Síða 1 af 1
Fréttir af Verðvaktinni - 10. mars 2003
Sent: Mán 10. Mar 2003 23:51
af kiddi
Munið þið eftir SDRAM verðstríðinu fyrir einu og hálfu ári tæpu? Það varð svo hlægilega ódýrt að það tók varla bensínkostnaðinum að fara út og kaupa það, margir sátu á sér... og svo hækkaði það aftur... margir sáu eftir því að hafa ekki farið og keypt. Nú fáið þið annað tækifæri, DDR vinnsluminni er að ná verðbotninum að okkar mati, ekki missa af þessu! Farið og fyllið minnisraufarnar á móðurborðunum meðan færið gefst! Svo ber að nefna að Pentium4 örgjörvar eru að lækka með meiri hraða en nokkurntíman fyrr, WesternDigital 80GB 8MB eru einnig að slást um grænu reitina ásamt fleiri diskum.
Gerum nú vel við elskurnar okkar, þær eiga þetta skilið!
Sent: Þri 11. Mar 2003 13:49
af nobody
Eftir því sem ég best veit var lækkunin hjá Expert bara tilboð, er það ekki?
Er líklegt að HDD 120 gb 8 mb buffer fari niður fyrir 17,000 krónurnar
Sent: Þri 11. Mar 2003 15:39
af GuðjónR
Tilboð eða ekki tilboð...fínt verð...
það er ekkert voðalega langt síðan ég borgaði 30þús fyrir 60gb IBM með 2mb buffer
Pottþétt að 120gb á eftir að fara niður fyrir 17þús.
Sent: Þri 11. Mar 2003 16:07
af MezzUp
Kiddi: það er gaman að fá svona ábendingar og fréttir öðru hvoru. Keep it up
Sent: Þri 11. Mar 2003 16:24
af Castrate
keypti mér 512mb DDR333mhz Kingston kubb á 8500 kall hjá thor.is sem er ekki neitt þetta kostaði yfir 20k fyrir nokkru.
Sent: Þri 11. Mar 2003 18:34
af nobody
Þakka ykkur fyrir upplýsingarnar þetta var gott að vita.......
Haldið þið að harðadiska fermingartilboðin á 120gb verði í kringum 15 þúsund? :band
Sent: Þri 11. Mar 2003 20:20
af GuðjónR
Castrate : Kingston 512mb DDRam333Mhz Lífstíðar ábyrgð 7.999 (Expert)
og nobody gæti trúað því...15.000.- hljómar vel
Sent: Mið 12. Mar 2003 10:11
af Castrate
oh.. jæja 500 kall er nú ekki mikið til að kvarta undan
Sent: Fim 13. Mar 2003 15:47
af Bergur
Hver munurinn á 266 minni og 333 minni. Munar einhverju í hraða að ráði?
Sent: Fim 13. Mar 2003 16:24
af GuðjónR
Munurinn er 67mhz...og þú verður ekki var við hann...
Sent: Fim 13. Mar 2003 22:42
af Voffinn
GuðjónR skrifaði:Munurinn er 67mhz...og þú verður ekki var við hann...
akkuru ertu menn þá að kaupa þetta ?
Sent: Fös 14. Mar 2003 00:17
af kemiztry
Alltaf gott að kaupa það hraðasta sem er í boði.. þó svo það muni einhverjum þúsundköllum
Sent: Fös 14. Mar 2003 11:23
af Voffinn
nei..ég meina...ef ég fæ mér amd ( þokkalega öflugan )
og svo gott móðurborð....hef ég þá alveg jafnmikla þörf fyrir ddr266 og ddr333 ?