666
Og þetta er ástæðan fyrir því að ég mæli einungis með sjónvörpum sem hafa google tv OS eða eitthvað open source.
Það er hægt að redda sér með öðru tæki sem þú tengir í gegnum hdmi, en þá nærðu ekki endilega þessu, fancy "eiginleikum" úr sjónvarpinu því nú er tækið að sjá um vinnsluna, ekki sjónvarpið.
Sony og Phillips, man ekki hverjir fleiri hafa þetta nice.
Re: LG sjónvarp og Sýn appið
Sent: Mán 26. Jan 2026 10:00
af dadik
gilli666 skrifaði:Og þetta er ástæðan fyrir því að ég mæli einungis með sjónvörpum sem hafa google tv IOS eða eitthvað open source.
Það er hægt að redda sér með öðru tæki sem þú tengir í gegnum hdmi, en þá nærðu ekki endilega þessu, fancy "eiginleikum" úr sjónvarpinu því nú er tækið að sjá um vinnsluna, ekki sjónvarpið.
Sony og Phillips, man ekki hverjir fleiri hafa þetta nice.
Nákvæmlega þetta, þú losnar við allt þetta vesen ef þú kaupir Android TV sjónvarp. Núna kaupi ég bara TCL.