Síða 1 af 1

Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 13:09
af vesi
Sælir vaktarar.

Er það bara ég eða fynnst fleirum að vanti svona "náms,, þráð hingað inn.
T.d. í gær spurði ég um kerfisstjóra-nám og fékk þrælfín svör,, og takk fyrir þau. en svo fór ég að skoða lengra og fann tölvunarfræði náms þráð, svo annan um rafvirkjan eða rafeindavirkjan, og eflaust eru þeir mun fleirri.

Án efa koma fleirri hingað inn í framtíðini og eru að skoða nám. væri þá ekki fínt að það væri þráður sem væri nokkuð aðgengilegur, flott svör og spurningar. í staðinn að fá nýjan þráð og svör frá einstæklingum sem eru orðnir leiðir á að svara sömu spurninguni aftur og aftur,, eins og sést hefur í ýmsum tv-umræðunum hérna.

Hef enga skoðun á því hvernig eða hvort ætti að flokka þetta eithvað frekar en undir "NÁM" eða annað. Menn gætu þá skotið inn spurningum þar og lesið hinar umræðurnar.

Með bestu kveðjum
Vesi

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 19:41
af kubbur
þetta er þráður, þú ert að tala um þráðarflokk, eða öðru nafni korkur :)

ég er hinsvegar alveg sammála þér, það mætti vera námskorkur

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 20:00
af tdog
Þetta er sniðug hugmynd!

Annars; vandræðalega mómentið þegar þú fattar að „korkur“ er þýðing á „bulletin' board“ eftir miklar vangaveltur.

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 20:51
af vesi
my bad :megasmile
en samt,, hefði líka áhuga á að skoða hvað aðrir væru að/eða hugsa um að nema.. og ummræðunu um það.

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 21:32
af GuðjónR
Já þetta er óvitlaus hugmynd, hvar sjáið þið fyrir ykkur að hafa þennan flokk?

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 21:35
af capteinninn
Örugglega undir Allt annað

Sé það hvergi komast fyrir annarstaðar

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 22:01
af kubbur
Skv mìnum skilning myndi þetta flokkast undir leikir, hugbúnaður og stýrikerfi, flokkinn myndi èg nefna "hugbúnaður fyrir lífrænan vélbúnað"

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 22:03
af GuðjónR
kubbur skrifaði: "hugbúnaður fyrir lífrænan vélbúnað"

hahahahaha góður!

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 22:04
af kubbur
GuðjónR skrifaði:
kubbur skrifaði: "hugbúnaður fyrir lífrænan vélbúnað"

hahahahaha góður!

Sè ekkert sem hindrar þetta nafn à þennan flokk ;-)

Re: Náms þráður Vaktarinnar ????

Sent: Þri 08. Maí 2012 22:17
af Daz
kubbur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
kubbur skrifaði: "hugbúnaður fyrir lífrænan vélbúnað"

hahahahaha góður!

Sè ekkert sem hindrar þetta nafn à þennan flokk ;-)

Minnir á Windows installerinn
3 ár eftir af installi
2 ár eftir af installi
5 ár eftir af installi
6 mánuðir eftir af installi
∞+1 ár eftir af installi
Install failed.