Síða 1 af 2
Yfirlit yfir verslanir ?
Sent: Mán 03. Jan 2005 13:10
af siggi_arni_svnb
Sæl veri þið og gleðilegt nýtt ár.
Ég var að reyna finna einhverskonar yfirlit yfir tölvuverslanir og hversu góða þjónustu þær veita. Þá aðalega þær verslanir sem manni ber að vara sig á. Því ég hef engan áhuga á að kaupa köttinn í sekknum.
Ég prufaði að leita að
"slæm þjónusta" og þess háttar í leitinni, en fann ekkert sem ég gat notast við.
Hvað segið þið vakt-menn? Hverjum mælið þið með og á hverju á maður að varsta
fyrirframm þakkir.
Sent: Mán 03. Jan 2005 13:26
af MezzUp
Ertu að tala um innlendar eða erlendar tölvubúðir?
Sent: Mán 03. Jan 2005 13:56
af siggi_arni_svnb
MezzUp skrifaði:Ertu að tala um innlendar eða erlendar tölvubúðir?
Já fyrigefðu, ég á þá við innlendar verslanir.
Sent: Mán 03. Jan 2005 14:07
af Pandemic
Ég reyni að varast að fara í
Computer.is/Tæknibæ
Tölvulistinn
BT
Aco tæknival
Sent: Mán 03. Jan 2005 14:16
af nomaad
Ég ætla ekki að lista allar þær verslanir sem eru lélegar (nema kannski Tæknibæ, varastu þá af öllum lífs og sálarkröftum) en ég get óhikað mælt með:
Start.is
Tölvuvirkni
Hugver
Ég hef mjög góða reynslu af þessum búðum og myndi beina hverjum sem er til að versla við þær.
Sent: Mán 03. Jan 2005 15:25
af skipio
Mæli sérstaklega með Tölvuvirkni. Besta búðin á landinu að mínu mati.
Start og Task eru ágætar líka - ég hef allavega alltaf fengið liðlega þjónustu hjá þeim - Task voru t.d. svo indælir að taka við kælisökkli sem félagi minn hafði keypt og tekið upp „óvart“.
Att.is er oft með lægri verð þó en ég veit ekki nægilega mikið um þá - hef ekki verslað þar sjálfur.
Alls ekki versla neitt í BT sem þú kannt að þurfa að skila!
Ég hef alltaf fengið ágætis þjónustu í Tölvulistanum og þeir eru allavega mikið betri en BT en ég myndi frekar versla við Tölvuvirkni ef ég gæti. (Reyni satt að segja að forðast Tölvulistann dálítið.)
Sent: Mán 03. Jan 2005 15:27
af gumol
Ekki taka mark á því þótt einhver einn segi að búð X sé ómöguleg, fáðu álit frá öðrum.
Annars eru bestu verslanirnar eru að mínu mati:
Start
att
Tölvuvirkni
Hugver
EJS (Þráðlaust dót, laptopar o.s.frv.)
Búðir sem ég hef ekki lent í vandræðum í:
Tölvulistan
Expert
BT
Computer.is
Task
Tæknibær
Ég hef bara ekki verslað við aðrar tölvubúðir nema Tæknival sem ég mæli alls ekki með. Ég fór með tölvuna mína í viðgerð til þeirra (þetta var fyrsta tölvan mín og ég vissi frekar lítið um hana). Þeir vírsskönnuðu hana og athuguðu skrjákortið. Allt virtist virka vel svo ég fékk hana til baka fyrir 5000 kall. Þeir löguðu hinsvegar ekki módemið sem var akkurat ástæðan fyrir að ég fór með hana í viðgerð. Það var líka einn í skólanum mínum sem lét Tæknival skipta um skjá fyrir sig í laptop og þurfti að borga 28.000 kr fyrir það að skipta um skjáinn og komast að því að sá gamli var ónýtur (hann útvegaði skjáin sjálfur)
Svo það er það sama með Tæknival og sumir segja um BT. Þú verslar ekki hluti af Tækival sem gæti þurft að gera við!
