Ekki vill svo vel til að einhver geti leiðbeint mér aðeins. Þannig er að myndlykillinn sem ég er með er fastur á upphafsskjánum, þessum sem er með Vodafone logoinu og segir "Augnablik Myndlykill ræsir sig" og hefur ekki komist lengra síðan í fyrradag. Ég er búinn að prófa að endurræsa bæði lykil og router nokkrum sinnum, fara yfir allar snúrur og allt virðist vera í lagi. Hann tók inn einhverja uppfærsu og ég hef ekki séð sjónvarp síðan.
Þetta er svarti Amino lykillinn: http://www.vodafone.is/sjonvarp/bunadur/amino140/
Mig er farið að sárvanta Stephen Fry inn í stofu
Vodafone myndlykill harðneitar að ræsa sig
-
- Vaktari
- Póstar: 2581
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 479
- Staða: Ótengdur
Re: Vodafone myndlykill harðneitar að ræsa sig
Ég reyndi það, beið í korter og gafst upp á biðinni. Ákvað svo að spyrja hér áður en ég reyni aftur.
-
- Vaktari
- Póstar: 2581
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 479
- Staða: Ótengdur
Re: Vodafone myndlykill harðneitar að ræsa sig
farðu þá í netspjall Vodafone, á vefsíðu þeirra.
Gengur nokkuð hratt fyrir sig þar, og þarft ekki að bíða með tólið við hausinn.
Gengur nokkuð hratt fyrir sig þar, og þarft ekki að bíða með tólið við hausinn.
Re: Vodafone myndlykill harðneitar að ræsa sig
Aah, ég var búinn að gleyma þeim fídus. Ég fer þangað, takk