Vitið þið hvort, og þá hvar, er hægt að kaupa Samsung Smarthings hérna á Íslandi?
Ég er svo að leita mér að snjallás fyrir útidyrahurðina og er að velta fyrir mér hvort einhver sé með góðar ábendingar...
Samsung Smarthings
Re: Samsung Smarthings
Smarthings hefur aldrei verið í sölu á Íslandi en sá að hubbinn var kaupauki með Samsung Note10 í forsölu þannig að það er vonandi að breytast.
Ég keypti mína brú bara á breska Amazon fyrir löngu, aðrir sem ég þekki hafa keypt á ebay bara. Ég valdi að kaupa EU útgáfuna til að fá evrópskann Z-wave stuðning, zwave í USA notar aðra tíðni en í Evrópu.

-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 397
- Skráði sig: Þri 09. Maí 2006 01:16
- Reputation: 18
- Staðsetning: /usr/local
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Smarthings
Veit ekki hvort Haraldur sé með þetta á lager en þú getur prófað að bjalla í hann
> https://smarthub.is/products/samsung-smarthub-v3
> https://smarthub.is/products/samsung-smarthub-v3
Re: Samsung Smarthings
Mæli með Danalock snjallás og Danapad takkaborði , tengist við Smartthings líka
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 99
- Skráði sig: Lau 17. Des 2005 16:06
- Reputation: 7
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Smarthings
Sælir vaktarar,
Ég var að versla mér smarthings hub á amazon.co.uk og var síðan að lesa að hann gæti verið læstur bara fyrir UK
Einhver með reynslu sem getur svarað þessu asap þannig að ég geti afpantað hann áður en það verður of seint.
Takk takk

- Póstar: 310
- Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
- Reputation: 64
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Smarthings
Gormur11 skrifaði:Sælir vaktarar,
Ég var að versla mér smarthings hub á amazon.co.uk og var síðan að lesa að hann gæti verið læstur bara fyrir UK
Einhver með reynslu sem getur svarað þessu asap þannig að ég geti afpantað hann áður en það verður of seint.
Takk takk
Ég pantaði einmitt minn Smartthings frá Amazon.co.uk í fyrra. Ég lenti í smá basli með hann í upphafi. Það skiptir nefnilega máli hvar þú ert með Samsung account. Ég var með íslenskan Samsung account og gat því ekki bætt við neinum skynjurum. Skipti því yfir í USA Samsung account sem ég bjó til en þá lenti ég í því að einingakerfið frá skynjurunum var amerískt, semsagt fahrenheit. Það getur vel verið að það sé stillanlegt en ég endaði á því að búa til breskan Samsung account og þá fór þetta loksins að dansa saman
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 310
- Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
- Reputation: 64
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Smarthings
Gormur11 skrifaði:Semsagt ef ég bý mér til UK account þá á þetta að virka allt saman?
Það er mín reynsla. Þarft mögulega að koma frá breskri ip tölu til þess að fá að stofna breskan account. Ég þurfti þess á sínum tíma. Fékk félaga minn sem bjó í Skotlandi til þess að græja account fyrir mig. Gætir líka gert þetta með einhverjum VPN göldrum.
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 397
- Skráði sig: Þri 09. Maí 2006 01:16
- Reputation: 18
- Staðsetning: /usr/local
- Staða: Ótengdur
Re: Samsung Smarthings
Ég keypti 2 höbba hjá Curry's í UK og gaf svila mínum og einum félaga ..
Setti þá báða upp með nýja smartthings appinu .. ekkert vandamál eða region block.
Setti þá báða upp með nýja smartthings appinu .. ekkert vandamál eða region block.