Síða 1 af 1
varðandi EJS.is
Sent: Þri 26. Okt 2004 10:35
af einarsig
Ég er ekki að finna
hvar þið eruð að finna þessi verið á skjákortunum inn á vefnum hjá ejs.is, væri gaman að fá sendan link á þessi verð
Sent: Þri 26. Okt 2004 10:39
af gnarr
ejs setja þetta sjálfir inn. sendu þeim bara e-mail og spurðu.
Sent: Þri 26. Okt 2004 11:02
af Stutturdreki
EJS, eins og flestir 'stærri' tölvusalar (i.e. heildsalar með 'brand' merki) eru ekki beint með góðar vefverslanir.. ef þeir eru með svoleiðs yfir höfuð.
Og sem fyrrum starfsmaður EJS get ég sagt að stefna fyrrum yfirmanna EJS var beinlínis að selja ekki tölvur til einstaklinga heldur einblína eingöngu á fyrirtækjamarkað. Sem er mjög skrítin stefna þar sem Dell eru (og hafa lengi verið) mest seldu einmennings tölvur í heiminum (rétt á undan HP) og er sérstaklega sterkt merki í vefverslun td. í USA.
Áherslurnar hafa sem betur fer breyst hjá þeim og ég held að þeir gætu orðið mjög stórir í svona 'pakka' tölvum ef þeir kæmu sér upp öflugri vefverslun..
Re: varðandi EJS.is
Sent: Þri 26. Okt 2004 13:38
af °°gummi°°
einarsig skrifaði:Ég er ekki að finna
hvar þið eruð að finna þessi verið á skjákortunum inn á vefnum hjá ejs.is, væri gaman að fá sendan link á þessi verð
netverslun:
http://extranet.ejs.is/extranet/
skjákort:
http://extranet.ejs.is/extranet/ProductList.aspx?CategoryID=SKJ%c3%81KORT
Þú finnur þetta líka undir {búnaður->netverslun} á ejs.is
Sent: Þri 26. Okt 2004 13:46
af gnarr
skrítið að "auglýsa" verðin sín þá á vaktinni, þar sem að það er aðalega einstaklingar sem að skoða hana.
Sent: Þri 26. Okt 2004 14:26
af Stutturdreki
Stutturdreki skrifaði:.. stefna fyrrum yfirmanna EJS var beinlínis að selja ekki tölvur til einstaklinga heldur einblína eingöngu á fyrirtækjamarkað ... Áherslurnar hafa sem betur fer breyst hjá þeim ..
.. með mikla áherslu á 'fyrrum' og 'var'
Oh og með 'þeim' meinti ég EJS, en ekki 'fyrrum yfirmanna'..