Síða 1 af 1

Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 19:33
af GuðjónR
Ég var að spá....
Hvort það væri einhver sem gæti útbúið einfalt *.php skjal með sölureglunum

Sölureglurnar eru í bleikum kassa á söluþræðinum, frekar ljótt.
Það sem ég var að spá var að vera með html eða php skjal þar sem reglurnar eru, hafa skjalið með gráum forgrunni og í stíl við spjallboðið.
Einnig þarf að vera "back" eða "til-baka" hnappur sem sendir viðkomandi á þráðinn sinn.
Útliði gæti verið einhvernvegin svona: memberlist.php
Eða faq.php

Bara svona ef einhver getur og nennir.... :-"

Reglurnar:

Reglur spjallborðs
1) Þú selur einungis vöru sem þú löglega átt
2) Vaktin.is ber enga ábyrgð á viðskiptum sem hér fara fram
3) Óheimilt er að selja stolinn hugbúnað
4) Óheimilt er að vitna í aðrar sölusíður
5) Einstaklingar auglýsa frítt, fyrirtæki kaupa auglýsingapláss
6) Einungis má endurnýja þræði („bump“) á 24 klst. fresti.
7) Hástafir og upphrópunarmerki eru óæskileg í titlum
8) Svari seljandi ekki fyrirspurnum innan við 7 daga verður söluþræði lokað"
9) Hafi vara verið keypt erlendis skal taka fram hvort VSK hafi verið greiddur
10) Nauðsynlegt er að taka fram: Lýsing á vörunni, ástand, aldur, hlekkir á vöru og/eða ljósmynd af henni.
11) Stranglega er bannað að breyta eða eyða meiginmáli í upphafsinnleggi þannig að það slíti þráðinn úr samhengi.

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 19:36
af biturk
já.......og hafa þessar reglur líka í hinum söluflokkunum? =D>

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 19:39
af bulldog
fær með auka fjölda af innleggjum guðjón eða spes titil :lol:

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 21:50
af GuðjónR
biturk skrifaði:já.......og hafa þessar reglur líka í hinum söluflokkunum? =D>

Já....

Síðan væri hægt að copera textann úr "Reglur" og rename'a skjalið og nota það fyrir almennu reglurnar líka.

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 22:28
af GuðjónR
bulldog skrifaði:fær með auka fjölda af innleggjum guðjón eða spes titil :lol:

Spes titli er ekkert mál, en auka fjölda af innleggjum væri svindl og það ert ekkert gaman :)

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 22:42
af dori
Á þetta s.s. bara að vera falleg uppsetning á sölureglunum? Á sér síðu sem er hægt að fara inná og með "history.back" takka?

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Mið 13. Apr 2011 22:56
af GuðjónR
dori skrifaði:Á þetta s.s. bara að vera falleg uppsetning á sölureglunum? Á sér síðu sem er hægt að fara inná og með "history.back" takka?

Jebb...pretty much so :)

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 21:39
af GuðjónR
Engin áhugi?

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 21:41
af thegirl
GuðjónR skrifaði:Engin áhugi?


myndi gera það ef ég kynni það en læri því miður ekki vefforritun fyrr en eftir ár

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 22:02
af GuðjónR
thegirl skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Engin áhugi?


myndi gera það ef ég kynni það en læri því miður ekki vefforritun fyrr en eftir ár


speeeed it up girl :happy

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 22:33
af gtr
Búinn ... að þessu. :happy

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 23:45
af GuðjónR
nohh :)

Hvenær eigum við að skoða þetta?

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 14. Apr 2011 23:49
af gtr
GuðjónR skrifaði:nohh :)

Hvenær eigum við að skoða þetta?



Bara núna ef þú vilt :)

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 16:18
af GuðjónR
Jæja...hvernig lýst ykkur á?

Ég vil nota tækifærið og þakka Mr.Bean aka gtr
fyrir að gera þetta fyrir okkur.
100x betra en það var.
-sjá hér-

Spurning samt hvort maður eigi að vera með "hnapp" efst eins og "Reglurnar" á þetta frekar en að hafa þetta á sölusíðunum...
Bleiki liturinn er ekki alveg að gera sig....hugsanlega hægt að þurrka hann út úr scriptinu.

