Síða 1 af 1
aflgjafa flokkur?
Sent: Sun 29. Maí 2011 23:03
af Halldór
Ég er að velta fyrir mér afhverju það er ekki flokkur hér á vaktinni sem er með aflgjafa? Og ef að það er mögulegt þá að setja upp hérna flokk sem er með aflgjöfum?
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Sun 29. Maí 2011 23:42
af Guðni Massi
vaktin skrifaði:Mods / kassar og kæling
Svalt spjall um kassa, PSU´s, og kælingu.
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Mán 30. Maí 2011 00:18
af Halldór
ég var ekki að tala um á spjallinu heldur á vaktin.is svona flokkur eins t.d. Örgjörvar, Vinnsluminni o.fl. (skoðar líka hvar þessu var postað
)
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Þri 31. Maí 2011 09:40
af Halldór
bump
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Þri 31. Maí 2011 12:17
af Eiiki
Sennilega vegna þess að munurinn á aflgjafa og aflgjafa getur verið gríðarlegur, hvernig ætti að flokka þá? Eftir því hvað þeir eru mörg Wött?
Líttu á
http://www.tolvutek.is/product_info.php?cPath=1_62&products_id=23604 og
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_38&products_id=1423. Báðir þessir aflgjafar eru 750W en er gæðamunurinn gríðarlegur, þannig að búa til svona verðflokk yfir aflgjafa væri held ég frekar ómögulegt.
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Þri 31. Maí 2011 12:44
af Kobbmeister
Það er varla hægt að hafa svona flokk, það munar svo miklu.
T.d. hvort er hann 80 plus gold eða silver hver er amper talan og svo framvegis.
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Þri 31. Maí 2011 13:19
af Halldór
það er hægt að hafa 3 flokka 80 plus gold, 80 plus silver og þá sem eru ekki 80 plus. svo er hægt að flokka þá niður eftir Wöttum.
Re: aflgjafa flokkur?
Sent: Þri 31. Maí 2011 13:33
af vesley
Halldór skrifaði:það er hægt að hafa 3 flokka 80 plus gold, 80 plus silver og þá sem eru ekki 80 plus. svo er hægt að flokka þá niður eftir Wöttum.
Þrátt fyrir að aflgjafar eru að fá sama 80plus rating og sömu wött þá getur samt munurinn verið gríðarlega mikill.
Eina leiðin að mínu mati væri að flokka þetta bara eftir framleiðendum. Og þá vinsælustu aflgjafarnir sem flestar búðir selja. Eins og Corsair HX-AX- Antec aflgjafarnir og fleira.
Annars finnst mér að það mætti alveg sleppa því að búa til svona flokk.