Síða 1 af 1

Taskmenn að svindla? :)

Sent: Mið 25. Ágú 2004 20:56
af corflame
Var að kíkja á verð á DDR 400 minni og rak augun í það að á vaktinni þá gefa þeir upp 7990kr fyrir 512MB kubb :shock: , en svo þegar mar skoðar síðuna hjá þeim, þá er eina minnið sem er á 7990kr 256MB kubbur.

Reyndar tel ég líklegast að um mistök sé að ræða, en mig dauðlangar til að mæta þar í fyrramálið og heimta DDR 400 512MB kingston kubb á 7.990kr :P

Sent: Fim 26. Ágú 2004 08:55
af gnarr
Þeir eru líka með DDR400 256MB kubbana 2.000kr ódýrari á vaktinni en þeir eru svo að selja á síðunni. :evil:

Sent: Fim 26. Ágú 2004 16:01
af MezzUp
eftir að uppfæra annaðhvort hugsa ég..........

annnars er þetta mjög lélegt ef að þetta er viljandi :evil:

Sent: Fös 27. Ágú 2004 13:42
af Gestir
En ef þið skoðið skilmálana þeirra þá er þetta þar:


Athugið: Við ábyrgjumst ekki Task.is verðlista gefna út á öðrum síðum eða leitarvélum.

Sent: Fös 27. Ágú 2004 17:42
af Voffinn
Mjög lélegt og ekki í fyrsta skipti sem þeir fara illa með vaktina. Ekki myndi mér detta í hug að versla þarna.

Sent: Fös 27. Ágú 2004 23:03
af GuðjónR
Óþarfa panic...þetta er hérna

Sent: Lau 28. Ágú 2004 21:04
af goldfinger
hvernig væri að skoða betur :D

Sent: Sun 29. Ágú 2004 01:34
af corflame
goldfinger skrifaði:hvernig væri að skoða betur :D


Skoða hvað betur? Þegar ég skrifaði upphaflega bréfið þá var þetta eins og ég lýsti. Á meira að segja screenshot til að sanna það :)

En eins og ég sagði, þá voru þetta væntanlega mistök sem yrðu leiðrétt fljótlega eins og kom í ljós.