Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?


Höfundur
Snæri
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 18. Maí 2013 00:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Snæri » Mið 04. Mar 2026 11:56

Hvaða búnað mælið þið með til að skrá orkunotkun? Þyrfti 3-5 skynjara sem fara utan um víra undir öryggi í rafmagnstöflu. Er með home assistant og fær um að nota raspberry pi, arduino eða esp32 o.s.frv.

Það sem ég er að skoða núna:
Skynjarar/nemar
https://www.faranux.com/product/sct013-non-invasive-clamp-ac-current-sensor-100a-sen/
https://www.discomp.cz/proudovy-senzor-sct-01_d85275.html
https://www.bastelgarage.ch/gravity-analog-ac-current-sensor-with-current-clamp

Controller (væri helst til í að sleppa controller ef hann er að kosta yfir ~5þ kr.)
https://www.discomp.cz/tinycontrol-lan-controller-v4_d122769.html



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17282
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2392
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf GuðjónR » Mið 04. Mar 2026 12:34

Rafmagnsmælir frá Veitum dugar fint.




ejm
Græningi
Póstar: 39
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf ejm » Mið 04. Mar 2026 12:42

Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em




Höfundur
Snæri
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 18. Maí 2013 00:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Snæri » Mið 04. Mar 2026 12:49

GuðjónR skrifaði:Rafmagnsmælir frá Veitum dugar fint.

Er í fjölbýli og rafmagnsmælir er staðsettur langt í burtu. Væri til í að fylgjast með rafmagnsnotkun á nokkrum greinum innan minnar íbúðar. Gæti mögulega komið upp access point í mínu rými niðri og náð tengingu við mæli Veitna. Veistu hvort það séu til útgefnar leiðbeiningar um það frá Veitum?




Höfundur
Snæri
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 18. Maí 2013 00:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Snæri » Mið 04. Mar 2026 12:51

ejm skrifaði:Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em


Takk fyrir þetta. Þetta lítur vel út. Kannski finn ég einhvern sem er til í að selja þetta nýtt/notað.




Höfundur
Snæri
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 18. Maí 2013 00:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Snæri » Mið 04. Mar 2026 13:06

ejm skrifaði:Fyrst þú ert með homeassistant hvort eð er, þá gætirðu prófað Shelly.
Ég er með þennan en hann er greinilega ekki lengur seldur: https://www.shelly.com/products/shelly-3em


https://tolvutek.is/Lifsstils--og-snjallvorur/Shelly/Shelly-3EM-120A-DIN-Rail-WLAN-thriggja-fasa-med-3x-straumnema/2_38453.action

Er þetta ekki græjan?




TheAdder
vélbúnaðarpervert
Póstar: 953
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 255
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf TheAdder » Mið 04. Mar 2026 13:25

Shelly eru með gott úrval, bæði eins fasa og 3 fasa:
https://www.shelly.com/collections/energy-metering


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1826
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 89
Staðsetning: DK
Staða: Tengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf axyne » Mið 04. Mar 2026 13:48

Ef þú ætlar aðeins að pæla í heildar notkun og ert með mæli sem blikkar þá geturðu notað þetta:
https://glow-energy.io/

Ég er búin að vera nota þetta í rúm 3 ár og virkar vel.


Electronic and Computer Engineer


oskarom
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 352
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 15
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf oskarom » Mið 04. Mar 2026 13:49

Þetta er græjan fyrir 3 fasa: https://www.shelly.com/products/shelly-3em-63w-gen3

Þessi fyrir 1 fasa: https://www.shelly.com/products/shelly-em-gen3

Ég er svo með alla "stór-/sí-notendur" á eldir útgáfu af þessum (en kaupi þessa nýju tegund næst): https://www.shelly.com/products/shelly- ... gen3-white




Höfundur
Snæri
Nýliði
Póstar: 21
Skráði sig: Lau 18. Maí 2013 00:01
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Snæri » Mið 04. Mar 2026 14:30

Held ég taki Shelly 3EM 120A DIN-Rail sem fæst hjá Tölvutek. Er bara með eins fasa rafmagn. Þá get ég fylgst með heildarnotkun og tveimur greinum sem nota mestu orkuna. Skv. myndinni https://tolvutek.is/images/prod/B/E/B/C/BEBC9A20-89CC-44A2-8937-079D816434F5_5_big.jpg þá ætti það að ganga upp. Fæ rafvirkja til að tengja þetta allt í rafmagnstöflunni.




orn
has spoken...
Póstar: 159
Skráði sig: Þri 18. Okt 2016 10:46
Reputation: 42
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf orn » Mið 04. Mar 2026 15:06

Nýju mælarnir eru víst með serial viðmót sem ég veit að fólk hefur verið að tengja snjalltæki við til að fylgjast með.




