Síða 1 af 1
Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:31
af GuðjónR
Jæja, þá erum við loksins búnir að setja saman nokkar reglur fyrir
Söluflokkinn.Þeir sem fara ekki eftir þeim verða umsvifalaust teknir af lífi.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:49
af Klaufi
Það er klárlega þörf á þessu þó að þetta fari ótrúlega mikið í taugarnar á mér atm..
Þarf heilt pgdn í viðbót á lappanum!
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:54
af beatmaster
Er ekki hægt að takmarka þennann haus við að birtast bara þegar að auglýsingin er saminn eða þá að láta þessa lesningu koma upp og þú þarft að samþykkja þetta til að geta gert auglýsingu
Mér finnst þetta allavega ekki vera að gera sig eins og er að þurfa að scrolla lengst niður til að sjá auglýsinguna, en gef þó Mad props fyrir þessar reglur
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:55
af nerd0bot
Hallo, ég var að spá hvort söluþráðurinn sem ég er með, er hann í góðu lagi ?,
hér er linkur.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:56
af Jimmy
Kominn tími á að taka aðeins til í þessu.. Hefði þó verið til í að sjá eitthvað gert í því þegar menn gera ekki annað en að drulla yfir söluþræði eins og eitthvað alvald og enda á því að gera slaka þræði tvöfalt verri.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 21:57
af Klaufi
Ný spyr ég kannski eins og hálfviti:
Er hægt að limita þetta við nýræðinga titilinn?
Ef þú værir undir 100 póstum fengir þú þetta í fésið eða eitthvað álíka..?
Menn hljóta nú að vera búnir að ná þessu ef þeir ná 100 póstum, með Dk404 sem undantekninu.
nerd0bot skrifaði:Hallo, ég var að spá hvort söluþráðurinn sem ég er með, er hann í góðu lagi ?,
hér er linkur.
Skoðaðu reglurnar og berðu þær saman við auglýsinguna, hvað finnst þér?
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:04
af andribolla
Jimmy skrifaði:Kominn tími á að taka aðeins til í þessu.. Hefði þó verið til í að sjá eitthvað gert í því þegar menn gera ekki annað en að drulla yfir söluþræði eins og eitthvað alvald og enda á því að gera slaka þræði tvöfalt verri.
sammála því,
það eru nokkrir útvaldir hér á vaktini sem gera lítið annað en að drulla yfir alla þræði
sérstaklega söluþræðina. væri gaman að sjá þá halda kjafti nuna.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:05
af Godriel
-=+ÉG HATA SVONA CAPS+=-
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:06
af GuðjónR
Sko....prófið bara að fara á söluvef, gera SVARA neðst og þá sjáiðað reglurnar dúkka upp fyrir ofan ykkur, þrátt fyrir að innleggið hafi verið neðst á síðunni.
Það er líka hægt að hafa þetta í HTML skjali á bakvið þannig að þú þurfir að smella á reglurnar til að sjá þær,...en því myndi enginn nenna.
Það mætti bæra við reglu 14) stranglega bannað að hrauna yfir söluþræði annara nema að þeir gefi tilefni til þess
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:06
af nerd0bot
klaufi skrifaði:nerd0bot skrifaði:Hallo, ég var að spá hvort söluþráðurinn sem ég er með, er hann í góðu lagi ?,
hér er linkur.
Skoðaðu reglurnar og berðu þær saman við auglýsinguna, hvað finnst þér?
já ég held það.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:07
af Nariur
mér finnst regla nr. 13 skemmtieg... allir þræðir verður læst
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:09
af Klaufi
GuðjónR skrifaði:Sko....prófið bara að fara á söluvef, gera SVARA neðst og þá sjáiðað reglurnar dúkka upp fyrir ofan ykkur, þrátt fyrir að innleggið hafi verið neðst á síðunni.
Það er líka hægt að hafa þetta í HTML skjali á bakvið þannig að þú þurfir að smella á reglurnar til að sjá þær,...en því myndi enginn nenna.
Það myndi enginn gera það, alveg eins og að það virðist enginn lesa reglurnar sem eru til staðar á síðunni, þó svo að fólk samþykkir að hafa gert það við nýskráningu.
