Síða 1 af 1

fáar auglýsingar?

Sent: Sun 10. Okt 2004 18:50
af kaktus
hæhæ
er það ímyndun hjá mér eða hefur auglýsingum vegna notaðs dóts fækkað eftir að nýji smáauglýsingaþráðurinn komst í gagnið?
:oops:

marr er einn af þeim sem er alltaf í leit að góðum díl :twisted: og mér finnst varla nokkuð gerast uppá síðkastið :?:

Sent: Sun 10. Okt 2004 20:21
af CendenZ
þetta nýja dót er hræææðilegt

þetta minnir mig á einhverskonar sýningarforrit, ekkert ætlað undir þetta

btw, nýjustu auglýsingarnar koma neðst


það er yfirnáttúrulega hræðilega lélegt :evil:

Sent: Mán 11. Okt 2004 10:39
af gnarr
ég gleymi alltaf að skoða þetta núna. ég skoðaði þetta alltaf mörgum sinnum á dag. vegna þess að ég er alltaf á vatkinni, og auglýsingaþráðurinn varð rauður um leið og eitthvað var að gerast.
en þarna er þetta einhverstaðar allt annarstaðar og ég man aldrei eftir þessu. svo er bara vesen að reyna að finna nýjustu auglýsingarnar með alla þessa dálka og flokkun.

Sent: Mán 11. Okt 2004 10:46
af zream
Ég nenni varla að skoða þetta núna , alltof erfitt að sjá hvað er nýjast og svona finnst mér.
Skoðaði þetta mörgum sinnum á dag þegar þetta var bara eins og venjulega , en núna kanski 1x á dag ef ég nenni :/

Sent: Mán 11. Okt 2004 14:05
af kaktus
hmmm mér finnst þetta slæmt því að þetta var stór partur af net-rápinu hjá mér :oops: hvar á ég nú að hanga? :roll: partalistanum?

Sent: Mán 11. Okt 2004 14:37
af goldfinger
ég nenni varla að skoða þetta smáauglýsingar... vill gamla kerfið bara aftur.......

Sent: Mán 11. Okt 2004 20:47
af Snorrmund
er hægt að hafa þetta þannig að ef að einhver setur auglýsingu á smáauglýsingarnar þá setji admin(eða einhver user) sjálfkrafa póst í Til Sölu Óskast keypt..?
veit um eitt erlent forum og þar er það þannig að ef að einhver uploadar bíl eða braut fyrir leikinn þá fer það sjálfkrafa í forum og er "læst" .. en fólk getur reyndar ýtt á review hnapp.. en þannig þarf auðvitað ekkert..

Sent: Þri 12. Okt 2004 00:17
af GuðjónR
goldfinger skrifaði:ég nenni varla að skoða þetta smáauglýsingar... vill gamla kerfið bara aftur.......

Ég er eiginlega sammála...þetta kerfi er ruglingslegt og ílla uppsett. Mér finnst það hafa verið mistök að kaupa þetta fyrir $100
Ég nenni allaveganna ekki að skoða þetta.

Sent: Þri 12. Okt 2004 13:06
af kaktus
mér leist þrælvel á þetta fyrst en einhvern veginn er þetta ekki að virka :cry:

Sent: Þri 12. Okt 2004 13:29
af gnarr
ef þið gætuð látið auglýsingatakkann skipta um lit um leið og það kæmi auglýsing, þá myndi þetta virka.

Sent: Fim 04. Nóv 2004 18:48
af noizer
Mér fannst gamla kerfið miklu betra. Ég gái aldrei á þessar auglýsingar eftir að þetta breyttist

Sent: Fös 05. Nóv 2004 22:40
af so
Hilmar skrifaði:Mér fannst gamla kerfið miklu betra. Ég gái aldrei á þessar auglýsingar eftir að þetta breyttist


Sammála

Sent: Lau 06. Nóv 2004 11:22
af GuðjónR
Notiði þá gamla kerfið punkassmófos...

Sent: Lau 06. Nóv 2004 14:54
af kaktus
:8) takk takk


hérna punkass......................hvað :oops:
ég féll í engilsaxnesku
var þetta nokk slæmur hlutur þetta punkhérnahvaðþaðvarnúaftur? :twisted:

Sent: Lau 06. Nóv 2004 15:05
af MezzUp
mófós = mother fu**ers :P

Sent: Sun 07. Nóv 2004 00:12
af Sup3rfly
pönkararassgatsmannfjandar

Sent: Sun 07. Nóv 2004 03:08
af ErectuZ
Sup3rfly skrifaði:pönkararassgatsmannfjandar


**Íslenska er okkar mál!** :D