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 16:39
af Lallistori
GuðjónR skrifaði:Jæja...hvernig lýst ykkur á?

Ég vil nota tækifærið og þakka Mr.Bean aka gtr
fyrir að gera þetta fyrir okkur.
100x betra en það var.
-sjá hér-

Spurning samt hvort maður eigi að vera með "hnapp" efst eins og "Reglurnar" á þetta frekar en að hafa þetta á sölusíðunum...
Bleiki liturinn er ekki alveg að gera sig....hugsanlega hægt að þurrka hann út úr scriptinu.


Lýtur vel út , er ekki betra að hafa þetta bara á sölusíðunum.. held að það myndi gera meira gagn þannig ;)

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 16:40
af axyne
hvaða tilvik nær regla 4 yfir ?

Kóði: Velja allt

Óheimilt er að vitna í aðrar sölusíður


Ef seljandi er að selja hlut og setur link með síðunni sem hann keypti hlutinn á.
Er það brot á reglu 4 ?

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 16:45
af zedro
axyne skrifaði:hvaða tilvik nær regla 4 yfir ?

Kóði: Velja allt

Óheimilt er að vitna í aðrar sölusíður


Ef seljandi er að selja hlut og setur link með síðunni sem hann keypti hlutinn á.
Er það brot á reglu 4 ?


Það er verið að tala um link á söluauglýsingu sem viðkomandi hefur búið til á öðru spjalli.
Dæmi skrifaði:Hæ ég er að selja tölvu:
http://www.barnaland.is/uberleetsPC

Beinlínis ef þú ætlar að selja á vaktinni þá á auglýsingin að vera á vaktinni.

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 17:04
af biturk
GuðjónR skrifaði:Jæja...hvernig lýst ykkur á?

Ég vil nota tækifærið og þakka Mr.Bean aka gtr
fyrir að gera þetta fyrir okkur.
100x betra en það var.
-sjá hér-

Spurning samt hvort maður eigi að vera með "hnapp" efst eins og "Reglurnar" á þetta frekar en að hafa þetta á sölusíðunum...
Bleiki liturinn er ekki alveg að gera sig....hugsanlega hægt að þurrka hann út úr scriptinu.


hafa þetta á öllum sölu og óskast flokkum takk fyrir

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 20:10
af GuðjónR
biturk skrifaði:hafa þetta á öllum sölu og óskast flokkum takk fyrir

Done...og bleiki liturinn farinn, takk gtr. =D>

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 21:25
af gtr
Verði ykkur að góðu :)
Gaman að geta hjálpað eitthvað til.

kv.
gtr

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 21:40
af Gúrú
Getum við haft textann centeraðan?

Þetta lookar shawty en mér finnst undarlegt að hafa þetta svona langt til vinstri,
þetta spjallborð er búið að venja mann á að það séu avatars+upplýsingar í góða 5cm frá vinstri á undan texta. 8-[ :)

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Lau 16. Apr 2011 23:16
af GuðjónR
Jú það er örugglega hægt.

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 28. Apr 2011 19:15
af biturk
11.
Stranglega er bannað að breyta eða eyða meiginmáli í upphafsinnleggi þannig að það slíti þráðinn úr samhengi.

5. gr.

Breyta takkinn er til að breyta bréfum, ekki til að eyða þeim.
Ef hann væri til að eyða þeim þá myndi hann ekki heita breyta takki. Bannað er
að breyta meginmáli bréfs eftir að búið er að svara því. Heimilt er að bæta [SELT] fyrir framan
eða aftan meginmál þegar vörur hafa selst.

væri sniðugt að setja sölureglurnar í sama horf og hinar.

ss að það sé bannað að eiða úr upphafsinnleggi eftir að búið er að svara í þráðinn, voðalega leiðinlegt að menn séu að taka útúr auglýsingunum því það hjálpar oft öðrum að verðleggja hluti ef þeir sjá eldri auglýsingar og á hvað þeir hlutir fóru á!

Re: Nennir einhver að gera solureglur.php ?

Sent: Fim 28. Apr 2011 19:20
af GuðjónR
Það gilda sömu almennu reglur um alla þræði/innlegg, sölureglurnar eru "auka-reglur" ...