Sent: Mán 03. Jan 2005 15:55
af skipio
Sorglegt hvað Tæknival er orðið mikill brandari síðustu árin.
Ég man bara hér einu sinni þegar þeir voru langbesta búðin í bænum. Keypti mínar fyrstu tvær tölvur hjá þeim '95 og '98.
En ég fékk líka rosalega góðan afslátt hjá þeim í bæði skiptin.
Ef ég væri að kaupa tölvur fyrir fyrirtæki í dag (eða ferðatölvur fyrir einstaklinga) myndi ég hiklaust versla við Nýherja. Ég er svakalega ánægður með þjónustuna hjá þeim og IBM tölvurnar almennt. (Höfum haft tonn af IBM tölvur í vinnunni í kannski eitt og hálft ár og það gerðist í fyrsta skiptið í haust að það þurfti að senda eina tölvu í viðgerð - bilað geisladrif.) En maður kaupir auðvitað ekki heimilisborðtölvur hjá Nýherja og hvað þá íhluti ...
Sent: Mán 03. Jan 2005 16:09
af einarsig
bara dell tölvur þar sem ég vinn, held það hafi ekki nein bilað í langan tíma
Sent: Mán 03. Jan 2005 16:38
af CraZy
ég mæli með:
@tt
start
og
Task
Sent: Mán 17. Jan 2005 17:27
af Ice master
ég mæli með
@tt.is
start.is
task.is
elko.is kaupi mest leikir þar
tölvuvirkni hún er fin
og hugver
Sent: Mán 17. Jan 2005 20:03
af ErectuZ
Ég mæli sérstaklega með
Tölvuvirkni
@tt.is
Start.is
Ég reyni helst að varast
BT
Tölvulistann
Sent: Mán 17. Jan 2005 20:41
af SolidFeather
Mæli mjög með Start og Tölvuvirkni
Sent: Mán 17. Jan 2005 20:56
af ponzer
Start.is
Att.is
Tölvuvirkni.is
Fer stundum í Task en hún er öruglega með þeim dýrari ! Kemur samt stundum fyrir að ég fari í Þór.
Sent: Mán 17. Jan 2005 21:57
af noizer
Ég mæli með:
Tölvuvirkni (mæli mikið með þeim)
Start
@tt
Svo reyndi ég að forðast:
BT
Tölvulistann
Sent: Mán 17. Jan 2005 23:06
af iStorm
Ég mæli nú hiklaust með tölvulistanum, hef alltaf fengið pottþétta þjónustu þar.
Sent: Þri 18. Jan 2005 10:08
af gnarr
ég mæli með lægsta verðinu.
personulega kaupai ég MJÖG mikið af tölvudóti. ég hef nokkrum sinnum notað ábyrgðina í computer.is og tæknibæ, og aldrei lent í neinu veseni.
svo bara núna síðasta fimmtudag fór ég í bt með myndavélina mína sem var að bila(btw, keypt í febrúar 2003, svo að það eru 2 vikur eftir af ábyrgðinni), í bt og talaði við þá vegna þess að ég var búinn að týna nótunni/ábyrgðarskýrteninu. hann skoðaði serial númerið á vélinni og prentaði út nýja nótu, og benti mér líka á að vera snöggur að fara með hana í viðgerð þar sem að ábyrgðin væri á síðasta snúningi. ekki kalla ég það lélega þjónustu.
flest allar þessar sögur sem maður heyrir eru 100% notandanum að kenna. fávitar sem að kaupa sér intel móðurborð og athlon örgjörva sem verða svo alveg svakalega hissa þegar þeir heyra örgjörfann molna undir heatsinkinu (ef þeir fatta að setja það á) og ekkert startar sér.
það eru þessir gaurar sem að versla við BT/tölvulistann/computer.is. vegna þess að þetta eru mainstream búðir, og þeir vita ekki að það eru til fleiri.
task/tölvuvirkni/start etc.. fá ekki þetta slæma orð á sig, vegna þess að rítardarnir hafa ekki einusinni hugmynd um að þessar búðir eru til.
