Síða 1 af 2
2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:20
af GuðjónR
IE er bara með 7,9% browsera sem hafa heimsókt Vaktina það sem af er ári 2012.
Fyrir nokkrum árum var IE með yfir 80%.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:22
af Daz
Vá, er ég virkilega með rúmlega 4 milljón page hits á bara þessu ári. Ég verð að fara að skoða vaktina minna...
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:25
af GuðjónR
Daz skrifaði:Vá, er ég virkilega með rúmlega 4 milljón page hits á bara þessu ári. Ég verð að fara að skoða vaktina minna...
hahahaha svo þú ert Opera gaurinn
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:26
af dandri
Ég sem hélt að fólk væri hætt að nota IE, fyrir utan foreldra mína.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:27
af emmi
Ég nota Opera líka.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:31
af GuðjónR
Ég er svo vanafastur, búinn að vera með Chrome í mörg ár þrátt fyrir að Safari sé flottari og án efa stöðugri.
Spurning um að skipta yfir í Safari/Opera ....
IE = NO NO NOOOOO!
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:36
af Daz
GuðjónR skrifaði:Ég er svo vanafastur, búinn að vera með Chrome í mörg ár þrátt fyrir að Safari sé flottari og án efa stöðugri.
Spurning um að skipta yfir í Safari/Opera ....
IE = NO NO NOOOOO!
Skv. Wikipedia hef ég líklega byrjað í Operu 3 í kringum 1999. Hef Chrome on the side fyrir Google síður og það sem virkar illa í Operu
(sem eru mjög fáar nema örfá vinnutengd product sem virka bara í IE og Chrome...).
Kannski eru Firefox eða Chrome miklu betri, mér er bara alveg sama því Opera virkar fínt fyrir mig.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:44
af worghal
geturu ekki sett upp eitthvað redirect á þá sem nota IE ?
sent þá á download síðu sem býður upp á opera, fireox eða chrome.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:44
af appel
Ég hef verið hræddur við að skoða vefsíður í Internet Explorer síðan 2004. Sá ótti á aldrei eftir að hverfa. Ég mun aldrei nota IEXPLODER framar á minni ævi.
Skipti yfir í Firefox, og Guð minn góður... hvar værum við stödd án Firefox? Hvað ef Firefox hefði aldrei komið á sjónarsviðið? Við værum enn líklegast á steinöld, enda var Microsoft nánast búið að lýsa því yfir að Internet Explorer ætti ekki eftir að þróast neitt meira, búið að drepa samkeppnina og hví þróast?
Í mínum huga eru allir þeir sem nota IE að svíkja sjálfan sig og móðurjörðina. Til að róta út alla þessara svikara legg ég til að það birtist "IE USER!!" á öllum innleggjum IE notenda.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:46
af Victordp
dandri skrifaði:Ég sem hélt að fólk væri hætt að nota IE, fyrir utan foreldra mína.
Skólar og vinnustaðir. Ég er samt ekki spas og downloda alltaf Chrome í skólanum ef það er ekki inná tölvunni
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:47
af worghal
Victordp skrifaði:dandri skrifaði:Ég sem hélt að fólk væri hætt að nota IE, fyrir utan foreldra mína.
Skólar og vinnustaðir. Ég er samt ekki spas og downloda alltaf Chrome í skólanum ef það er ekki inná tölvunni
ég er ánægður með minn vinnustað að bjóða upp á chrome, firefox eða IE. what ever you want
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:50
af Akumo
Fólk farið að minnka að skoða vaktina eða? fyrst ég er 7.9% af þessu
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 21:58
af Kosmor
maxthon ekkert að komast inná listann?
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:13
af GuðjónR
Akumo skrifaði:Fólk farið að minnka að skoða vaktina eða? fyrst ég er 7.9% af þessu
hehehe þú ert risaeðla...en hátt í 100 milljón page view er ekkert svo slæmt
appel skrifaði:Skipti yfir í Firefox, og Guð minn góður... hvar værum við stödd án Firefox?
Hef aldrei prófað Firefox
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:20
af Tiger
GuðjónR skrifaði:appel skrifaði:Skipti yfir í Firefox, og Guð minn góður... hvar værum við stödd án Firefox?
Hef aldrei prófað Firefox
Eina sem ég nota og hef notað, meira að segja þegar ég var með Mac-an þá notaði ég hann umfram Safari sem hefur fullt af böggum að mér finnst.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:22
af GuðjónR
Mig minnir að ég hafi innstallerað Firefox fyrir sirka milljón árum en fengið blue screen strax í kjölfarið og hent honum út...
