Síða 1 af 1
Fréttir af Verðvaktinni - 7. apríl 2003
Sent: Þri 08. Apr 2003 01:05
af kiddi
Whowie! Fullt af breytingum núna, ákveðnir Intel og AMD örgjörvar hafa tekið ágætis verðfall, 512MB DDR-400 komið undir tíuþúsundkallinn ásamt fleiri verðlækkunum á vinnsluminni. 120GB SerialATA diskur kominn, 80GB ferðatölvuharðir diskar líka! Kominn tími á uppfærslu
(Segjum við það ekki hverja viku? Tja-jú.. við erum tölvunördar, við elskum uppfærslur
) Gaman að sjá hvað samkeppnin er farin að dreifast á milli verslana, spennandi tími framundan.
Kveðjum að sinni þar til næstu viku, Vaktin.
Sent: Þri 08. Apr 2003 08:04
af MezzUp
hehe, þú hættir loksins að segja okkur að kaupa minni strax af því að það færi að hækka bráðum
GG as always kiddi
Sent: Þri 08. Apr 2003 11:36
af Castrate
hmm ég er með 6gb ömurlega hægvirkan harðan disk í laptopnum mínum. Spurning um að uppfæra
Sent: Þri 08. Apr 2003 14:47
af d00m
Ég er með smá athugasemd.
Undir skjákortunum við kortið ATi 9700 Pro stendur að Tæknibær sé með kortið á 34.900. Þegar ég skoða þetta á síðunni þeirra þá er það er raun non-pro útgáfan af 9700 kortinu sem þeir eru með á 34.900 en Pro útgáfan er í rauninni á 44.900.
1950 SKJÁK ATI RADEON9700 128 TV 2Ho 34.900,-
2934 SKJÁK ATI RADEON9700PRO128 2Ho 44.900,-
Sent: Þri 08. Apr 2003 15:31
af kiddi
Sæll og takk kærlega fyrir ábendinguna
Við erum búnir að laga.
Sent: Þri 08. Apr 2003 18:11
af pakkmaður
fyrirgefiði.........
en hvað er serial ATA diskar?
Sent: Þri 08. Apr 2003 18:32
af Einsi
BT á aldrei til 9700 PRO, en eru samt með besta verðið.
Er tilgangur í því að hafa þá skráða með lægsta verðið ef þeir eiga vöruna aldrei til?
Sent: Þri 08. Apr 2003 18:55
af kiddi
Við getum ekki athugað birgðastöðu fyrirtækjanna í hvert sinn sem við uppfærum. B.T. er að skjóta sjálfa sig í fótinn með þessu, því þegar fólk mætir og vill versla, og varan ekki til, þá gengur fólk burt spælt í skapinu og pirrað.
Og til að svara fyrri spurningu með SerialATA, þá er SerialATA það sem koma skal í tengingum á hörðum diskum og fleiru. Hagkvæmara í stærð og vinnslu, og býður upp á enn meiri hraða og nýja fítusa í framtíðinni. =) Mun gera hefðbundu IDE kaplana úrelda.
Sent: Þri 08. Apr 2003 19:11
af MezzUp
pakkmaður: það er búið að svara þessu áður, leitaðu bara aðeins :)
Sent: Þri 08. Apr 2003 19:40
af Einsi
Góður punktur
Sent: Mið 09. Apr 2003 14:35
af Voffinn
ohhh...hvað ég hata þessa flötu ide kapla... urrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Sent: Mið 09. Apr 2003 17:24
af MezzUp
hehe, ég er með rounded IDE kapla
Sent: Mið 09. Apr 2003 17:46
af Voffinn
urrr...hvar fær mar þannig ?
Sent: Mið 09. Apr 2003 19:44
af Atlinn
Rounded IDE kaplar fást í flestum tölvubúðum sem selja IDE kapla
En vitii hvað værgi geðveikt kúl.
Að setja örvar sem segja til hvort varan sé að hækka eða lækka í verði.
Sent: Mið 09. Apr 2003 20:11
af MezzUp
tölvuíhlutir eru næstum alltaf að lækka í verði þannig að svona örvar eru örugglega óþarfar
Sent: Sun 13. Apr 2003 16:01
af JÞA
enn að hafa hvað mykið lækkunin er í krónum milli vikna?
Sent: Fim 17. Apr 2003 19:09
af halanegri
"mikið"