Þessar búðir eru allar eins. sama þjónustan +/- 5%, og sama verðið +/- 5%.
Ef þið eruð ekki retarded sjálfir, þá getið þið verslað við hvaða búð sem er á landinu, og samt verið í góðum málum.
Sent: Þri 18. Jan 2005 13:01
af CraZy
hehe já ég hef oft spáð í því afhverju fólk skellir alltaf skuldinni á BT ef einhvað bilar/eiðilegst, það er ekki einsog BT eiðileggji viljandi vörurnar
Sent: Þri 18. Jan 2005 19:16
af Daz
Ég held ég sé alveg sammála gnarr, ég hef verslað við allar þessar "bad rep" búðir og aldrei lent í vandræðum með þjónustuna og ég hef þurft að skila og skipta hlutum. Bara spurning um að vera kurteis og vera nokkuð viss um að maður sé með sitt á hreinu og þá geta þeir ekki verið með nein vandræði.
Sent: Þri 18. Jan 2005 20:08
af Snorrmund
Eina "alvarlega" sem hefur gerst hjá mér hjá bt er að við fengum geisladrif sem var bilað virkaði bara alls ekki.. Svo við sendum það uppeftir(Nesk - Egs ) Og þeir sögðu að allt væri í lagi osf..(þá tókum við eftir því að IDE kapallinn okkar var svoldið lélegur:)) Svo þeir ákveða að senda það sama drif bara aftur.. En viti menn meðan að sá sem ætlaði með drifið úta pósthús keyrði því þangað þá ákvað hann að stoppa hjá "vini" sínum.. Á meðan var því stolið .. Við hringdum aftur uuppeftir 2 vikum seinna og þá hafði starfsmaðurinn loks þorað að segja yfirmanninum.. Til að bæta þetta fengum við drif sem kostaði 17.999kr en hitt drifið kostaði 9.999
svo ég get ekkert sagt að þetta sé neitt slæm búð.. Reyni samt ekkert að versla þar því ég þekki marga sem lent hafa í vandræðum hjá þeim... T.d. fékk Maður systur minnar Alone In the dark 2(eða álíka) með Gf4mx440(sem þótti gott kort þá) En málið var að leikurinn virkaði ekki með skjákortinu.. Þetta reddaðist um mánuði seinna þegar að patch kom fyrir leikinn
Sent: Þri 18. Jan 2005 22:48
af Birkir
Snorrmund skrifaði:T.d. fékk Maður systur minnar Alone In the dark 2(eða álíka) með Gf4mx440(sem þótti gott kort þá) En málið var að leikurinn virkaði ekki með skjákortinu.. Þetta reddaðist um mánuði seinna þegar að patch kom fyrir leikinn
Þetta er t.d.
ekki BT að kenna.
Sent: Lau 22. Jan 2005 20:34
af DoRi-
ég hef alltaf fengið góða þjónusta h´ja Tölvuvirkni og Start, hef samt lent einu sinni í vandræðum hjá tölvuvirkni , fór heim sagði pabba frá , hann fór röflaði og röflaði og neitaði að fara fyrr en hann myndi fá það sem mig vantaði (skjákotrs vifta sem ég þurfti að skila)og ég fékk viftuna
"need help, call The Daddy Service"
Sent: Lau 22. Jan 2005 23:00
af biggi1
hehe þetta finnst mér skodið
ég hef séð hjá sumum að þeim líki við @tt en liki ekki við Tölvulistann
en tölvulistinn á @tt netverslunina
Sent: Lau 22. Jan 2005 23:08
af DoRi-
lol?
Sent: Lau 22. Jan 2005 23:18
af gumol
biggi1 skrifaði:hehe þetta finnst mér skodið
ég hef séð hjá sumum að þeim líki við @tt en liki ekki við Tölvulistann
en tölvulistinn á @tt netverslunina
Þetta eru samt mjög mismunandi búðir.