Síða 1 af 1
Jóladagatal?
Sent: Sun 05. Des 2004 23:57
af aRnor`
Sælaaar, ég var að spá í hvers vegna það er ekkert jóladagatal einsog seinustu jól?
Sent: Mán 06. Des 2004 00:31
af Gandalf
sem var btw geðveikt sniðugt dæmi. Notaði það 2x til að kaupa bæði handa mér og eina jólagjöf.
En er væntanlega ekki vegna tímaskorts eða ekki vilja hjá tölvuverslunum. Held að þetta hafi ekki gengið neitt of vel í fyrra.
Sent: Mán 06. Des 2004 00:37
af MezzUp
Þetta verður ekki aftur þetta árið a.m.k. aðallega vegna áhugsaleysis verslanna í fyrra.
Sent: Mán 06. Des 2004 12:19
af Andri Fannar
Sent: Mán 06. Des 2004 13:39
af MezzUp
SvamLi skrifaði::|
Svona svona, sjáum til á næsta ári
Sent: Mán 06. Des 2004 13:50
af CraZy
það er of lankt þángað til
ég kintist vaktinni i gegnum jóladagatalið minnir mig
Sent: Mán 06. Des 2004 13:56
af vldimir
Langt, Þangað og kynntist
EN já jóladagatalið í fyrra var mjög skemmtilegt, maður beið alltaf spenntur að sjá hvaða nýju tilboð voru komin
Sent: Mán 06. Des 2004 16:17
af CraZy
já var einmitt ad spá í hvernig langt og kynntist væri skrifad
Sent: Mán 06. Des 2004 16:53
af MezzUp
vldimir skrifaði:Langt, Þangað og kynntist
That's my man
CraZy skrifaði:já var einmitt ad spá í hvernig langt og kynntist væri skrifad
Þá langar þig kannski líka að vita hvernig „að“ og „skrifað“ er skrifað
Sent: Mán 06. Des 2004 17:01
af CraZy
jájá veit allveg hvernig þad er skrifad eg bara skrifa ekki "ð" og oftast ekki kommur
og stundum eg eg er ad drifa mig þá geri eg líka "th" í stadin fyrir "Þ"
Sent: Mán 06. Des 2004 18:22
af MezzUp
CraZy skrifaði:jájá veit allveg hvernig þad er skrifad eg bara skrifa ekki "ð" og oftast ekki kommur
Þá ætla ég að biðja þig að byrja á því, a.m.k. þegar þú skrifar hérna.
CraZy skrifaði:og stundum eg eg er ad drifa mig þá geri eg líka "th" í stadin fyrir "Þ"
Afhverju skrifarðu 2 stafi í staðinn fyrir 1 þegar þú ert að drífa þig?
Sent: Mán 06. Des 2004 18:41
af vldimir
Jám, um að gera vanda sig, skemmtilegra og þægilegra að lesa póstana.. Maður vill síður vera að svara illa uppsettum og skrifuðum póstum, hef tekið eftir því þegar maður hefur verið að skoða þetta.. Vandaðu þig frekar og taktu 30sek lengra að vanda þig í staðinn fyrir að hafa þetta allt í messi og illa læsilegt..
Það er bara eitthvernvegin óþægilegt að lesa svona stafsetningarvillur
Sent: Mán 06. Des 2004 19:54
af Emizter
heh... svona persónulega þá tók ég ekki einu sinni eftir þessu fyrir en að þið minntust á þetta.. bara las þetta, en var heldur ekkert að lesa neitt ítarlega.. bara rétt að renna yfir þetta
Sent: Mán 06. Des 2004 19:59
af CraZy
af því að Þ er lengst þarna til niðri til hægri
en T og H nánast hlið við hlið, svo vandist ég við þetta þegar ég gat ekki skrifað íslenska stafi