Sælt veri fólkið.
Þannig er mál með vexti að ég er með WDTV Live spilara og 2 TB harðan disk tengdan í það. Ég er hins vegar spenntur fyrir því að breyta til. Bæði vantar mig heimilistölvu (ekki öfluga fyrir leiki og þess háttar) og svo er ég spenntur fyrir því að setja upp XBMC á einhverju tæki og spila beint af harða disknum í því.
Eftir því sem ég best veit eftir rannsóknarvinnu mína er besta lausnin að losa mig við WDTV Live og kaupa einhverja HTPC sem ég get tengt með hdmi tengi í sjónvarpið og usb í flakkarann og setja upp xbmc þar. Einnig myndi ég þá nota þá tölvu fyrir allt niðurhal (aðeins löglegt að sjálfsögðu ) sem og að fara á internetið, tengjast tölvupóstinum, streama video af netinu og allt sem maður gæti þurft venjulega tölvu í.
Allsstaðar sem ég fer á netinu er mælt með því að setja saman sína eigin HTPC tölvu sem uppfyllir þær kröfur sem maður hefur. Nú er ég temmilega tæknisinnaður en ekki svo að ég sé að fara að kaupa stakt móðurborð, skjákort, CPU og þess háttar og púsla því öllu saman á réttan hátt. Því vantar mig ráðleggingar, er ekki hægt að kaupa tilbúna HTPC eða fá einhvern til að græja svona pakka fyrir mann fyrir litla umbun?
Ég hef ekki fundið mikið af tilbúnum svona tölvum til sölu, eina sem ég sé á landinu núna er Xtremer Ultra sem er til sölu hjá Advania (https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... b8be82b6ed). Hefur einhver reynslu af þessari græju? Svo hef ég heyrt að Acer Revo RL100 sé svaka græja en ég sé hana ekki til sölu hér á landi sem stendur.
Öll aðstoð er vel þegin!
kv. snosig
Vantar aðstoð við val á HTPC
-
- Besserwisser
- Póstar: 3120
- Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
- Reputation: 454
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar aðstoð við val á HTPC
Tilbúnar HTPC vélar er alveg hægt að fá, t.d hér: http://tolvutaekni.is/index.php?cPath=23_114
HTPC vél er samt í rauninni bara venjuleg PC tölva. Það sem er frábrugðið er oftast bara kassinn sem þær koma í, og svo fylgir oftar en ekki einhver þægileg fjarstýring með. Þær er þó hægt að kaupa stakar nánast hvar sem er. Það er því ekkert sem segir að þú þurfir endilega að kaupa íhluti og púsla þinni eigin tölvu saman, þú getur í raun keypt hvaða PC tölvu sem er til að nota í þetta. Þú færð varla tölvu í dag sem ekki er með HDMI út.
Svona mini tölvur eins og Acer Revo er hægt að fá hjá Tölvutek: http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-rev ... olva-svort Gallinn við þær er að þó að þær dugi yfirleitt í media afspilun og svoleiðis (með GPU acceleration), þá eru þær oftar en ekki frekar máttlausar að öðru leyti og því ekkert voða sprækar í venjulegri vinnslu.

- Tölvutryllir
- Póstar: 684
- Skráði sig: Þri 02. Jún 2009 14:37
- Reputation: 46
- Staðsetning: Gardentown
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar aðstoð við val á HTPC
Ég er með þetta frá tölvutækni :
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=23_114&products_id=2096&osCsid=7263026bb7f18c5808522f92a1f2ccb0 ásamt http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_36&products_id=2128 í staðin fyrir geisladrifið sem fylgdi með
Lét setja annan svona http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2217 því geysmslu plássið var ekki nógu mikið.
Síða fannst mér stýrikerfið vera lengi að starta sér(eftir fyrstu kynni við SSD) þannig að ég fékk mér svona http://www.computer.is/vorur/3526/
fyrir stýrikerfið.
Og síðan setti ég svona skjákort http://www.testberichte.de/p/gigabyte-tests/radeon-hd-4850-silent-cell-gv-r485mc-1gh-testbericht.html í kassan og
Windows 7 og þetta er bara fínasti gripur til að hafa í stofunni(konan voða ánægð yfir því að það sé ekki turn hlunkur) gerir allt sem ég vill og þarf nema spila leiki.

Lenovo Legion dektop.