sxf
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 317
Skráði sig: Sun 26. Sep 2010 21:24
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf sxf » Fim 05. Mar 2026 00:05

Ef þú hefur áhuga á að lesa af snjallmælinum þá mæli ég með slimmelezer+ (https://www.zuidwijk.com/product/slimmelezer-plus/). Eitt email á veitur og það er opnað fyrir P1 portið. Svo fer Veitur vonandi að opna fyrir hitavatnsmælinn en þá munu þau gögn detta inn á rafmagnsmælinn líka.




elvarb7
Græningi
Póstar: 44
Skráði sig: Mán 12. Okt 2015 10:18
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf elvarb7 » Fim 05. Mar 2026 10:03

Socomec eru með fína split core mæla


Ryzen 7 5800x3d||ASRock TAICHI RX 9070XT||X470 Gaming 7||Corsair Vengeance 16GB 3600MHz||850 PRO 265 GB||
NVMe 960 EVO 500 GB||Predator XB1 1440p 144Hz


oskarom
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 352
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 15
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf oskarom » Mán 13. Apr 2026 10:14

sxf skrifaði:Ef þú hefur áhuga á að lesa af snjallmælinum þá mæli ég með slimmelezer+ (https://www.zuidwijk.com/product/slimmelezer-plus/). Eitt email á veitur og það er opnað fyrir P1 portið. Svo fer Veitur vonandi að opna fyrir hitavatnsmælinn en þá munu þau gögn detta inn á rafmagnsmælinn líka.


Sæll, ég er að reyna að setja upp Slimmelezer+ með snjallmælinum frá Veitum, er búinn að tengja græjuna, fékk samband við AP á græjunni og tengdi hana við mitt IoT wifi hérna heima, ég fæ hinsvegar ekki nein gildi ef ég opnað vefviðmótið á Slimmelezer+. Þurftirðu að gera eitthvað meira til að fá þetta til að virka?

Planið er svo að nota þetta til að safna tölum með Home assistant, Slimmelezer+ poppaði upp þar sem ESPHome tæki og virtist tengjast án vandræða, en auðvitað sama saga þar, engin gildi.

Ég er búinn að heyra í Veitum og þau eru búin að opna fyrir P1 portið, sendi þeim annan póst um helgina til að staðfesta og þau staðfestu að þetta væri opið og prófuð að "enduropnað" fyrir portið.

Mbk
Oskar




ABss
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Mið 25. Mar 2020 11:08
Reputation: 75
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf ABss » Mán 13. Apr 2026 11:06

oskarom skrifaði:
sxf skrifaði:Ef þú hefur áhuga á að lesa af snjallmælinum þá mæli ég með slimmelezer+ (https://www.zuidwijk.com/product/slimmelezer-plus/). Eitt email á veitur og það er opnað fyrir P1 portið. Svo fer Veitur vonandi að opna fyrir hitavatnsmælinn en þá munu þau gögn detta inn á rafmagnsmælinn líka.


Sæll, ég er að reyna að setja upp Slimmelezer+ með snjallmælinum frá Veitum, er búinn að tengja græjuna, fékk samband við AP á græjunni og tengdi hana við mitt IoT wifi hérna heima, ég fæ hinsvegar ekki nein gildi ef ég opnað vefviðmótið á Slimmelezer+. Þurftirðu að gera eitthvað meira til að fá þetta til að virka?

Planið er svo að nota þetta til að safna tölum með Home assistant, Slimmelezer+ poppaði upp þar sem ESPHome tæki og virtist tengjast án vandræða, en auðvitað sama saga þar, engin gildi.

Ég er búinn að heyra í Veitum og þau eru búin að opna fyrir P1 portið, sendi þeim annan póst um helgina til að staðfesta og þau staðfestu að þetta væri opið og prófuð að "enduropnað" fyrir portið.

Mbk
Oskar


Ég á svona óuppsettann, ertu til í að setja inn mynd af tengingum og því sem þarf að gera?




Greck
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Þri 27. Jan 2026 22:23
Reputation: 10
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvaða mælum mælið þið með til að fylgjast með rafmagnsnotkun?

Pósturaf Greck » Þri 14. Apr 2026 22:42

Þessi virkar fínt hjá mér, flæðir inní homeassistant
https://www.homewizard.com/shop/wi-fi-p1-meter/

Svo er hér facebook grúppa um ýmis mál tengd orkumælunum og P1 staðalinn
https://www.facebook.com/groups/1523716401533559
Er alltaf að bíða eftir að heitavatnsnotkunin verði exposed í gegnum P1 portið, skv því sem ég kemst næst þá er rafmagnsmælirinn heilinn sem safnar upplýsingunum frá hitaveitumæli.