Setjum bara krossapróf úr reglunum í nýskráningarferlið! Þá neyðist fólk til að lesa þær
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:32
af gardar
Vona að ég sé ekki að hi-jacka þessum þræði.
En ég hef smá spurningu varðandi bump/doubleposting afstöðu stjórnenda.
Með hámark 1 bumpi á sólarhring, á það þá bara við auglýsingar?
Er að sjá fyrir mér einhvern sem kemur á vaktina og póstar vandamáli/spurningu, og svo nokkrum tímum seinna er einhver process í vandamálinu, eða ítarlegri upplýsingar komnar fram.
Er innsendanum þá bannað að bæta við pósti í þráðinn, og á hann að edita fyrra innlegg sitt? Eða má hann senda inn svar með auknum upplýsingum?
Nú hugsa ég þetta fyrst og fremst út frá því að þráðurinn kann að hafa verið lesinn af öllum og menn skoða þráðinn ekki aftur, nema nýtt innlegg berist í hann.
Sjálfum þætti mér eðlilegast að leyfa mönnum að senda inn nýtt innlegg, svo lengi sem þeir séu ekki að bæta inn nýjum póstum í þráðinn gríð og er, með einni og einni setningu í senn.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 22:37
af urban
gardar skrifaði:Vona að ég sé ekki að hi-jacka þessum þræði.
En ég hef smá spurningu varðandi bump/doubleposting afstöðu stjórnenda.
Með hámark 1 bumpi á sólarhring, á það þá bara við auglýsingar?
Er að sjá fyrir mér einhvern sem kemur á vaktina og póstar vandamáli/spurningu, og svo nokkrum tímum seinna er einhver process í vandamálinu, eða ítarlegri upplýsingar komnar fram.
Er innsendanum þá bannað að bæta við pósti í þráðinn, og á hann að edita fyrra innlegg sitt? Eða má hann senda inn svar með auknum upplýsingum?
Nú hugsa ég þetta fyrst og fremst út frá því að þráðurinn kann að hafa verið lesinn af öllum og menn skoða þráðinn ekki aftur, nema nýtt innlegg berist í hann.
Sjálfum þætti mér eðlilegast að leyfa mönnum að senda inn nýtt innlegg, svo lengi sem þeir séu ekki að bæta inn nýjum póstum í þráðinn gríð og er, með einni og einni setningu í senn.
þetta er nú fyrst og fremst miðað við söluþræði.
og þegar að það er mjög stutt á milli pósta hjá sama aðila.
ég allavega persónulega geri lítið í því ef að menn pósta með nokkura tíma millibili í þræði þar sem að menn eru að reyna fá vandamál leyst.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Mið 02. Mar 2011 23:41
af coldcut
@urban: Þannig að DK404 var í fullum rétti?
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 00:45
af GuðjónR
Nei, DK404 var fullur af lofti og svoleiðis fólk á heima í Þingeyjarsýslunni.
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 02:03
af Frantic
Er eh búið að vera að selja af þýfi hér á vaktinni svo þið vitið af?
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 02:33
af dodzy
GuðjónR skrifaði:Nei, DK404 var fullur af lofti og svoleiðis fólk á heima í Þingeyjarsýslunni.
óþarfi að drulla yfir þingeyjarsýslu!
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 07:43
af biturk
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 07:56
af lukkuláki
GuðjónR skrifaði:Jæja, þá erum við loksins búnir að setja saman nokkar reglur fyrir
Söluflokkinn.Þeir sem fara ekki eftir þeim verða umsvifalaust teknir af lífi.
Sæll Gaddafi
Fínt að hafa reglur og alveg bráðnauðsynlegt
Re: Nýjar reglur á "Til sölu" flokknum.
Sent: Fim 03. Mar 2011 10:03
af dori
lukkuláki skrifaði:GuðjónR skrifaði:Jæja, þá erum við loksins búnir að setja saman nokkar reglur fyrir
Söluflokkinn.Þeir sem fara ekki eftir þeim verða umsvifalaust teknir af lífi.
Sæll Gaddafi
Fínt að hafa reglur og alveg bráðnauðsynlegt
Gaddafi þarf ekki reglur. Það elska hann allir svo mikið að þeir gera bara það sem hann vill (annars er fólk líka skotið).