Kannsi var þetta bara óheppni...
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:23
af upg8
Magnað hvað heimurinn er alltaf langt á eftir veruleikanum, á meðan Internet Explorer var ógeðslegt rusl þá var hann mest notaði browserinn, en núna þegar það er búið að stórbæta Internet Explorer og t.d. Firefox miklu hættulegri þá lætur fólk eins og Internet Explorer sé með holdsveiki.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:26
af GuðjónR
upg8 skrifaði:Magnað hvað heimurinn er alltaf langt á eftir veruleikanum, á meðan Internet Explorer var ógeðslegt rusl þá var hann mest notaði browserinn, en núna þegar það er búið að stórbæta Internet Explorer og t.d. Firefox miklu hættulegri þá lætur fólk eins og Internet Explorer sé með holdsveiki.
Well...IE ER holdsveiki!
Ef þú fengir STAT frá t.d. bland.is þá væri IE örugglega með miklu hærra score, enda ekki meðvitaðir "nördar" þar á ferð
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:33
af bAZik
GuðjónR skrifaði:upg8 skrifaði:Magnað hvað heimurinn er alltaf langt á eftir veruleikanum, á meðan Internet Explorer var ógeðslegt rusl þá var hann mest notaði browserinn, en núna þegar það er búið að stórbæta Internet Explorer og t.d. Firefox miklu hættulegri þá lætur fólk eins og Internet Explorer sé með holdsveiki.
Well...IE ER holdsveiki!
Ef þú fengir STAT frá t.d. bland.is þá væri IE örugglega með miklu hærra score, enda ekki meðvitaðir "nördar" þar á ferð
Það er ekkert að IE9, hvað þá IE10.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 22:42
af Gúrú
bAZik skrifaði:Það er ekkert að IE9
Jú. Hann styður minna af HTML5 en margir ísskápar í dag.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 23:03
af bAZik
Gúrú skrifaði:bAZik skrifaði:Það er ekkert að IE9
Jú. Hann styður minna af HTML5 en margir ísskápar í dag.
Samt ekki.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 23:14
af Gúrú
bAZik skrifaði:Gúrú skrifaði:bAZik skrifaði:Það er ekkert að IE9
Jú. Hann styður minna af HTML5 en margir ísskápar í dag.
Samt ekki.
Virkilega? Opnaðu IE9 og athugaðu hversu mikið af HTML5 hann styður. Komdu síðan aftur hingað og segðu mér að hann styðji meira af HTML5 en ísskápar að keyra Chrome 10.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 23:16
af bAZik
Gúrú skrifaði:bAZik skrifaði:Gúrú skrifaði:bAZik skrifaði:Það er ekkert að IE9
Jú. Hann styður minna af HTML5 en margir ísskápar í dag.
Samt ekki.
Virkilega? Opnaðu IE9 og athugaðu hversu mikið af HTML5 hann styður. Komdu síðan aftur hingað og segðu mér að hann styðji meira af HTML5 en ísskápar að keyra Chrome 10.
Veit full vel að hann styður minna HTML5 en Chrome og Firefox, var bara að segja að það sem þú sagðir væri rangt. Þýðir ekki að það sé eitthvað að honum.
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 23:27
af Gúrú
bAZik skrifaði:Veit full vel að hann styður minna HTML5 en Chrome og Firefox, var bara að segja að það sem þú sagðir væri rangt. Þýðir ekki að það sé eitthvað að honum.
Hvað sagði ég sem er rangt? Það er
fullt af ísskápum komnir út með Chrome 10, og Chrome 10 styður mun meira af HTML5 fítusum en IE9.
Hefurðu ekki séð þessar djók myndir á internetinu "Why does my refrigerator need twitter?"?
Re: 2012 - Listi yfir vafra sem heimsækja Vaktina
Sent: Sun 19. Ágú 2012 23:34
af bAZik
Gúrú skrifaði:bAZik skrifaði:Veit full vel að hann styður minna HTML5 en Chrome og Firefox, var bara að segja að það sem þú sagðir væri rangt. Þýðir ekki að það sé eitthvað að honum.
Hvað sagði ég sem er rangt? Það er
fullt af ísskápum komnir út með Chrome 10, og Chrome 10 styður mun meira af HTML5 fítusum en IE9.
Hefurðu ekki séð þessar djók myndir á internetinu "Why does my refrigerator need twitter?"?
Jú reyndar, vissi ekki að þeir gætu verið með Chrome líka, oh well.
IE9 er samt ekki eins slæmur og margir segja hann vera, það er staðreynd.